Vikan - 06.01.1955, Blaðsíða 9
Kvikmyndadis á 20. öld
Svipmynd
ÚN er 26 ára gömul.
Um uppruna hennar er lítið vitað.
Hollywood vissi ekki, að hún var til, fyrr
en þennan dag fyrir sex árum, þegar hún
kynntist Charles Reshevsky á föstudegi
og giftist honum daginn eftir. Enginn veit
hvaðan hin tólf ára gamla dóttir hennar
er komin.
Hún var fljót að komast upp á tindinn,
þegar þetta byrjaði á annað borð. Tveimur
dögum eftir að húii kom til Hollywood,
tókst náinn kunningsskapur með henni og
Henry Gold. Hann leigði handa henni
hús hálfa mílu frá hinu húsinu, þar sem
bjó konan hans og börn.
Þær urðu talsverðar vinkonur hún og
frú Gold, og oft var hún gestur hennar
dögum saman. Það fannst Gold alveg fyrir-
tak, því honum var meinilla við að fara
út eftir kvöldmat.
Hann lét hana fá aðalhlutverfcið í tutt-
ugu milljón króna stórmynd um lífið við
frönsku hirðina. Gold, sem var snjall kvik-
myndastjóri á sínum tíma, vissi að hún
hafði alls enga leikgáfu. Hann lét allt
snúast um munninn á henni, augun og
kinnbeinin.
Hann kenndi henni að renna augunum
til himins og túlka á þann hátt sakleysi
og göfuglyndi; og að skáskjóta augunum,
þegar kvikmyndahandritið heimtaði flærð
og skapofsa. Þegar myndin var frumsýnd,
kölluðu gagnrýnendurnir hana merkustu
stjörnuna síðan Garbo var og hét.
Tveimur árum síðar byrjuðu gagnrýn-
endurnir að átta sig á þessu með augun,
svo að Gold tók sig til og kenndi henni
að hreyfa aldrei augun. Hann lét hana ein-
ungis horfa beint fram fyrir sig. f stað
þess að gjóta augunum til hægri eða
vinstri, lét hann hana snúa öllu höfðinu.
Þegar þau notuðu þetta leikbragð í
fyrsta skipti, ærðust gagnrýnendurnir og
Skáskýtur augunum — skapofsi
kölluðu hana „lístakonu". Einn þeirra
skrifaði: „Hún hefur sannað í eitt skipti
fyrir öll, að leikgáfa hennar á sér engin
takmörk."
Flestir ætla að hún sé af ítölsku bergi
brptin. Það er vegna hinna fögru augna,
hins tinnusvarta hárs, hins snjóhvíta hör-
unds, háu kinnbeinanna.
Hér gætir þó vægast sagt nokkurs mis-
skilnings. Hún er nefnilega írsk. Holly-
wood veit ekki, að hún hefur foreldra og
tvær systur á framfæri sínu. Hún strauk
að heiman þegar hún var fjórtán ára.
Það var vegna föður hennar. Og hann
er samur við sig enn þann dag í dag.
Þegar gesti ber að garði á heimili for-
eldra hennar, er gamla manninum fengin
flaska af rommi og svo er hann læstur
niðri í kjallara. Yngri systurnar tvær hafa
ekki hugmynd um skyldleika þeirra og
kvikmyndastjörnunnar; móðir hennar hef-
ur verið sagt, að ef hún steinþegi ekki
yfir því, verði hinar mánaðarlegu peninga-
sendingar tafarlaust stöðvaðar.
Augim til himins — sakleysi
Hollywood veit ekki, að hún hefur unn-
ið í saumastofu, vísað til sætis í kvik-
myndahúsi, verið þjónustustúlka í kaffi-
húsi, stjórnað lyftu í gistihúsi og sýnt loð-
kápur í tízkuverzlun. Það var þá sem hún
ákvað að verða leikkona.
