Vikan - 14.02.1956, Qupperneq 2
Mig lancjar til að vita hvort mað-
ur þarf að hafa verzlunarpróf, til að
fá að halda litla búð og sclja sæl-
tjœti, blöö, gosdrykki og ýmiskonar
brauð. Bg er ákaflega óþolinmóð og
vona að þn getir svarað mér í nœsta
blaði.
SVAR: Þú þarft ekki verzlunar-
próf til að fá verzlunarleyfi, en þú
þarft að hafa nokkra sérmenntun
eða þekkingu á bókhaldi og vörum,
vera heimilisföst á Islandi, vera fjár-
ráða og hafa óflekkað mannorð.
Nú er ekki ljóst af bréfi þínu,
hvort þú hugsar þér að reka sæl-
gætisverzlun, sem opin er eins og
aðrar búðir eða nokkurs konar veit-
ingastofu, þar sem fólk getur neytt
veitinganna á staðnum og sem opin
er til hálf tólf. Ef svo er, þarftu veit-
ingaleyfi.
Vceri hægt að fá upplýsingar um
blað erlendis, t. d. t Englandi, sem
birtir bréfasambönd eins og Vikan ?
SVAR: Við vitum því miður ekki
um slík blöð, en þú getur annað
hvort fylgst með bréfadálkunum hér
í blaðinu, öðru hverju koma beiðnir
frá útlendingum um bréfasambönd
eða fengið bréfavin gegnum Morg-
unblaðið, sem oftast liggur með ein-
hverjar slíkar beiðnir.
Geturðu ekki sagt mér eitthvað
um kvikmyndaleikkonuna Belindu
Lee. Er hún amerísk?
SVAR: Nei, Belinda Lee er ensk.
Hún er 19 ára gömul, en er þó búin
að leika í mörgum enskum kvik-
myndum, enda hefur hún fengið góða
leikmenntun og er þar að auki mjög
snotur. Stærsta hlutverkið hennar
verður í nýrri mynd „Man of the
Moment". Af öðrum myndum, sem
hún mun leika í, má nefna „Who
Done it“ og „The Feminine Touch“.
Rósa! Þú ert of ung til að til séu
töflur um það hve þung þú eigir að
vera, enda áttu sennilega eftir að
lagast.
Álka! Úr þvi að þú ert 17 ára og
168—9 sm. á hæð eru 63 kíló þín
rétta þyngd.
I J.! Úr því að þú ert ljóshærð með
blá augu og fölleita húð, ætti rós-
rautt, brúnt, grænt, gráblátt og
bláfjólublátt að fara þér vel. Bleikt
getur líka verið góður litur fyrir
þig, en það fer eftir þvi hvort þú
hefur nokkurn roða í kinnum.
Svar til Binnu: Ef hárið á þér er
dökkt og dauflegt (þó það sér rautt)
ættirðu að klæðast í kalda liti, blátt
og grænt, er sé það bjart, mundi
kápa úr grámuðu gulu eða brúnu
fara þér vel.
Viðbótarsvar til Sirru: Eftir-
grennslanir okkar um það hvar Erna
Sack syngi núna, hafa orðið til einsk-
is. Við höfum ýmist heyrt að hún
sé orðin nunna í Sviss eða að hún sé
orðinn ríkisborgari i Brasiliu. En eitt
er víst, maður reiigt ekki á nafn
hennar í músikblöðum lengur og hún
hefur ekki sungið inn á nýja plötu
í langan tíma. Vinsælust var hún um
1930, þegar allur heimurinn vildi
hlusta á „þýzka næturgalann".
Um Evu Berge vitum við ekkert
meira en þú veizt sennilega sjálf.
Hún er sænsk óperusöngkona, sem
söng nokkrum sinnum hlutverk Gildu
í Rigolctto hér i Þjóðleikhúsinu.
Geturcu birt fyrir mig öll erindin
í Ijóði, sem byrjar svona: „Eg vil
fá mér kœrustu . . . .“.
SVAR: Þetta er úr „Æfintýri á
gönguför“ eftir Hostrup. Indriði
Einarsson ísienzkaði textann. Lagið
mun vera sænskt þjóðlag.
Og ég vil fá mér kærustu sem allra
allra fyrst,
en ekki verður gott að finna hana,
því hún skal bera kinnar sem
hrútaber á kvist
og hvarmaljósin björt sem demantana.
