Vikan - 10.01.1952, Side 13
VIKAN, nr. 2, 1952
13
Skelfingu lostinn starði lærisveinn galdramannsins á
það, sem hann hafði gert — ó, bara að hann hefði ekki
í heimsku sinni galdrað sópinn lifandi — hvað mundi
verða um hann, þegar galdramaðurinn kæmi heim og sæi
eyðilegginguna ?
1 örvilnan sinni greip hann öxina enn á ný og hjó og
hjó í blindni — en uh-ha, við hvert högg myndaðist einn
sópur enn — nýr sópur, sem þegar hélt af stað til að
sækja vatn í fötuna sína.
Niðri í kjallaranum var ös við brunninn — einn sópur-
inn tók við af öðrum endalaust, og það var varla nokkur
þurr blettur til í höllinni.
Upp og niður stigana — niður í kjallarann eftir vatni,
upp með það til að hella því í stóra kerið x eldhúsinu ó-
þreytandi sópar undu sér ekki nokkurrar hvildar.
Buffalo
Bill
Litla lestin fer yfir gras-
sléttuna og hefur ekki hug-
mynd um að Indíánarnir
liggja í leyni.
Sandy: Indíánarnir! Buf-
falo Bill: Ég átti von á því!
Bóndinn: Það er enn langt
til bæjar.
Sandy: Það er úti um okkur
Buffalo Bill.
Buffalo Bill: Þeim skal nú ekki
verða kápan úr því klæðinu.
Biblíumyndir
1. mynd: En Jetró prestur í
Midianslandi, tengdafaðir Móse,
heyrði allt það, sem Guð hafði gjört
Móse og lýð sínum í Israel, að Drott-
inn hafði leitt Israel út af Egypta-
landi, þá tók Jetró Zipporu konu
Móse — hafði hann sent hana aftur
— og tvo sonu hennar.
2. mynd: Daginn eftir settist Móse
til að mæla lýðnum lögskil, og stóð
fólkið frammi fyrir Móse frá morgni
til kvelds. Þá sagði tengdafaðir Móse
við hann: Eigi er það gott, sem þú
gjörir . . . Þetta starf er þér um
megn; þú fær því ekki afkastað einn
saman . . . . og þú skalt velja með-
al fólksins dugandi menn og guð-
hrædda, áreiðanlega menn og ósér-
plægna, og skipa þá foringja yfir
lýðinn .... Öll hin stærri mál skulu
þeir láta koma fyrir þig, en sjálfir
skulu þeir dæma í öllum smærri
málum.
3. mynd: Gekk Móse þá upp til
Guðs, og kallaði Drottinn til hans af
fjallinu og sagði: Svo skalt þú segja
Jakobs niðjum og kunngjöra ísraels-
mönnum: Þér hafið sjálfir séð, hvað
ég hef gjört Egyptum . . . Nú ef þér
hlýðið minni röddu . . . þá skuluð þér
vera mín eiginleg eign um fram allar
þjóðir . . . Og Móse fór . . . og flutti
þeim öll þau orð, er Drottinn hafði
boðið honum. Þá svaraði allur lýð-
urinn einum munni og sagði: Vér
viljum gjöra allt það, sem Drottinn
býður.
4. mynd: En á þriðja degi, þegar
ljóst var orðið, gengur reiðarþrum-
ur og eldingar og þykkt ský lá á
fjallinu og heyrðist mjög sterkur
lúðurþytur. Skelfdist þá allt fólkið
sem var í búðunum . . . Þeir sögðu
þá við Móse: Tala þú við oss og vér
skulum hlýða.
Úr ýmsum áttum —
Menn meta mikils þá, sem komast
fljótt áfram í heiminum; en sann-
leikurinn er sá, að ekkert lyftist auð-
veldlegar upp en ryk, strá og fjaðrir.
! ! !
Það er betra, að mennirnir hreki
þig frá sér, en að börnin forðist þig.
— (R. H. Dana).