Þegar hún á annað borð var búin að
taka ákvö'rðunina, sneri hún sér að þessu í
fullri alvöru. Hún kynntist Reshevsky,
þegar einn af viðskiptavinum tízkuverzl-
unarinnar bauð henni í E1 Morocco, nætur-
klúbbinn fræga. Hún komst að því, að
Reshevsky var mikill áhrifamaður í kvik-
myndabænum. Daginn eftir giftust þau.
Hvað dóttur hennar viðvíkur, þá hefur
hún svarið á reiðum höndum, ef einhver
gerist svo djarfur að spyrja um faðernið.
Hún horfir dapurlega í gaupnir sér.
„Fyrsti maðurinn minn,“ segir hún, „var
orustuf lugmaður. ‘ ‘
Svo , lyftast augnalokin undurhægt;
augnaráðið, sem mætir hinum forvitna
spyrjanda, ber vott um svo djúpa þjáningu,
að hann hreyfir ekki málinu upp frá því.
Orustuflugmaðurinn hennar gaf líf sitt
fyrir föðurlandið; hún þolir ekki að tala
um hann; ást þeirra var fullkomin.
Allt þetta má lesa úr hinum undurfögru
augum hennar.
Sannleikurinn er hinsvegar sá, að hún
hefur veigamikla ástæðu til að halda fað-
erni dóttur sinnar leyndu. Hún veit ekki
sjálf hver pabbinn er.
Hún á 127 hatta, 60 pör af skóm, þrjá
bíla og gríðarstórt hús.
Hún borgar slungnum kaupsýslumanni
þóknun fyrir að sjá um fjárreiður hennar,
og hann skammtar henni 25 dali á viku
í vasapeninga. En auðvitað getur hún látið
skrifa hjá sér í öllum helstu verzlununum
í Hollywood og Los Angeles. Kaupsýslu-
maðurinn er alltaf að stagast á, að hún
sé of eyðslusöm og komist á vonarvöl með
sama áframhaldi, en bæði vita þau mætá-
vel, að ef hún heldur sömu launum í þrjú
ár enn, þarf hún áreiðanlega ekki að hafa
áhyggjur af framtíðinni.
Það má teljast laglega af sér vikið, ef
henni tekst að tolla á stjörnuhimninum
þrjú ár enn, en henni mun takast það.
„Meðallíf“ kvikmyndastjörnunnar er að-
eins um þrjú ár. En að þremur árum liðn-
um, verður kvikmyndadísin okkar búin að
endast í hvorki meira né minna en níu ár.
Hún hefur frá upphafi verið vinsæl
stjarna , þótt myndirnar hennar séu jafn-
vel verri en gengur og gerist. Hún er enn
eitt dæmi þess, að á kvikmyndatjaldinu
er fagurt andlit meira virði en sönn list.
Það er mjög í tízku að draga dár af
kvikmyndunum hennar, en þótt merki-
legt megi virðast, gera mjög fáir gys að
henni sjálfri. Hún er gædd þeim sjaldgæfa
eiginleika — er það munnurinn, augna-
tillitið, kinnbeinin? — að geta vakið að-
dáun og hrifningu alveg fyrirhafnarlaust.
Þegar hún birtist á sýningartjaldinu eða
gengur inn í herbergi, þá er það hún, sem
allt snýst um.
Það er sama hvert hún fer: menn mæna
á hana eins og vitfirringar. Fyrir tveim-
ur árum, skar bóndagarmur í Oklahoma
sig háls og ánafnaði henni öllu sínu jarð-
neska góssi.
Hún er kvikmyndastjarna.
— SIDNEY CARROLL.
Gleðilegt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
MATA H.F.
Sími 80935.
Gleðilegt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Almenna byggingarfélagið h.f.
Gleðilegt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
Timburverzlun Árna Jónssonar.
Gleðilegt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu.
PLÚTÓ H.F.
Skipholt 25. Sími 82^11.
7