Vikan


Vikan - 26.01.1956, Side 11

Vikan - 26.01.1956, Side 11
Eisií kiikijDdajOniOiirini er í slööugri m Sheila Sim í Afríku Aníhony Steel á siglingu með innfæddum ÞRJÚ SVlMISHORIM Glynis John: „Ástleitin stúlka með sporð‘ Hafmeyjan er komin í karlmannsfang XJÉR gefur að líta sýnishorn úr þrem- ur nýjum eða nýleg- um myndum frá Eng- landi. Reykvískir áhugamenn um kvik- myndir munu hafa gaman af að frétta, að þær eru allar komnar hingað til lands á vegum Tjarn- arbíós. Ensku titlamir eru: Mad About Men, The Seekers og West of Zanzibar. — Tvær — Zanzibar og The Seekers — eru ó- sviknar ævintýra- myndir og teknar í sinnhvorri heimsálf- unni. Hin fyrmefnda gerist í Afríku og mun (meðal annars) vera áhrifamikil lýsing á háttum manna og dýra þar um slóðir. Hin síðarnefnda er frumbyggjamynd frá Nýja-Sjálandi og gerist kringum 1820. Hún f jallar (með- frumbyggjanna og þeirra innfæddu. Mad og nýstárleg gamanmynd. Glynis John, Jack Hawkins „kringum 1820“ Hetjan í „Zansibar“ al annars) um átök About Men er hinsvegar ósvikin Aðalpersónan er sumsé hafmey. Þá sporðfríðu drós leikur Glynis John, hin skemmtilega og snjalla leikkona. Hún leikur raunar annað aðalhlutverkið í The Seekers, en Jack Hawkins fer með hetjuhlutverkið. Þessar þrjár bresku myndir eru út af fyrir sig góð sönnun þess, hve margvísleg þau eru viðfangsefnin, sem breskir kvik- myndaframleiðendur nú glíma við. Er hægt að hugsa sér öllu „breiðari starfsgrundvöll“ en þann, sem hefur pláss fyrir ást- leitna stúlku með sporð, afríkanska veiðimenn og tattóveráða villimenn á Nýja-Sjálandi? Með starfi sínu hafa breskir kvik- myndamenn sýnt, að þeir eru samkeppnisfærir við hvern sem er. Glynis á Nýja-Sjálandi iÞiiittíM Woi’.v; Marilyn Monroe Englendinga T^AÐ verður mikið að gera hjá fyrirtækinu Diana Dors h.f. í ár. Það ætlar að búa til að minnsta kosti eina kvikmynd á árinu, sviðsetja að minnsta kosti eitt leikrit, fást eitthvað við kaup og sölu á fasteignum og gefa út eitthvað af bókum. Brúttótekjur þess eru áætlaðar eitthvað á þriðju milljónina. Og dýrmætasta eign þess er aðaleigandinn sjálfur -—- stúlka að nafni Diana Dors. Islenzkir kvikmyndahúsgestir hafa enn haft lítil kynni af ungfrúnni. Þess verður þó naumast langt að bíða úr þessu, að hún sjáist hér í bíóunum. Diana Dors er nefnilega orðin ein aðal driffjöðurin í brezka kvikmyndaiðnaðinum; hún er hin brezka Marilyn Monroe. Diana fæddist í Swindon, Englandi, hinn 23. október 1931. Hún var einkabarn dágóðs hljómlistarmanns, sem á stríðsár- unum ferðaðist víðsvegar um Bretlandseyjar að skipuleggja hermannaskemmtanir. Þessi sífelldu ferðalög höfðu það í för með sér, að skólaganga Diönu varð næsta gloppótt. Hún vildi ólm fylgja föður sínum og dvaldst því oft á tíðum ekki nema fáeina daga á hverjum stað. Eitt hafði hún þó upp úr þessu: verðmæta reynslu á einmitt því sviði, sem nú er að gera hana fræga og ríka. Hún notaði hvert tækifæri til að troða sér inn í skemmtiþætti föður síns, uns hann gafst skilyrðislaust upp og gerði hana að fullgildum meðlimi í skemmtiflokki sínum. Hún var vel til starfans fallin og ekki hvað síst að ytra útliti. Hún var aðeins þrettán ára þegar hún í fyrsta skipti sigraði í fegurðarsamkeppni, eftir að hafa bætt fáeinum árum við aldur sinn til þess að friða dómnefndina. Að sigrinum lokn- um fékk hún talið foreldra sína á að kosta hana til náms í Leik- og hljómlistarskóla Lundúna. Hún stundaði námið af kappi. Hún hlaut tvenn verðlaun fyrir ljóðalestur, bjó í kvennahóteli, sem K.F.U.K. starfrækti, og borðaði í ódýrustu veitingahúsunum, sem hún gat grafið upp, til þess að spara peninga. Styrkurinn, sem foreldrarnir gátu látið henni í té, var af mjög skomum skammti, og hún varð að velta fyrir sér hverjum eyri. Hún var