Vikan


Vikan - 14.02.1956, Síða 6

Vikan - 14.02.1956, Síða 6
Hiulskipti hennar var ægi- legt. Hver var hún? Var hún dóttir sjálfs keisarans? EFTIR ILSE OG RALPH KAPP jm RIÐ 18 8 0 kom pólitískur flóttamaður austan frá Rússlandi og hafði þá sögu að segja, að dóttir /—Alexanders II keisara sæti í dýflissu í Síberíu og hefði hann séð hana og rætt við hana. Fregnin birtist í nokkrum blöðum og rifjaði upp aðra frá- sögn, nokkrum árum eldri, sem mikla athygli hafði vakið á sínum tíma. Hún var af dularfullum fanga, sem geymdur væri í fangelsinu við Bulun í Síberíu við mikið harðrétti. Rússneskur liðsforingi að nafni Kutepov varð fyrstur til að ljóstra upp um tilveru fangans, en Kutepov þessi hafði verið 1 lífverði keisarans, áður en stjórnmálaskoðanir hans neyddu hann til að flýja land. Hann skýrði svo frá, að fanginn væri ung stúlka, sem gengi undir nafninu Olga. Væri hún geymd í neðanjarðarhvelfingu fangelsisins, ein í klefa, og fengi enginn að hafa samneyti við hana nema yfirfangavörðurinn og fang- elsisstjórinn. Kutepov staðhæfði, að hann hefði þrisvar sinnum skipst á nokkrum orðum við stúlkuna, þá sex mánuði, sem hann gegndi þjónustu í fangelsinu. Hinsvegar hefði hin ramm- gerða klefahurð verið á milli þeirra, svo að hann hefði ekki séð hana. En hann hefði ástæðu til að ætla — og hefði málfar hennar raunar borið þess vott — að hún væri vel menntuð. Kutepov gat þess til, að hinn dularfulli fangi væri stúlka að nafni Nadezhda Pisarev, sem horfið hafði skyndilega í Moskvu, eftir að sú saga komst á kreik, að hún hefði rynt að kúga fé af keisarafjölskyldunni. Hermdu kviksögurnar, að Nadezhda, sem var af aðalsættum, hefði haft í höndum gögn, sem sönnuðu NÝ TÍÐINDI (AF LÉTTARA TAGI) ÞEGAE WILLIAM HARYAT í Duncan í Kanada fór í veiðitúr, stökk tuttugu punda lax á hann og þræddi öngulinn svo kyrfilega gegnnm þumalfingur hans, að hann varö að halda beina ieið til lælcnis. JAMES E. Gourlay, bókavörður í Tulsa í Bandarikjununa, tjáði fréttamönnum, að bókin, sem mest væri stolið af — eða þetta sex til átta eintökum á ári — væri Biblían. ÞEGAR MANNI nokkrum var stefnt fyrir rétt í Tunis, með það fyrir augum að freista þess að fá hann lil að taka aftur saman við konuna sína, kom sáttatilraunin honum í svo æst skap — að liann skaut konuna til bana. INNBROTSÞJÓFUR gerðist í fyrra umsvifamikill í finasta íbúð- arhverfinu í Madrid. Þótt ótal gildrur væru settar fyrir hann, smaug hann jafnan úr þeim. Loks náðist hann, þegar hann datt nið- ur af húsvegg og fótbrotnaði — °8' reyndist þá vera stúlka um tvitugt. Hún var dæmd í 15 ára fang- elsi og lá í sjúkrahúsi fangelsis- ins á meðan fóturinn var að gróa. Að þvi loknu strauk hún og hcfur ekki sést siðan! LOUIS MURPHY og Ralpli Slo- combe heita tveir Englendingar, sem fyrir skemmstu höfnuðu í sjúkrahúsi, þegar veiðihundurinn þeirra steig á gikkinn á tvíhleyptri haglabyssu og skaut báða. MAÐUR EINN í Ottawa liringdi síðastliðið ár til lögreglu borg- arinnar, kvað son sinn vera kom- inn í slæman félagsskap og ósk- aði eftir hjálp hennar. Við eftir- grenslan reyndist sonurinn vera — fimmtugur. BRUCE LUKES heitir 25 ára gamall maður, sem setti eftirfar- andi auglýsingu í blað eitt í London: „Ungur Kanailamaður óskar eftir vinnu. Óáreiðanlegur, drykk- feldur og latur. Hæsta boði tekið.“ Hann fékk fjögur tiiboð um vinnu, fimm bréf frá mönnum, sem óskuðu eftir að kynnast hon- um, og eitt bónorðsbréf. hlutdeild fjölskyldunnar í ljótu og óupplýstu morði. Hvað um það, Nadezhda hvarf skömmu síðar og spurðist ekkert til hennar eftir það. Blöðin gerðu sér talsverðan mat úr sögu Kutepovs og voru miklar getgátur uppi um það, hver hin ólánsama stúlka væri í raun og veru. En einu ári síðar (1874) kemur nýr maður til sögunnar. Hann nefndist Michael Krylov og taldi sig ekki aðeins geta staðfest sögu liðsforingjans, heldur gaf hann upp nafnið á rússneskum manni, sem þá var búsettur í Frakklandi og sem