Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 46
30 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Eyrnatappa með bakteríu-
drepandi efni úr ilmkjarnaolíu.
2 Þriðja.
3 Tuttugu.
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT 2. dylja, 6. strit, 8. stórt ílát, 9.
heyskaparamboð, 11. verslun, 12. sam-
ansafn, 14. áburður, 16. skóli, 17. skarð,
18. í viðbót, 20. nudd, 21. litlaus.
LÓÐRÉTT 1. land í asíu, 3. skamm-
stöfun, 4. land, 5. sigað, 7. trúr, 10.
húsfreyja, 13. samstæða, 15. óviljugur,
16. iðn, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fela, 6. at, 8. hít, 9. orf, 11.
bt, 12. syrpa, 14. gúanó, 16. fg, 17. rof,
18. auk, 20. nú, 21. grár.
LÓÐRÉTT: 1. laos, 3. eh, 4. líbanon, 5.
att, 7. tryggur, 10. frú, 13. par, 15. ófús,
16. fag, 19. ká.
„Einar hefur alltaf verið ofboðs-
lega duglegur og mikill hug-
sjónamaður. Hann leggur alltaf
allt í það sem hann tekur sér
fyrir hendur og er bara að upp-
skera það sem hann er búinn að
sá. Ég er mjög stolt af honum.“
Soffía Jónasdóttir, móðir Einars M.
Sverrissonar töframanns, sem var boðið
í Óperuhúsið í Ósló þar sem hann sýndi
töfrabrögð fyrir framan 400 manns.
Jón Gnarr hefur stofnað stjórnmála-
flokk. Hann heitir Besti flokkurinn og
Jóni er full alvara. „Mig hefur lengi
langað til að hafa völd og góð laun. Góð
leið til þess er að verða lýðræðislega
kosinn,“ segir Jón, fullur einlægni.
„Mig langar líka að komast í þá stöðu
að ég geti hjálpað vinum mínum. Það
eru endalaust margar leiðir
til þess. Það má úthluta
alls konar styrkjum
og búa til hinar ýmsu
nefndir. Fólk þarf
svo ekk-
ert endilega að mæta á fundi, en fær
bara borgað.“
Jón veit að þessi tilgangur flokksins
mun varla virka á kjósendur svo hann
hefur búið til sannfærandi stefnuskrá.
„Stefnuskrána fékk ég lánaða hjá
öðrum stjórnmálaflokkum. Þarna er
eitthvað um að bjarga heimilunum, að
draga til ábyrgðar þá sem bera ábyrgð
á hruninu og hlusta meira á konur,
gamalmenni og aumingja. En þetta
er auðvitað bara yfirvarp. Ég vona þó
að fólk taki því ekkert of bókstaflega
þótt ég segist ekki ætla að standa við
kosningaloforðin.“
Jón setur stefnuna á að
verða menntamálaráð-
herra.
„Flestir vinir mínir
eru að vinna í listum og menn-
ingu svo ég gæti haft áhrif á
það hverjir fá styrki og fálka-
orðu og hverjir fá að gera
þátt á RÚV. Auk þess hefur
mig lengi dreymt um að hafa
aðstoðarmann. Ég held að það
sé ógeðslega kúl.“
Jón safnar nú fólki í flokk-
inn af því hann vill ekki vera
einn í honum „eins og hálfviti“
og unnið er að því að setja upp
heimasíðu.
- drg
Jón Gnarr stofnar stjórnmálaflokk
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir hannar
skemmtilegar barnaflíkur undir
nafninu Sunbird. Sunna Dögg
útskrifaðist sem vöruhönnuður frá
Listaháskóla Íslands og starfar nú
sem fatahönnuður hjá Nikita.
Sunna Dögg segist hafa fengið
handavinnuna í arf frá móður sinni
og hefur saumað og prjónað frá því
hún var barn. Hún gerði sína fyrstu
barnafatalínu fyrir níu árum en
hefur síðan þá aðallega verið að
hanna flíkur á lítil frændsystkini.
„Þessi hugmynd hefur blundað í mér
lengi. Ég gerði eina litla barnalínu
fyrir tæpum níu árum og hef síðan
þá mest verið að hanna á frændsyst-
kini mín. Ég held að þessi hugmynd
hafi fyrst kviknað þegar mamma
mín minntist á hversu lítið úrval af
fötum væri fyrir litla stráka miðað
við úrvalið sem var til fyrir stelpur.
Þá fór ég af stað og hannaði nokkrar
flíkur á stráka,“ segir Sunna Dögg
og bætir við að eftir hún eignaðist
sjálf litla stúlku hafi hún þó farið að
hanna stúlkuföt í meira magni.
