Vikan


Vikan - 02.04.1953, Blaðsíða 12

Vikan - 02.04.1953, Blaðsíða 12
Nýi forstjórinn vissi hvað hann vildi. Sam vissi það líka, það var ... EINN GYLLTUR HNAPPUR ILL CORDAIR yngri, nýi forstjórinn fyrir Cordaire kápuverksmiðjunni, leit ásak- andi á skrifstofustjórann sinn. — Hvað er að þér, Davið? Ertu að missa kjarkinn? Þú ert þó búinn að segja mörgum upp um æfina. — Það er allt öðru máli að gegna með Sam. Hann er búinn að vinna hér í 22 ár. Ég er kannski of viðkvæmur, en þetta get ég ekki gert. Þú verður að segja honum það sjálfur. — Ég get ekki betur séð en að hann hafi okkur að ginningarfíflum. Ég hefi aldrei séð mann fara eins illa með tímann. — Sjáðu nú til, Bill er hluti af fyrir- tækinu. Hann er kannski dálítið smá- munasamur, en pabbi þinn þoldi hon- um það öll þessi ár og . . . — Hann hefur þolað honum það of lengi, greip Bill fram í. — Það er gott að reyna að reka fyrirtæki skynsam- lega og láta það gefa eitthvað af sér. Faðir hans hafði dregið sig í hlé fyrir þremur vikum og farið í ferðalag. Áður en hann fór, hafði hann sagt: — Bill, héðan í frá stjórnar þú fyrir- tækinu. Og Bill vissi að hann gat ekki stjórnað skynsamlega með starfsniönn- um eins og hnappamanninum Sam Hawk, sem fékk 80 dollara á viku fyrir verk, sem hver krakki gat gert, og eyddi auk þess tímanum í alls konar vitleysu. Þegar Bill kom inn til Sam var hann að tala í símann og hélt gylltum hnappi, sem hann var að lýsa, fyrir framan sig. — Hann er eins og hálfmáni í lag- inu og á honum er eitthvað í líkingu við útskorið auga og nef. Á litinn eins og gamalt gull. Já, við notuðum þá fyrir fjórum árum . . . Ertu viss um, að þeir hafi ekki verið frá þér? . . . Hver? Sheinrod? . . . Já, ég reyni að tala við hann. Sam lagði símtólið á. Hann var sköll- óttur. Hann gekk að fatahenginu og tók jakkann sinn. — Sam, ég þarf að tala við þig, sagði Bill Cordair. — Ekki núna, svaraði Sam. — Ég verð að finna einn svona hnapp. Paul- bræðurnir báðu um það. Hann leit á klukkuna, sem vantaði tíu mínútur í fimm. — Ég verð að komast til Shein- rod áður en þeir loka. Bill missti næstum stjórn á skapi sínu. Sam Hawk virtist kæra sig koll- óttan um, hver var húsbóndinn. — Hvað er hann búinn að vera lengi að reyna að finna hnappinn, spurði Bill einn af starfsmönnunum. Maðurinn brosti: — Síðan í morgun. Bill bölvaði. Cordair fyrirtækið not- aði aðeins sjaldgæfa hnappa á kápurn- ar sínar. Sumir kostuðu allt að einum dollara. Og þegar einhver kona týndi slíkum hnappi, leitaði hún til verzlun- arinnar, sem hafði selt henni kápuna, og hún sneri sér til Cordair fyrirtæk- l isins. Venjulega sendu þeir hnappinn l um hæl, — en að eyða heilum degi í i svoleiðis smámuni. Var ekki skynsam- | legra að senda hnappa á alla kápima? Bill grunaði Sam um að nota þetta sem átyllu til að slóra í verzlununum og spjalla við búðarmennina. Hann kipraði saman augun. Ef hann færi nú sjálf- ur til Sheinrods og kæmi að Sam, þar sem hann væri að slæpast. Þá hefði j hann góða og gilda ástæðu til að reka j hann. Þegar hann kom inn í verzlun Shein- rods, stóð Sam á tali við feitan mann úti í horni. Þeir voru að skoða hnapp- inn. — Joe, þú mátt til með að útvega einn, sagði Sam. — Paul-bræðurnir eru beztu og elztu viðskiptavinir okkar. — Hvað viltu að ég geri? Láti búa til einn hnapp ? nöldraði feiti maðurinn. — Ertu orðinn vitlaus, Sam? — Ég verð að fá hann. Og litaðu hann svo hann verði alveg eins og þessi. — Veiztu hvað það kostar? Það get- ur farið upp í fimm dollara. — Var ég að spyrja hvað það kost- aði? spurði Sam. — Joe, þú verður að útvega hnappinn. Bill Cordair ætlaði að grípa frammí. Þetta var blátt áfram hlægilegt. Hann þokaði sér nær þeim. Hann sá að hnappagerðarmaðurinn horfði undr- andi á Sam. — Heldurðu að það sé svona mikils virði? — Hvað heldurðu að Cordair fyrir- tækið sé? Ekki neitt? Við höfum fram- leitt kápur í 44 ár og við höldum enn fyrstu viðskiptavinunum okkar. Hvers vegna? Vegna þess að við erum sóma- kærir? Vegna þess að við erum alltaf reiðubúnir að hjálpa. — En fimm dollarar fyrir einn ein- / asta hnapp ... > — Það borgar sig. Vertu ekki að j deila við mig um þetta. Ég er búinn að j fást við þetta nógu lengi til að vita, hvenær það borgar sig að spara og hve- nær ekki. Hvenær verður hnappurinn til? Joe glotti: — Eftir tvo daga. EGAR Sam Hawk sneri sér ánægður við, kom hann auga á Bill. — Ertu að elta mig? spurði hann um leið og þeir gengu út úr búðinni. — Hvers vegna? Bill leit niður fyrir