Vikan - 01.11.1951, Blaðsíða 1
REGÍIMA ÞÓRÐARDÓTTIR leikkona.
Við birtum nú á forsíðunni mynd
af leikkonu, sem á undanförnum
árum hefur lagt drjúgan og góð-
an skerf til íslenzkrar leiklistar
með ágætum leik sínum í mörgum
hlutverkum í Keykjavík, á Akur-
eyri og í útvarpinu. íms þessara
hlutverka hafa verið mjög mikils-
verð, eins og t. d. Ragnheiður í
Skálholti og Linda Loman í Sölu-
maður deyr, svo að einhver þeirra,
sem eru í fersku minni, séu nefnd.
Regína er fæddi í Reykjavík 1906 og
eru foreldrar hennar Þórður Bjamason
frá Reykhólum og Hansína, kona hans,
fædd Linnet.
Regína lék strax á barnsaldri í smá-
leikjum innan Góðtemplarareglunnar.
Sumarið 1923 dvaldi hún í sveit, að Geita-
bergi í Svínadal, á heimili tilvonandi
tengdaforeldra sinna. Á bænum voru
margir kátir unglingar og æfðu þeir og
léku Happið eftir Pál Árdal, og lék
Regína Valgerði. Leikurinn var sýndur í
hlöðu við góða aðsókn — fólk af næstu
bæjum og úr dölunum í kring kom til að
sjá þessa nýlundu. Um sumarið var svo
haldin mikil skírnarveizla á næsta bæ, og
bað bóndinn þá ,,listafólkið“ um að koma
og skemmta gestunum með því að endur-
taka leikinn. Urðu leikararnir við þess-
ari ósk og léku þar í fjárhúsinu — sjálf-
um sér og áhorfendum til mestu ánægju.
Ekki telur Regína þó leikferil sinn
hefjast fyrr en sumarið 1932. Þá voru
þau hjónin, Bjami Bjamason læknir og
Regína, búsett á Akureyri, þegar Har-
aldur Björnsson kom með sjónleikinn
Jósafat eftir Einar H. Kvaran til Akur-
Ljósm.: Loftur.
Framhald á bls. 3.