enn í skólanum þegar kvikmyndaframleiðandi einn bauð henni smáhlutverk í mynd, sem nefndist: Verzlunin á götuhorninu. Hún gekk undir leiklistarpróf í því sambandi, stóðst það með prýði og fékk að lokum hina ágætustu dóma fyrir leik sinn í myndinni, þótt hún sæist aðeins á sýningar- tjaldinu í fáeinar mínútur. Svo fór líka, að henni buðust fleiri kvikmyndahlutverk, þótt smá væru, og ekki leið á löngu þar til hún var búin að sjást í fjórum myndum, þar á meðal Oliver Twist. I myndunum lék hún ýmist slæmar stúlkur eða heimskar. Diana er þó allt annað en heimsk í raunveruleikanum. Leik- húsmenn og kvikmyndaframleiðendur eru sammála um, að hún hafi ágætlega gott verzlunarvit. Einn segir um hana: „Þið megið reiða^ ykkur á það, að hún les samningana gaumgæfilega, áður en hún skrifar undir þá.“ Hún var ekki enn orðin tvítug, þegar Hollywood gerði henni lokkandi tilboð. Hún átti að fá 18,000 krónur á viku fyrsta árið og hækka smásaman upp í 45,000 á viku. En þegar hún tók að kynna sér samningsuppkastið, rak hún augun í ýmis- legt, sem henni féll ekki eins vel. Hún átti til dæmis engu að fá að ráða um þau hlutverk, sem henni yrðu falin. Þar varð hún að skuldbinda sig til að hlýða kvikmyndafélaginu skil- yrðislaust. Önnur ástæða lá og til þess, að hún hafnaði til- boðinu. Tveimur vikum áður hafði hún gengið að eiga mann að nafni Dennis Hamilton Gittins. Tilraunir hennar til að „slá í gegn“ á leiksviðum Lundúna hafa valdið henni nokkrum vonbrigðum. Hún hefur verið óhepp- in með leikritaval. Gagnrýnendur hafa þó verið henni mjög vin- samlegir. En það er eins og almenningur fáist ekki til að trúa því, að hún geti leikið. Þar veldur fegurð hennar mestu um: mönn- um finnst hún eiga að vera til skrauts og láta aðra um að basla við að leika. Þó sýndi hún það að minnsta kosti tvívegis á síðastliðnu ári, að hún er gædd ágætri leikgáfu. Hún lék þá í tveimur mynd- um við ágæta dóma. Bæði hlutverkin voru ,,dramatisk“ og reyndu mjög á hæfileika leikkonunnar. Diana og maðurinn hennar búa í skrauthýsi miklu í Mayden- head; í því eru þrjú baðherbergi, bíósalur og óvenjulegt (og hávært) fuglasafn. Skemmtisnekkju eiga þau og þrjá bíla. Þau hafa gaman af að berast á, gaman af að halda veislur, gamæn af að eyða peningum. Þau eru ekkert að hafa fyrir því að látast vera „venjulegir borgarar". Það sýna bílarnir þeirra meðal annars. Einn er Rolls-Roys, annar Cadillac og sá þriðji var smíðaður handa þeim sérstaklega, kostaði 300,000 krónur og á naumast sinn líkan í veröldinni. Hjónin komast oft í blöðin, svo oft að heita má að einkalíf þeirra sé almenningseign. En Diönu virðist standa hjartan- lega á sama. Hún játar meir að segja, að hún hafi gaman að þessu. „Auk þess eru þetta ókeypis auglýsingar,*1 segir hún. Þegar rætt er við hana um leiklist og kvikmyndagerð, reynast skoðanir hennar á þeim hlutum í senn raunsæar og einfaldar. Hún segist svosem ekki vera að þessu listarinnar vegna. Hún segist vera leikkona til þess að græða peninga — mikið af peningum. Það sé hægt að lifa góðu lífi á miklum pen- ingum, „en hver getur lifað góðu lífi á listinni einni saman?“ Hún er önnum kafin frá morgni til kvölds — og má iðu- lega vinna langt fram á nótt. Frístundirnar eru því fáar. Þó er hún þessa dagana að grípa í að skrifa bók, og hún er staðráðin í að skrifa leikrit áður en langt um líður. En hún vill engu spá um það, hvort það verður í ár eða næsta ár. Það er í svo ótrúlega mörgu að snúast hjá fyrirtæk- inu Diana Dors h.f. Þar sem sendingar á GISSURI frá Bandaríkjunum hafa einhverra hluta vegna tafist, verða lesendur að vera án hans í þetta skipti. Vonandi nær hann þó til ritstjórnarinnar í tæka tíð til að komast í næsta blað. 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.