„Ég fæ auðvitað endalausan inn-
blástur frá dóttur minni. Mér finnst
gaman að fylgjast með börnum og
sjá hvernig þau hreyfa sig algjör-
lega ómeðvituð um stund og stað. Ég
passa að fötin hefti hvergi hreyfi-
getu þeirra og að það sé mikill leik-
ur í flíkunum.“
Sunbird-vörurnar er hægt að
skoða á vefsíðunni www.sunbird-
kids.com og á Facebook-síðu Sun-
bird. - sm
Fékk handavinnuna í arf
DREYMIR UM AÐ HAFA AÐSTOÐ-
ARMANN Vinir Jóns Gnarr geta
hugsað sér til gott til glóðar-
innar komist hann á þing.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
SUNBIRD Sunna Dögg
Ásgeirsdóttir hannar flíkur á
litlar telpur og drengi.
Glerlistaverk eftir listamanninn
Leif Breiðfjörð mun prýða forstofu
innan við aðalinngang St. Giles
dómkirkjunnar í Edinborg.
Þetta er í annað sinn sem Leifur
vinnur verk fyrir kirkjuna, en áður
hafði hann gert glugga sem tileink-
aður er minningu skáldsins Roberts
Burn. Málmsmiðjan Teknís sér um
uppsetningu verksins og hefjast
framkvæmdir í næstu viku.
„Það er verið að endurnýja kirkj-
una og Leifur var fenginn til að
skreyta sérstaka forstofu sem er
innan við aðalinngang kirkjunnar.
Leifur kom til okkar í Teknís og
bað okkur að gefa prufustykki sem
hann fór svo með út til Edinborg-
ar, fyrirtækið var svo valið til að
sjá um framleiðslu og uppsetningu
verksins í kjölfarið. Undirbúningur
að verkinu hefur staðið yfir síðan
sumarið 2007 en framleiðslan sjálf
hófst ekki fyrr en nú í sumar,“ segir
Jón Þór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Teknís.
Tveir starfsmenn fyrirtækisins
munu svo fara út til Edinborgar í
næstu viku og setja verkið upp.
Aðspurður segir Jón Þór þetta vera
nokkuð óvanalegt verkefni og það
sé sjaldan sem málmsmiðjan taki
þátt í uppsetningu listaverks. „Jú,
þetta er vissulega svolítið óvenju-
legt verkefni. Tæknilega séð er
þetta lítið mál en það að við skul-
um vera að smíða heilt listaverk er
óvenjulegt. Það er skemmtilegt að
hugsa til þess að verk eftir okkur
muni standa í kirkjunni til framtíð-
ar og að lógóið okkar leynist ein-
hvers staðar í horninu,“ segir hann
og hlær.
Reiknað er með að starfsmenn
Teknís dvelji í viku í Edinborg við
uppsetningu verksins. - sm
JÓN ÞÓR SIGURÐSSON: „VISSULEGA ÓVENJULEGT VERKEFNI“
Íslenskt listaverk í St. Giles
dómkirkjunni í Edinborg
Tvíeykið Jógvan og Friðrik Ómar
kom fram í salnum í Kópavogi á
föstudaginn og flutti íslenskar og
færeyskar dægurlagaperlur. Tónleik-
arnir mæltust mjög vel fyrir, enda
drengirnir annálaðir sjarmörar og
gullbarkar. Eftir tónleikana
skelltu þeir sér í Turninn
þar sem Yesmine Olsen
var með síðustu Bolly-
wood-sýninguna í bili.
Voru miklir fagnaðarfundir
þegar þau hittust enda góðir
félagar á ferð.
Lið Verslunarskólans
sigraði stjörnum prýtt „All star“-lið í
góðgerðaleik í fótbolta á laugardag.
Ingó Veðurguð, fyrirliði stjarnanna,
var búinn að lýsa því yfir að það yrði
hneyksli að tapa svo að hann hefur
án efa lesið yfir sínum mönnum eftir
leikinn, sem endaði 7-3. Útvarps-
maðurinn Gassi, af FM 957, hefur
örugglega fengið hárblásarameðferð-
ina víðfrægu frá Ingó, en hann skor-
aði sjálfsmark í leiknum. Fótbolta-
kapparnir Björgólfur Takefusa og
Tryggvi Guðmundsson skoruðu mörk
stjarnanna og vöðvatröllið Gasman
átti góða stoðsendingu.
Viðtal við athafnakonuna og fyrir-
sætuna Ásdísi Rán birtist á vefsíðu
karlatímaritsins Playboy um helgina.
Spurningarnar eru ansi nærgöngul-
ar, en Ásdís upplýsir meðal annars
hversu margar fullnægingar hún
hefur fengið á einni nóttu. Átta er
metið og hún bætir við að hún sé
heppin stúlka. Þá segist
hún kalla brjóstin sín
fótboltana og lofar að
ef hún myndi sitja fyrir í
Playboy yrði fólk gagn-
tekið af myndunum. - afb
FÓLK Í FRÉTTUM
ÓVENJULEGT VERK
Jón Þór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Teknís, segir þetta nokkuð
óvenjulegt verk fyrir málmsmiðju.
Á neðstu myndinni sést listamað-
urinn Leifur Breiðfjörð virða verkið
fyrir sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANOTN BRINK