Vikan - 26.01.1956, Blaðsíða 2
Geturðu ekki birt fyrir mig Ijóð,
scm Sigurður Ólafsson syngur stund-
um í útxarpið. Viðlagið er svona:
..Við komumst allir, ailir, allir upp til
himna........“
S VAR :
Vinir, hve oft er hér amstur og strit
svo ekki sýnist þar nokkurt vit,
alit sem við gerum er örlögum háð,
allt er í himneskar bækur skráð,
tölur, sem eiga sinn töfraseið,
tæla okkur svo oft af leið.
Allt ei' þar reiknað og ritað á blað,
rúnii' sem boða okkur það:
Við komum ailir, allir, allir upp til
himna
i unaðssælu, í unaðssælu.
Þá brosir Pétur blítt
hann blessar svo milt og þýtt
þið verðið öll að englum
allt er nýtt og hlýtt.
Þarna uppi er allt bjart og blátt
blikandi dýrð í jarðarátt.
Óvinir faðmast og elskast heitt,
öllum er himnanna gleði veitt.
Opnast þá hliðin upp á gátt,
allii' dansa i sátt.
Himininn Ijómar svo hár og stór
hljómar við engla kór:
Við komum allir, allir, allir o. s. frv.
Viltu vera svo yóð að gefa okkur
upplýsingar varðandi kennaradeild
Handíðaskólans ... — Áskrifandi.
Okkur langar til að komast í
Handíðaskólann, Er nóg að liafa
gagnfrœðapróf, til að fá inngöngu.
Viltu segja okkur frá teiknideild
cða handavinnudeild . . .
Tvœr tilvonandi saumakonur.
SVAR til Áskrifanda: 1 skólanum
er engin handavinnudeild kvenna
Handavinnudeildin var ætluð kenn-
araefnum, og afhent kennaraskólan-
um 1951. Þú verður því að snúa
þér til skólastjóra Kennaraskólans,
ef þú hugsar þér að gerast handa-
vinnukennari. Það er tveggja ára
nám.
S V AR til „Tveggja saumakvenna":
1 Handíðaskólanum er myndlistar-
deild, þar sem kennd er teiknun, lista-
3aga, myndlistarsaga, leirmótun, og
skrautteiknun. Kennt er á daginn 24
tima á viku og námið kostar kr.
845.00 yfir veturinn. Þetta er eins,
tveggja eða þriggja ára nám, eftir
þvi sem hver vill.
En svo eru í skólanum kvöldflokkar
i teiknun. Kennt er tvö kvöld í viku
og er námskostnaðurinn kr. 475.00
yfir veturinn. Efniskostnaður er lítill.
Etngrar sérstakrar undlrbúnings-
menntunar er krafizt.
Er ég of ung til að máXa á mér
neglumart Og of ung til að mála d
mér varimar og púðra rmg? Eg
nagaði á mér neglurnar, en þegar
ég fór að iakka þœr, hœtti ég þvi.
Fólkið er alltaf að hœðast að mér,
af því að ég er með iakkaðar neglur.
— Litty — 12 ára.
S V A R : Það er betra að lakka á
sér neglurnar en naga þær. En þú
lakkar þær auðvitað með iitlausu
lakki til að byrja með og svo máttu
ekki gleyma að setja þar til gerðan
hlýfðarvökva undir lakkið og taka
það af með acetoni með olíu í, því
annars verða neglurnar á þér á
nokkrum árum ljótari en þó þú hefð-
ir nagað þær.
Það gerir þér ekkert til þó þú
málir örlitið á þér varirnar, úr þvi
að þér finnst það borga sig að láta
hæðast að þér, en púðrið skaltu alveg
láta vera á þessum árum, því með
því geturðu eyðilagt húðina á þér á
því tímabili, sem hún er viðkvæmust.
S V A R til Elísabetai', Ingibjargar,
Abbýar o. fl.: Það virðist vera al-
mennur áhugi fyrir flugfreyjustarf-
inu, eftir bréfunum, sem við fáum,
að dæma. Varla ei'um við búin að
svara því, að enga ákveðna menntun
þurfi til að verða flugfreyja, en að
samkeppnin sé hörð og þá komist
auðvitað þær sem bezta menntun
hafa að, fyrr en bréfunum fer aftur
að rigna yfir okkur. Hvað málakunn-
áttu snertir, er lágmarkið að hafa
gott vald á a. m. k. tveimur málum.
Útlit og framkoma skipta auðvitað
miklu máli líka.
Viltu birta fyrir mig utanáskrift
leikaranna, Roy Rogers, Liz Taylor
og Audrey Hepburn.
S V A R : Roy Rogers, Paramount
Pictures, 5451 Marathon St., Holly-
wood, Cal., Elizabeth Taylor, Metro-
Goldwyn-Mayer Studios, Culver City,
Cal. Þú getur skrifað utan á bréf
til Audrey Hepburn eins og til Roy
Rogers.
BREFASAMBOND
Birting; á nafni, aldri heimilisfangi
kostar 5 krónur.
