Vikan


Vikan - 12.11.1953, Qupperneq 2

Vikan - 12.11.1953, Qupperneq 2
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365. 2 Þ \i) er ekki oft, sem konur eru kosnar í mestu virðingarscoöur heimsins, hvað sem því veldur. En hér er ein kona, sem gegnir slíku embætti: frú Vijaya Lakshmi Pandit, forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Frú Pandit hefur margt reynt um dagana, meðal annars setið þrisvegis í fangelsi hjá Bretum. Það var á dögum Gandhis, þegar Indverjar börðust fyrir sjálfstæði sínu. Hún er dóttir efnaðs lögfræðings og systir Nehru forsætisráðherra. Hún stundaði nám í Englandi, Svisslandi og Indlandi og giítist 21 árs. Hún á þrjár giftar dætur og nokkur barnabörn. Á alisherjarþinginu þykir hún stjórna skörulega; þar kemst enginn fulltrúi upp með það lengi að fara ekki að fimdarsköpum. Nokkrum sinnum hefur hún orðið að nota funda- hamarinn óblíðlega, og einu sinni greip hún til þess ráðs að láta taka hljóðnema ræðumanns úr sambandi. Það var þegar Vishinsky gleymdi sér og hélt áfram að tala af miklum vígamóð, eftir að frú Pandit var búin að taka af hönumi orðið. Annars gætir liún að sjálf- sögðu strangasta hlutleysis í fundarstjórn sinni, og er það í anda við hlutleysisstefnu Indlands. Hún er líka vel þokkuð hjá Sameinuðu þjóðunum og á þar marga góða vini, „austræna“ og „vestræna". I>ö getur hún verið orðhvöss, þegar svo ber undir, og slceytir þá ekkert um, hver hlut á að máli. Á myndinni er liún með aðalritara S.Þ. ÞAH eru skiptar skoðanir mn það, hvort það sé nokkuð gaman að vera prins. Þessi prins, sem hér er á myndinni, hlýtur þó að hafa haft það skemmtilegt að undanförnu, því hann hefur verið á ferðalagi um allan heiminn. Það er hans konunglega hátign Akihito, krónprins í Japan. í Bandaríkjunum kom Iiann við í Hollywood (eins og Iög gera ráð fyrir), þar sem kvikmyndakóngarnir buðu honum til mikillar veizlu. Yfir 300 gestir sátu veizluna, þeirra á meðal „stjarn- an“ Ann Blyth, sem hér sést á tali við krónprinsinn. Pósturinn Viltu gjöra svo vel og birta fyrir mig textann „Hið unga vor“, eftir Stefán Foster. Dilla. Svar: Textinn, sem þú biður um, er eftir Jón frá Ljárskógum við lag Stephen Fosters (My old Kentucky home). Jón kallar það Morgunsöng. Hið unga vor yfir austurfjöllum skín, það ilmar og hljómar í blæ! Til fjallsins liggja nú fótspor mín og þín, meðan fólkið sefur enn í bæ. Við göngum hljótt, því við hlýðum á þann söng, sem hljómar í blænum svo kátt, — í morgundýrðinni’ er leiðin ekki löng við þann létta, glaða hörpuslátt. Heyrðu hjartans vina, nú hlæja augun þín! Skærri en himinljós, fegri’ en vorsins vænsta rós, ert þú, vona minna dís, ástin mín! Geturðu gefið mér heimilisfang- Doris Day og sagt mér eitthvað um hana. Sigga. Svar: Utanáskrift Doris Day mun vera Columbia Film Studios, Holly- wood, California. Við höfum áður byrt helztu æfiatriði hennar. Doris er einhver vinsælasta dægurlagasöng- kona Bandaríkjanna, en það er geysi- mikill munur á beztu og lélegustu'' plötunum sem hún hefur sungið inn á. Það liggui' grunur á því, að Col- umbia vilji nota vinsældir hennar út í ystu æsar og kæri sig stundum kollótt, þó þeir láti hana syngja lög, sem ekki henta henni. Það er bæði leiðinlegt fyrir Doris og okkur, sem viljum hlusta á hana, þegar hún er allra bezt.' MUNIÐ NDRA MAGASIN Húsmæður Royal lyftiduft tryggir yður öruggan bakstur. Pökkun: l/z lbs. 1 Ibs. og 10 lbs. HEILDSÖLUBIRGÐIR: Agnar Lúðvígsson Hafnarstræti 8. — Sími 213Jf.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.