sig. Hann var að hugsa um álit Cordair fyrirtækis- ins . . . — Hvaða vitleysa er þetta? Bill fann til niðurlægingar sinnar, en samt hélt hann áfram: — Það . . . það sem ég ætlaði að segja, Sam, var þetta. Ég þarf á starfsmönnum eins og þér að halda fyrst ég er tekinn við. Ég vildi bara fullvissa mig um, að þú vildir vera kyrr . . . Það var allt og sumt. Sam leit forvitnislega á hann. Svo kýmdi hánn og sagði: — Mér hefur víst skjátlast, Bill. Ég sagði pabba þín- um áður en hann fór, að þú mundir aldrei verða maður á borð við hann. Rödd hans var nú orðin hlýleg og vin- gjarnleg. — Að hugsa sér, að þú skyld- ir elta mig alla leið til Sheinrods til að sjá um að ég fengi þennan eina hnapp. Það er alveg í anda föður þíns, drengur minn. berglnu, fataskápur, hægindastóll; og náttborð með brotinni marmaraplötu stóð hjá rúminu. Á plötunni var öskubakki, og i honum sígarettu- stubbur og þrjár hámálar. Það var þungt loft í herberginu, einhverskonar lygtasamband sem hún hafði aldrei fundið áður. Hún opnaði fataskáp- inn. Inni í honum hékk óhreinn sloppur og krumpaður vasaklútur ataður í varalit. Hún lok- aði skápnum aftur. Einhvernveginn tókst henni að draga legubekkinn fyrir dyrnar á herberginu, og ofan á hann setti hún hægindastólinn, svo þetta var eins og götuvirki. Síðan tók hún af sér hattinn og fór úr skónum, og er hún hafði enn einu sinni litið vel í kringum sig í herberg- inu, slökkti hún ljósið og lagðist út af í rúmið, með hendurnar spenntar fyrir aftan hnakkann. Þar sem hún lá þarna í öllum fötum uppi í rúmi á hótelherbergi í Marseille, varð Odette hugsað til fallega dalsins heima í Englandi, dals- ins hennar og dætra hennar. 1 kyrrð þessa kvölds hvarf hún hljóðlega til dætra sinna og sagði þeim að þær yrðu að vera góðar, en ef þær væru ekki góðar, þá gerði það samt ekkert til, svo framarlega sem þær þvæðu sér vel fyrir kvöldmatinn. Og hún heyrði hinar skæru raddir dætra sinna. En innan um þessar raddir fóru að blandast hurðaskellir og háværir hlátrar karlmannanna. Tunglið kastaði daufum geislum í gegnum rifurnar á gluggahlerum pútnahússins — og Odette minntist tjarnanna litlu, þar sem hún hafði svo oft leikið sér með dætrum sínum heima á Englandi. Hún hlaut að hafa blundað, því að allt i einu opnaði hún augun og sá þá í gegnum rifurnar á gluggahlerunum, að farið var að grána fyrir degi. Hún leit á úrið. Klukk- an var fimm minútur yfir sex. Hún geispaði og fór höndunum í gegnum hárið. Síðan þvoði hún sér og fór í skóna og leit á sjálfa sig í brotn- um speglinum. Andlit hennar var fölt og dálítið tekið, og henni fannst að hún gæti gefið aleigu sína fyrir gott bað. Hún dró legubekkinn og stólinn frá dyrunum eins hljóðlega og hún gat, opnaði þær og hlustaði. Húsið var þögult eins og gröfin. Hún leit einu sinni ennþá kringum sig í þessu hræðilega herbergi. Síðan setti hún á sig hattinn, tók tösku Raouls og læddist niður stigann. Odette til mikillar undrunar var svartklædda konan enn við borðið i anddyrinu. Hún leit um öxl á Odette, og sagði: ,J3onjour, Madame. Þér eruð mjög heppnar. Ég óska yður til hamingju." ,,Nú. Hvers vegna?“ „Vegna þess að klukkan þrjú í nótt kom hing- að hópur þýzkra herlögreglumanna til að leita að manni sem hafði strokið úr hernum. Það eru margir Þjóðverjar sem yfirgefa hinn elskaða Fiihrer sinn, og þáð er leitað að þeim í húsum eins og þessu.“ „Það kom enginn að mínu herbergi." „Eg veit það. Ég sagði liðsforingjanum, að frænka mín svæfi þar, og hún lægi í bólusótt." Svipur hennar varð hörkulegur. „En nú er bezt að þér farið.“ Odette gekk út á götuna. Morgunsólin ljómaði yfir borginni, og hún teygaði í sig svalt og tært loftið. Hún mætti lögregluþjóni og bauð honum glaðlega góðan daginn, og hann svaraði með syfjulegu brosi. Járnbrautarstöðin var full af fólki. Odette tók sér stöðu I biðröðinni við miða- söluna. Þegar hún var búin að kaupa miðann, fór hún inn í lestina, og var svo heppin að fá pláss úti í horni í einum vagninum. Hún var komin aftur á snyrtistofuna við Kanadastræti í Cannes fyrir hádegi. „Jæja,“ sagði Raoul. „Hvernig gekk?“ „Ágætlega. Ég skildi við vini okkar á bilaverk- stæðinu, náði í töskuna þína, og hitti Monsieur Vidal og annan mann sem er kallaður Bernard.“ „Fékkstu Vidal peningana ?“ „Já. En þá var orðið framorðið, og ég varð að finna einhvern stað til að sofa á.“ Hún tal- aði af mjög svo yfirdrifnu kæruleysi. „Það end- Framhald á bls. 14. 12

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.