C. Borgman (við frímerkjasafnara,
skrifar ensku) 92 Rue Jaubert, Mar-
seille, France — María Lúðvíksdótt-
ir, Tangagötu 24 og Theodóra Krist-
jánsdóttir, Hvannagötu 8, (við pilta
eða stúlkur 14- -17 ára), báðai' á
Isafii'ði. — Bjarni Joensen og Helgi
Kristinsson (við stúlkur 18—21 árs,
báðir á s/s Fridthof Nansen, Rederi
A. X. Longfeldt, Kristiansand, Norge
- Valgerður H. Sigurðardóttii' (við
pilta 15-17 ára) og Þórhildur Magn-
úsdóttir (við pilta 14- 16 ára), báðar
í Stykkishólmi, Snæfellsnessýslu. —
Kristinn Hólm (við stúlkur 18—20
ára), Strandgötu 25 B, Akureyri —
Hreinn Ragnarsson, Byggðavegi 89
(við 15 ára stúlkur), Akureyri, Ás-
björn óstei'by (við stúlkur 15—16
ára) og Sigui'jón Guðbjörnsson (við
Stúlkur 16—17 ára), báðir á Mennta-
skólanum á Akureyri. — Gígja Sím-
onai'dóttir, Klettaborg 4, Guðrún
Jónsdóttir, Sólgai'ði, Glerárþorpi,
Stella Hjálmarsdóttir, Munkaþverár-
sti’æti 8 og Ásdís Árnadóttir, Norð-
ui'götu 48 (við pilta og stúlkur 15—
17 ái-a) allar á Akureyi'i. — Birna
Bjai'nadóttir, Svanlaug Sigui’jónsdótt-
ir og Guði'ún Lárusdóttir (við pilta
18—24 ára), allar á Húsmæðraskól-
anurn á Laugarvatni, Árn. — Fi'íða
Kristmanns, Vallargötu 82 og Ásta
Jóhannsdóttir, Faxastíg 11 (við pilta
og stúlkur 16—18 ára), báðar í Vest-
mannaeyjum — Hildui' Óskai'sdóttir,
Hanna Rúna Jóhannsdóttir og Heið-
rún Þorgeirsdóttir (við pilta 15—17
ára) allar í Reykholtsskóla, Boi'gar-
fix-ði - - Ómar Guðjónsson og
Óskar Davíð Sigfússon (við stúlk-
ur 17—18 ára), báðii' á Hvann-
eyri, Boi'garfirði - Hafsteinn B.
Pálsson (við stúlkur 15—17 ára) og
Hörður Bjai’nason (við stúlkur 16—18
ára), báðir á Bændaskólanum á
Hvanneyri, Borgarfirði —- Erla Ey-
þói'sdóttir (við pilt eða stúlku 18—20
ára), Ásvallagötu 1, Fieykjavík —
Kolbrún Viggósdóttir (við þilta eða
stúlkur 20—23 ára) og Hrefna Þor-
varðardóttir (við pilta eða stúlkur
19—23 ára), báðar í Stykkishólmi —
Gaby Raab ( 16 ára, ski'ifar ensku),
Bei'lín-Charlottenbui'g, Bismarckstr.
84, Deutchland — Birgit Tufvesson
(25 áx'a) Sádeberg, Rábygatan 29
Hörby, Sverige. — Ebba Magnúsdótt-
ir, Deildartúni 4, Ingibjörg Lofts-
dóttir, Vesturgötu 137 og Sigríður
Kristjánsdóttir, Vesturgötu 21 (við
pilta og stúlkur 17—20 ára) allar
á Akranesi. — Björg Sveinsdóttir,
Rannveig Sigursteinsdóttir, Gullý
Bergsteinsdóttir og Þóra Helgadótt-
ii' (við pilta 18—21 árs) allar á
Kvennaskólanum á Blönduósi — Unn-
steinn Pálsson (við stúlkur 16—1S
ára), Stíganda, Blönduósi — Lilja
Halldórsdóttir (við pilta 18—23 ára)
Ai'ngei'ðareyri við Isafjarðardjúp —
Svavar Bei'g Magnússon (við stúlk-
ur 16 18 ára), Ómar Sigui'ðsson (við
stúlkui' 18—23 ára) og Elfar Sig-
urðsson (við stúlkur 19—23 ára),
allir í Þveræingabragganum, Kefla-
vík. — Vigdis Bei'gsdóttii' og Ingi-
björg Pétursdóttir (við pilta eða
stúlkur 14 -17 ái'a) báðar á Reyk-
holtsskóla, Borgarfii'ði. — Sigrún
Haraldsdóttir (við pilta eða stúlkur
16—18 ára) Efri-Rauðalæk, Rang.
— Pálmar Guðjónsson (við pilta eða
stúlkur 18—25 ára), Syðri Rauða-
læk, Rang.
MUNIÐ
ndra MAGASIN
Lostœti frá Hollandi!
Ef yður þykir einnig góð auð*
melt og hressandi súpa, þá
reynið HONIG kjúklingasúp-
una í bláu pökkunum.
Þessi ágæta súpa hefur þennan
lokkandi keim sem er af heima-
tilbúinni súpu, keim sem ungir
og gamlir sækjast eftir. Og svo
er enga stund verið að búa hana
til: aðeins 6 minútna suða og
— gerið svo vel!
Eggert KristjánssoD & Co. h.f.
Heildsölubirgðir:
Útgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
t
A
2