hann fullyrti, að hefði ekki einasta stjórnað handtöku stúlkunnar heldur borið ábyrgð á öruggri geymslu hennar í nokkur ár. Maður þessi bjó á óðali skammt frá Marseilles og hélt sig ríkmannlega, þótt enginn vissi af hverju hann hefði tekjur sínar. Hann hét Theodore Lermontor. Lermontor var ekki til viðtals, þegar tveir ritstjórar frá París reyndu að ná tali af honum. Þeir urðu því að láta sér nægja frásögn Krylovs. Hann hafði, eins og Kutepov, gegnt þjónustu í fangelsinu við Bulun um nokkurt skeið. Kvaðst hann hafa heyrt getið um fangann strax við komu sína og hefði for- vitni hans að vonum vaknað. Hinsvegar hefðu þrír mánuðir liðið, áður en hann fékk tækifæri til að koma í kjallara bygg- ingarinnar, þar sem stúlka.n sat. Hann komst að klefadyrum hennar, kallaði gætilega: ,,01ga,“ og heyrði nærri strax að svarað var: ,,Já.“ Hann sagði til nafns og spurði síðan, hvað hún héti réttu nafni. Það varð löng þögn, en svo kom svarið: „Skiptir það nokkru máli?“ Nokkrum vikum síðar sat Krylov að drykkju með yfirfanga- verði fangelsisins og notaði tækifærið til að færa ,,01gu“ í tal. Hann spurði hver hún væri og hvað hún hefði brotið af sér, að jafn ómannúðleg refsing skyldi lögð á hana. Yfirfanga- vörðurinn hló þuirlega og svaraði: „Hún hefur ekkert gert. Hún hefði bara ekki átt að fæðast, stúlkan.“ Meira hafði Krylov ekki upp úr honum. Þessi leynd virðist þó aðeins hafa espað forvitni hans, því að hann hélt áfram að spyrja, þótt hann færi gætilega. En svör- in, sem hann fékk, voru annað hvort út í hött eða báru það með sér, að aðspurður vissi ekki meira en spyrjandinn. Svo gerðist það, að leysingavatn komst í kjallara fangels- isins og varð að fjarlægja þá fanga til bráðabirgða, sem þar sátu. Klefarnir voru raunar aðeins tíu þarna niðri, og tveir tómir. ,,01ga“ var eini kvenfanginn í dýflissunni. Fangelsis- stjórinn og yfirfangavörðurinn tóku að sér að flytja fangana í aðra klefa, og var það í samræmi við það, sem Krylov hafði heyrt, að enginn nema þeir mættu umgangast stúlkuna. Krylov stóð í dimmu stigaskoti, þegar fangarnir voru fluttir upp úr neðanjarðarhvelfingunni. ,,01ga“ var færð upp síðust og leiddi fangelsisstjórinn og fangavörðurinn hana beint inn í skrifstofu þess fyrrnefnda. En þótt aðeins fáeinir metrar væru milli hennar og, Krylovs, varð hann fyrir vonbrigðum. Andlit stúlkunnar var hulið grímu. Hver var stúlkan með grímuna? Krylov, sem sendur var til annarra skyldustarfa nokkru eftir þennan atburð, taldi ekki loku fyrir það skotið, að hún væri hin horfna Nadezhda Pisarev. Hann var spurður að því, hvort hún hefði verið hávaxin eða lágvaxin. Hann svaraði, að erfitt hefði verið að átta sig á því. Skuggsýnt hefði verið, og auk þess hefði stúlkan verið klædd karlmannsfötum. Þetta með karlmannsbúninginn kemur raunar heim við það, sem síðar vitnaðist í málinu. Mál „stúlkunnar með grímuna” lá nú niðri um hríð. En í maí 1874 er lögfræðingur að nafni Calonne kvaddur á fund Theodore Lermontor, rússneska óðalseigandans við Marseilles, sem neitað hafði að tala við ritstjórana. Lermontor þurfti að gera erfðaskrá sína. En um leið trúði hann lögfræðingnum fyrir leyndarmáli. Hann sagði honum — eða svo fullyrti lög- fræðingurinn a. m. k. síðar — allt af létta um hinn margum- talaða fanga. Calonne hafði heimild til að ljóstra upp leyndarmálinu að Lermontor látnum. En áður en til þess kæmi, komu aðrir menn fram á sjónarsviðið, sem fullyrtu, að fanginn í fangelsinu við Bulun væri ekki hin týnda Nadezhda Pisarev heldur engin önnur en laundóttir Alexanders II keisara. Calonne lögfræðing- ur fór á fund eins þessara manna og bað hann að láta sig fá skriflegt allt sem hann vissi um stúlkuna. Rússinn, land- flótta aðalsmaður, gerði það. Þegar Calonne bar sögu hans saman við sögu Lermontors, reyndust þær eins í öllum aðal- atriðum. Aðalsmaðurinn lýsti yfir því, að honum hefði, sem 6

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.