Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 8
8 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR
! "
!
#$ %
& '(
)
*+ +)
%
,)
$
-. +)
/ ) -
0
*+)1 23 1 4
+)1 5
.) 6
.
)7
!!
8 .
+. )
+/ )
4 & + ! "
!
+ )#$ !! %%%" " &"'(
)!$ * "
/ ) 4 +9:
;9<(=3
4
>>(?(((9*@>>(?(<(9AAA/49/4B/4
#+,'-#.,.'#/0.
! "
!3 C4$D +EF((;
! 0 4 ,C4$ +EF((>
/43 #$-2 ) ! "
!
1'#,0/0#
23.-.45..-23.-.,56-
Startarar og
alternatorar
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
tók fyrir helgi þýfi að andvirði
þrjár milljónir króna við húsleit
í miðbæ Hafnarfjarðar. Meðan
á húsleitinni stóð hafði lögregla
afskipti af tveimur piltum um tví-
tugt. Við leit á þeim fannst kókaín
sem annar piltanna viðurkenndi
að hafa verið ætlað sem gjaldmið-
ill fyrir kaup á stolnum rafmagns-
gítar.
Húsráðandi, maður um fimm-
tugt, var handtekinn í húsleit-
inni. Við húsleitina fundust
meðal annars fimmtán grömm
af amfet amíni og fimm grömm
af maríjúana. Þá hafði lögregl-
an uppi á eiganda að verðmæt-
um Fender Stratocaster-gítar frá
áttunda áratugnum, sem fannst í
húsnæðinu, en hann er um einnar
milljónar króna virði.
Fíkniefnadeild lögreglunnar:
Fann milljón
króna Fender-
rafmagnsgítar
1 Hvaða aðferð er verið að
þróa til að lækna eyrnabólgu í
börnum?
2 Í hvaða sæti eru íslenskar
konur á fegurðarskala Beauti-
fulpeople.com?
3 Hvað er langt síðan Berlínar-
múrinn féll?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
VIÐSKIPTI Félagið Magma Energy
tapaði 2,7 milljónum dollara á
fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma
fyrir ári tapaði fyrirtækið rúm-
lega átta hundruð þúsund dollur-
um. Magma Energy á meðal ann-
ars hlut í HS orku á Suðurnesjum.
Félagið seldi orku fyrir milljón
dollara á fyrsta ársfjórðungi
en félagið var ekki með neinar
rekstrartekjur á síðasta ári.
Í viðtali við Oilweek segir Ross
Beaty, stjórnarformaður Magma,
að félagið hafi vaxið talsvert á
árinu. Meðal annars í gegnum
fjárfestingar sínar hér á landi, í
Bandaríkjunum og Suður Amer-
íku.
Magma Energy:
Tapaði 2,7 millj-
ónum dollara
FUNDUR „Ég held að allir sem voru
í Höllinni hafi gert sér grein fyrir
því að þau voru að upplifa einstak-
an atburð,“ segir Maríanna Frið-
jónsdóttir, einn aðstandenda Þjóð-
fundar um framtíð Íslendinga sem
haldinn var í Laugardalshöllinni á
laugardag.
Skráðir fundargestir voru 1.231
talsins. Um þrjú hundruð þeirra
voru handvaldir á fundinn, meðal
annarra stjórnmálamenn og verka-
lýðsforkólfar. Afgangurinn var
valinn með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Um þrjú hundruð sjálfboða-
liðar unnu að tæknimálum, upplýs-
ingamiðlun og fleiru. Alls voru 53
prósent fundargesta karlmenn en
47 prósent þeirra konur. Um 3.500
manns fóru inn á vefsíðuna thjod-
fundur2009.is til að horfa á beina
útsendingu frá þjóðfundinum
Yfirlýst markmið fundarins var
að fjalla um framtíðarsýn fyrir
íslenskt samfélag og þau gildi
sem þjóðin ætti að hafa að leið-
arljósi. Heiðarleiki varð efstur á
blaði. Í kjölfarið fylgdu jafnrétti,
virðing og réttlæti. Unnið var í 162
hópum.
Í aðdragandanum var því lýst
yfir á heimasíðu fundarins að í
kjölfar hans yrði ráðist í markviss-
ar aðgerðir sem byggja myndu á
niðurstöðum fundarins. Marí-
anna segist ekki vilja tala um nið-
urstöður á stigi málsins. „Þetta er
einungis fyrsta umferð. Nú þegar
hefur heilmikill gagnagrunnur,
sem inniheldur meginstoðir og
gildi, verið inni á heimasíðu fund-
arins og á næstunni bætist heil-
mikið við. Þessi gagnagrunnur er
þjóðargjöf, hver sem er getur farið
þar inn og skoðað hann.“
Maríanna segir að grasrótin
sem setti fundinn í gang geti ekki
ein og sér ráðist í aðgerðir. „Hins
vegar vonumst við til þess að sú
lína sem birtist í þessum gögnum
frá fundinum verði höfð til hlið-
sjónar þegar taka þarf ákvarðan-
ir. Vilja ráðamenn ganga þvert á
vilja Þjóðfundar?“ segir Maríanna
Friðjónsdóttir.
kjartan@frettabladid.is
Heiðarleiki
verði hafður
að leiðarljósi
Rúmlega 1.200 gestir sóttu Þjóðfund um framtíð
Íslands í Laugardalshöllinni. Heiðarleiki varð efstur
á blaði yfir gildi sem þjóðin á að hafa að leiðarljósi.
ÞJÓÐFUNDUR Unnið var í 162 hópum sem allir skiluðu af sér tillögum um framtíðar-
sýn fyrir íslenskt samfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUFRÉTTIR Alls þurfa 122 ökumenn að
greiða stöðubrotsgjald eftir að hafa lagt ólöglega í
nágrenni Laugardalshallarinnar á laugardag þegar
Þjóðfundurinn fór þar fram. Stöðubrotsgjald nemur
2.500 krónum , en afsláttur er gefinn af þeirri upp-
hæð ef gjaldið er greitt innan þriggja daga. Gjaldið
rennur í Bílastæðasjóð.
Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðar-
deildar, segir að talsvert hafi borist af kvörtunum
vegna þessa á laugardag. „Það eru hvorki efni né
ástæður fyrir þessum kvörtunum. Þeir sem leggja
ólöglega þurfa að greiða stöðubrotsgjald, og gildir
þá einu hvort Þjóðfundur eða íþróttakappleikur á
sér stað í nágrenninu.“
Guðbrandur segir fleiri hundruð laus bílastæði
hafa verið í nágrenni Laugardalshallarinnar á laug-
ardag. Kvartanir hafi borist frá íbúum í Laugar-
dalnum vegna umgengni ökumanna á svæðinu. „Við
höfum verið að reyna að bæta ástandið í Laugar-
dalnum undanfarna mánuði. Þarna er nóg af bíla-
stæðum, til dæmis við hlið Laugardalslaugarinnar,
við Laugardalsvöllinn og hjá Húsdýragarðinum og
Skíðahöllinni, og því engin ástæða fyrir fólk til að
leggja ólöglega,“ segir Guðbrandur Sigurðsson. - kg
Aðalvarðstjóri segir hvorki efni né ástæðu til að kvarta yfir sektum í Laugardal:
Alls 122 sektaðir í Laugardal
STÖÐUBROT Aðalvarðstjóri segir fleiri hundruð bílastæði hafa
verið laus í nágrenninu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEISTU SVARIÐ?