Og hún skal vera fegurst af öllum
innan lands
og iðin við að spinna og léttann stíga
dans
og hún skal kunna að haga sér hið
bezta.
Þær eru flestar góðar meðan
unnustinn er nær
en oss eru þær vissar til að blekkja.
En ég vil fá mér eina þá, sem ei
við öðrum hlær,
sem elskar mig og bara vill mig
þekkja.
Já, hún skal líka finna beztu hugarró
hjá mér,
ef húsi mínu færir hún iðni og
dyggð með sér,
og stóra fulla kistu beztu klæða.
Og ef ég svo í eina næ rétt
alveg sem ég vil
þá óðara til brullaups skal ég feta.
Og sveitafólk mitt veizlu fær,
sem vantar ekkert til
en vín og hrokafylli sína að eta.
Og þar skal vera dans og gleði
daga þrjá í röð,
hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum
svo glöð,
en til þess verður ofurlitlu að eyða.
Getur þú ekki gefið mér góð ráð.
Hárið á mér er að þynnast svo mikið
að ég hef áhyggjur af því. Helclur þú
að það sér gott að bera bómolíu í
það og nudda það svo á eftir? En er
gott að bera grásalva í liárið Kanntu
nokkur önnur ráð?
SVAR: Við höfum heyrt um ótal
mörg ráð, eins og það að bera bóm-
olíu í hárið, en engin sem duga. Þú
verður liklega bara að segja eins
og maðurinn: — Úr því það er nógu
gott fyrir Bing Crosby, þá ætti það
að vera nógu gott fyrir mig.
Bing er líka alveg sköllóttur. Hann
notar þó svolítinn aukalokk í kvik-
myndunum, en aldrei í daglega líf-
inu og nú er það haft eftir honum,
að hann sé alveg hættur að nota
lokkinn, enda sé hann um það bil að
draga sig í hlé úr kvikmyndunum,
kvcðst ætla að rýma fyrir syni sin-
um, sem er að byrja að afia sér
frægðar á sama sviði.
Hvernig er nú aftur erindið, sem
Tómas Guðmundsson gerði við lagið
hans Fúsa? Það byrjar svona: Við
bláan sœinn söngvar óma .... Get-
urðu ekki hjálpað mér að rifja það
upp ?
SVAR: Jú, María Markan og Sig-
urður Ólafsson hafa einmitt sungið
þetta nýlega inn á. hljómplötu. Lagið
er eftir Sigfús Halldórsson. Ljóðið
heitir „Við eigum samleið“ og er
svona:
Við bláan sæinn söngvar óma,
þvi sumariö er komið ástin mín.
Og aftur stendur allt í blóma,
af ungri gleði jörðin skín.
Og því skal fagna af heitu hjarta,
og hylla þennan fagra ljúfa dag,
og út í himinheiðið bjarta
skal hefjast okkar gleðilag.
Og glaðar raddir syngja í sálum
okkar beggja
móti sumri stefnir framtíðin öll,
og hátt er enn til lofts og vitt
til veggja
í vorsins draumabláu sólskinshöll.
Og þangað hjartans löngun líður,
sem lengst og fegurst dagsins
eldur skín.
Sjá vorið eftir okkur bíður.
Við eigum samleið, vina min.
BRÉFASAMBÖND
BirtinK á nafni, aldri og hcimilisfangi
kostar 5 krónnr.
Gilla Egilsdóttir, Ellý Þórðardótt-
ir, Billý Tryggvadóttir, Dallý Sig-
urðardóttir og Systa Jónsdóttir (við
pilta 19—24 ára), allar i herbergi
nr. 8, Húsmæðraskólanum Ösk, Isa-
firði. — Eygló K. Celin og Gréta
Óskarsdóttir (við pilta og stúlkur
18—21 árs), báðar á Húsmæðraskóla
Isafjarðar — Hulda Jóhannsdóttir
(við pilta eða stúlkur 14—16 ára),
Brekkugötu 43, Akureyri. — Gunnar
Þór Jónssön og Magnús Einarsson,
Hvanneyri, Borgarfirði — Stefán
Skaptason (við stúlkur 15—17 ára),
Bændaskólanum á Hvanneyri, Borg-
arfirði — Steinunn Þorleifsdóttir og
Erla Ingólfsdóttir (við pilta eða
stúlkur 17—22 ára) báðar á Hvann-
eyri, Borgarfirðt — Stefán Jónsson
(við stúlku 19—23 ára), Flögu Árn.
