Vikan


Vikan - 12.11.1953, Blaðsíða 22

Vikan - 12.11.1953, Blaðsíða 22
BÍÓ-CAFÉ KEFLAVÍK ALLSKONAR VEITINGAR: Heitur matur og sérréttir allan daginn. Smurbrauð. Kaffi. ÖL Gosdrykkir. Sígarettur. Sælgæti o. fl. Önnumst einnig veislur matar-og kaffisamsæti I síðasta blaði birtist rangt myndamót með skýringatextanum. Við biðjum afsökunar og birtum hér textann aftur — með hinu rétta myndamóti. 693. KROSSGÁTA VIKUNNAR Lárétt skýring: 1 hönd — 4 skelfiskur ■— 8 gamall — 12 ana — 13 blað — 14 bókstaf- ur — 15 lima — 16 kven- maður — 18 litur — 20 upphrópun — 21 við- kvæm — 23 loka — 24 gylta — 26 herfang Ja- sonar — 30 klak — 32 strjúka — 33 nam staðar — 34 Ásynja — 36 tíma- rit — 38 bognaði — 40 spil — 41 deilur — 42 hýrnar — 46 gerist kyrr- stætt — 49 for — 50 á litinn — 51 flokkur — 52 keyra —. 53 hermerki — 57 ávöxtur — 58 ill- menni — 59 höfuðborg — 62 arabiskur höfðingi — 64 sjófugl — 66 gælu- nafn, þf. — 68 svipuð — 69 fallvatn — 70 fa.g — 71 heyleifar — 72 sorp — 73 fara undir vatn — 74 veiðarfæri, þf. Lóðrétt skýring: 1 lækur — 2 væta — 3 fara í kaf — 4 amboð — 5 hvirflar — 6 klækir — 7 skyndmenni — 9 rándýr — 10 farvegur — 11 hestsnafn — 17 tölu — 19 farvegur — 20 sjón — 22 sjúkdómur — 24 smiðir — 25 kvenmannsnafn — 27 þreyta — 28 hreyfist — 29 ungviði — 30 verksmiðja — 31 hljóðfæri — 34 sanka — 35 vitleysa — 37 sit hest — 39 rógur — 43 handsápa — 44 forskeyti — 45 fuglstegund — 46 listamaður — 47 söngur — 48 gróða — 53 lyftiefni — 54 hljóðfæri — 55 kreik — 56 húð — 57 sverta — 60 Arabi — 61 launráð — 63 fangamark félags — 64 hrós — 65 hreyfast — 67 skemmd. \ Bókabúð Keflavíkur er daglega í leiðinni. En síminn er 102 Dr. Crippen Framhald af bls. 18. and þeirra auk þess að hafa verið á hvers manns vitorði, einnig frú Crippens. Þetta er þýðingarmikið atriði. Allir voru á einu máli um, að Ethel Le Neve væri viðkvæm stúlka, feimin og prúð, og vekti samúð hvar sem hún kæmi. Hún var, í stuttu máli sagt, eins ólík frú Crippen og hægt var að vera. Astin gerir fólk blint i nokkurn tíma, en ekki endalaust, og undir lok ársins 1909, eða í byrjun árs 1910, rann það loks upp fyrir Ethel Le Neve, að að- staða hennar var að verða vonlaus. Það, sem næst gerðist, var atvik, sem í frá- sögnum af glæpnum hefur verið lögð miklu minni áherzla á en ástæða er til. Því að það hefur geysimikla þýðingu. Og réttast að láta konu þá, frú Jackson, sem Ethel leigði hjá, segja frá því atviki. Frú Jackson hafði verið sérstak- ur trúnaðarvinur stúlkunnar síðan 1908. „Eg var oft vön að fara upp í herbergið til ungfrú Le Neve og rabba við hana. Síðari hluta janúar-mánaðar tók ég eftir því, að hún var orð- in breytt í háttum. Hún varð með hverjum deg- inum þunglyndari. Eitt kvöldið, þegar hún kom heim, virtist hún óvenjulega þreytt, og öll eitt- hvað svo undarleg. Hún fór upp í herbergið sitt án þess að borða kvöldverð. Ég fór inn í her- bergið á eftir henni. Ég sá að hún skalf frá hvirfli til ilja. Ég spurði hana, hvað væri að, en hún virtist ekki hafa mátt til að tala. Ég spurði hana aftur, og hún sagðist þá verða orðin góð á morgun. Hún lagðist út af á rúmið, og ég sat hjá henni, þangað til ég taldi víst að hún væri sofnuð. Þá var klukkan orðin um 2 um nóttina. Næsta morgun, milli 8 og 9, færði ég henni te- sopa í rúmið. Næst þegar ég sá hana, var klukk- an farin að ganga 10. Þá var hún búin að klæða sig, og tilbúin að fara í vinnuna. Hún hafði aðeins borðað eina brauðsneið. Hún reyndi að borða, en gat það ekki. Hún virtist vera mjög veik, og titraði. Hún tók upp bolla td tei, og reyndi að drekka það, en gat það ekki. Ég sagði við hana: „Það gengur ekki, að þú farir svona veik í vinnuna. Ég skal segja þeim þarna í Albion House, að þú getir ekki komið í vinnuna í dag.“ Hún sagði: „Viltu þá vera svo góð að hringja í lækninn fyrir mig?“ Ég hringdi þang- að, og fór síðan aftur til ungfrú Le Neve, og sagði að hún yrði að segja mér hvað væri að. Ég sagðist vera viss um, að eitthvað hræðilegt hvíldi á huga hennar, og ef hún ekki tryði ein- hverjum fyrir því, þá mundi hún missa vitið. Hún sagði: „Ég skal segja þér alla söguna rétt strax.“ Uppgjör um miðnœtti Framhald af bls. 11. flækzt saman ofan í jöðinni og krónurnar gróið saman. Það var ekki hægt að skilja þau að, án þess að eyðileggja þau. Og hann, sem hafði verið að því kominn að hegða sér eins og gamall asni — en hvað fólk hefði gert mikið gys að honum — 56 ára gamall — stúlkan var yngri en dóttir hans . . . — Um hvað ertu að hugsa? spurði hún var- lega. — Um að ég sé að verða viðkvæm gömul kona? — Ég var ekki að hugsa um — neitt sérstakt, svaraði hann. Hún brosti kærleiksríku brosi. Hún vissi, að hann sagði ekki satt, en lét það gott heita. Hann var svo hreykinn að þessum undan- brögðum sínum. En hann hélt enn um handlegg hennar. — Heyrðu, sagði hann svo næstum vesældarlega. — Finnst þér alveg óþolandi að vera gift mér — einstöku sinnum, á ég við? Hún leit á hann þessum gáfulegu augum og brosti: — Nei það finnst mér aldrei. Skömmu seinna var hann sofnaður, en hún hélt áfram að sitja eins og hún hafði alltaf gert, þegar hún var ung stúlka. En hvað hann gat verið barnalegur, hugsaði hún með viðkvæmni, alveg eins og lítill drengúr — það var víst þess- vegna, sem hún elskaði hann enn. Svör við „Veiztu — ?“ á bls. 7: 1. Kvikmyndaleikkonan Betty Grable. 2. Balearísku eyjarnar út af austurströnd Spánar. 3. 1786. 4. Já, kakóbaunir. 5. a) Eggert Ólafsson b) Sigvalda Kaldalóns. 6. a) 50 b) 500 c) 1,000. 7. Lyktarfærin. 8. Kornið. 9. The New York Daily News. 10. a) Beethoven b) Andersen. 22

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.