Vikan


Vikan - 12.06.1952, Page 9

Vikan - 12.06.1952, Page 9
VIKAN, nr. 23, 1952 9 Námumennirnir Walter Yarosh (til hægri) og Charles Micklo (til vinstri) segja Phillip Melley, lögreglumanni frá reynslu sinni, eftir að þeir sluppu upp úr kolanámunni í Forrestville í Pensilvania. Fimm félagar þeirra drukknuðu, þegar vatn flóði inn í námu- göngin eftir sprengingu. Kvikmyndaleikarinn Alan Ladd og kona hans Sue Carol voru valin af verzlunarmönnum Hollywood „fyrirmyndarhjón ársins". Alan og Sue Ladd, sem eiga fjögur börn, sjást hér með tvö þeirra, Alana 8 ára og David 5 ára. Þau hafa verið gift 10 ár. Kvikmyndaleikkonan Lana Turner, sem hefir klæðzt lífstykki í nokkrar vikur, meðan hún leikur í kvikmynd nokkurri í Hollywood, segir: „Stundaglass-vöxtur var rétti vöxt- urinn fyrir stúlkur, sem vildu hafa aðdráttarafl fyrir spjátrunga.“ - Hér er mynd, tekin úr lofti, af afturhluta hins óheppna olíuskips „Fort Merker", þar sem það er dregið áleiðis til Rhode Island, með þrettán menn um borð. Fimm menn fórust þegar skipið brotn- aði um miðjuna í norð-austan stormi. Annað olíuskip, „Pendleton", hlaut svipuð örlög og fórust níu menn af því. Strandvarðskip björguðu hinum. Efst til hægri: Þrír af hinum þrettán sjómönnum, sem skildir voru eftir um borð, skála þegar þeir koma i höfn á Rhode Island.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.