Haraldur Gestsson, (við stúlku 16
—18 ára) Hi'óarsholti, Flóa, Árn. —
Auðunn Jónsson (við stúlkur 16—20
ára), Kirkjuveg 26, Vestmannaeyj-
um —Marit Hilleborg Flaa (við pilt
17—19 ára), Tingvoll statsrealskule,
Tingvoll, Norge — Þorbjörg Guð-
mundsdóttir og Edda Eyfeld (við
pilta 16—17 ára), báðar á Reykja-
skóla í Hrútafirði —- Kristján Torfa-
son, Ólafur M. Kristinsson og Páll
Elíasson (við stúlkur 15—17 ái’a),
allir í heimavistinni á Menntaskól-
anum á Akureyri. — Hulda Garð-
arsdóttir (við pilta 16—20 ára)
Garði, Fnjóskadal, S.-Þing. — Kristín
Jónsdóttir, Kirkjubraut 23 og Kristín
Halldórsdóttir, Kirkjubraut 51 (við
pilta 17—19 ára), báðar á Akranesi
-— Sigurlaug G. Egilsdóttir, Máná
(við pilta 20—22 ára) og Jóhanna
Bjarnadóttir, Syðri-Tungu (við pilta
15—17 ára) báðir á Tjörnesi, S.-Þing.
Hlíf Jóhannsdóttir, Akurgerði 22
og Selma Jóhannesdóttir Vesturgötu
4G (við karlmenn 30—50 ára) báð-
ar á Akranesi — Auður Halldórs (við
pilt 12-13 ára), I-Irannagötu 9, Isa-
firði - Kristjana Sóley Sigurðar-
dóttir, Ingibjörg Högnadóttir, Anna
I.ngólfsdóttir, Gerður Elíasdóttir og
Guðrún Guðmundsdóttir (við pilta
14—16 ára), Guöríður G. Hannibals-
dóttir (við pilta 16—19 ára), Ingi-
björg Kristjánsdóttir, María Stein-
dórsdóttir og Ilanna Gísladóttir (við
pilta 16—18 ára), Þrúður Pálsdóttir,
Lilja Hermannsdóttir og Sonja Ingi-
mundardóttir (við pilta 15—17 ára),
Kristín Jónsdóttir (við pilt 15—18
ára), allar í Reykjanesskóla við Isa-
fjarðardjúp. — Gylfi Hallgrimsson,
Árni Kr. Þorgilsson, Lárus Hafsteinn
Lárusson, Grétar Njáll Skarp-
héðinsson, Hvanndal Hannesson,
Kristinn Gíslason, Arnór Hvan-
dal Lárusson, Jón Hannibalsson, Jó-
hannes Antonsson, Ingvi Hallgríms-
son, Valberg Helgason og Guðni
Kristjánsson (við stúlkur 15—17
ára), Hafsteinn Þ. Rósinkarsson,
Hafliði Kr. Guðmundsson, Magnús
Jónsson, Hafsteinn Traustason og
Hannes Torarensen (við stúlkur 14—
16 ára), Ingvar Halldórsson (við
stúlku 17—18 ára), Friðrik Ásgrims-
son, Sigurjón Sigurðsson og Björn
Traustason (við stúlkur 16—18 ára),
Anton Antonsson og Sig. B. Þórðar-
son (við stúlkur 17—19 ára) Kristján
Ágústsson (við stúlkur 15—18 ára),
Hilmar Guðmundsson og Ágúst Guð-
mundsson (við stúlkur 16—19 ára),
allir á Reykjanesskólanum við Isa-
fjarðardjúp — Snorri Ásmundsson
(við stúlkur 14—16 ára), Bitrufirði,
Strandasýslu. — Erla Jóhans., Viddý
Sigurðar., Kolla Björns., Didda Feið-
geii’s. og Sísí Guðmunds. (við pilta
18—25 árT,), allar í Húsmæðraskól-
anum á Hallormsstað, S-Múl. —
Þorbjörg Brynjólfsdóttir (við pilta
22—24 ára) Víðimýri 4, og Erla Halls
(við pilta 18—20 ára), Þingvalla-
stræti 44, báðar á Akureyri.
Forsíðumyndina
tók ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2