Vikan


Vikan - 14.02.1956, Page 9

Vikan - 14.02.1956, Page 9
PERSÖNUR: Henry M. Stanley — ungur blaðamaður við New YorJc Herald. James Gordon Bennett — forstjóri New York Heráld. Samtalið á sér stað í hinu íburðarmikla herbergi Bennetts í Grand hóteli í París í október 1869. Bennett er ekki kominn á fætur. Það er barið að dyrum og Stanley kemur inn. Bennett: Hver eruð þér? Stanley: Stanley heiti ég. Bennett: Æ já! Fáið yður sæti. Ég þarf að ræða við yður mikilvægt mál. Hvar haldið þér, að Livingstone sé niður kominn ? Stanley: Ég hef ekki hugmynd um það. Bennett: Haldið þér, að hann sé á lífi? Stanley: Máske — og máske ekki. Bennett: Ég held nú, að hann sé lifandi, og að það sé hægt að hafa upp á honum, og ég ætla að senda yður að leita að honum. Stanley: Er yður alvara? Haldið þér í raun og veru, að ég geti fundið dr. Livinstone? Eigið þér við, að þér ætlið að senda mig til Mið-Afríku? Bennett: Já, það er ætlun mín að þér farið og leitið hann uppi, hvar sem hann kann að vera niður kominn, og aflið yður frétta af honum; og kannski er gamli maðurinn hjálparþurfi — þér verðið að taka svo mikið með yður af nauðsynjum, að þér getið miðlað honum, ef hann óskar. Auðvitað ráðið þér, hvernig þér hagið framkvæmdum; þér semjið ferðaáætlun yðar sjálfur. En finnið Livingstone! Henry Stanley leggur af stað til Mið-Afríku í leit að land- hönnuði, sem nærri allir ætla að sé látinn. Þetta líkist helst kvikmyndahandriti, er það ekki? Þó er sannleikurinn sá, að með þessu samtali (sem Stanley rifjaði seinna upp sjálfur) hófst eitt af mestu ævintýrum sögunn- ar. Dr. David Livingstone var trúboði og landkönnuður, sem meðal annars hafði sett sér það mark að finna upptök Nílar. Hinn 30. maí 1869 barst brezka ræðismanninum í Zanzibar bréf frá honum. I bréfinu sagði hann frá rannsóknum sínum og leið- angrum, bað um að sér yrðu send- ar ýmsar nauðsynjar til Ujiji við Tanganyika vatn og skýrði svo frá, að hann hyggðist halda lengrá vestur á bóginn, inn á ókannað landsvæði, þar sem sagt var að mannætur hefðust við. Eftir þetta bárust engar á- reiðanlegar fregnir af Livingstone. Hinsvegar hermdu lausa- fregnir, sem bárust með arabiskum kaupmönnum, að Living- stone dveldist einhverstaðar fyrir vestan Tanganyika og væri mjög illa á sig kominn. Flestir voru hinsvegar þeirrar skoðunar, að hann væri þegar látinn — hefði „horfið yfir landamæri hins óþekkta“, eins og eitt blaðið orðaði það. Stanley fór til Afríku til þess að komast að því sanna í mál- inu — finna annaðhvort Livingstone lifandi eða óhrekjanlegar sannanir fyrir dauða hans. I Zanzibar hóf hann undirbúning að för sinni. Það var engin hægðarleikur. Á leið sinni inn í landið mundi hann að vísu geta keypt vistir handa leiðangrinum af hinum innfæddu. En ekki fyrir peninga. Peningar voru lítils virði í Mið-Afríku fyrir 80 árum. I stað skiptimyntar varð Stanley að hafa gler- perlur, í stað silfurs fatastranga, í stað gulls koparvír. En ekki nóg með það. Hver ættkvísl krafðist ákveðins gjald- miðils, en um það voru engar fræðibækur til. Upplýsinga um það var einungis að leita hjá öðrum ferðalöngum. Þannig uppgötvaði Stanley, að í Unyamwezi voru hinir innfæddu mjög sólgnir í rauðar perlur, en litu ekki við öðrum tegundum. Og þótt svartar perlur væru hinn ágætasti gjaldmiðill í Ugogo, voru þær einskis virði í öðrum héruðum. Loks var hann ferðbúinn, og hinn 18. febrúar 1871 lagði leiðangur New York Heráld af stað frá Bagamoyo. 1 honum voru þrír hvítir menn, 21 hermaður, fjórir þjónar, fjórir negra- höfðingjar, 153 burðarmenn, 27 asnar og einn vagn. Stanley varð að vera örlátur á gjafir við höfðingja þeirra héraða, sem leiðangurinn fór um. Væri hann það ekki, gat hann allt eins búist við, að höfðingjarnir sendu hermenn sína gegn honum og reyndu að hefta för hans með valdi. Ár voru fyrstu farartálmarnir. Brýr af einhverju tagi lágu að vísu yfir þær sumar — nokkrir sterkir trjábolir á fáeinum staurum — og yfir þær komust burðarmennirnir. En taka varð klifjarnar af ösnunum, draga þá yfir á bandi og klif ja þá aftur hinumegin. Ferðamönnum kom saman um, að Makata-mýrin svokallaða væri erfiðasti farartálminn á þessum slóðum. Makata-fljót var aðeins um 40 feta breitt í þurrkatíðinni. En þegar stórrigning- arnar hófust, flæddi það kolmórautt og beljandi yfir bakka sína. Séu rigningarnar alveg óvenjuhiiklar — eins og þær voru 1871 — leggur það heilar sveitir í kaf. Leiðangurinn varð að vaða og stikla — og mátti raunar stundum synda — yfir vatns- og leðjufenið. Vatnið náði oftast í brjóst og asnarnir voru sífellt að sökkva í sandbleytur. Það tók leiðangurinn tíu klukkutíma að komast þær sex mílur, sem flóðið náði yfir. Menn urðu að búast við allskyns sjúkdómum, þegar þeir komust í kast við Makata-mýrina. Shaw, annar hinna hvítu aðstoðarmanna Stanleys, fékk feiknháan hita, foringi hermann- anna gat naumast hreyft sig fyrir verkjum, allir virtust haldnir einhverri veiki. „Hinsvegar veitti ég því eftirtekt,“ sagði Stanley seinna, „að þegar leðjan og vatnið virtist vera að buga hina latari meðal burðarmannanna, þurftu eftirlitsmennirnir ekki annað en að grípa til svipunnar, til þess að fjörga þá upp.“ Stanley hélt þindarlaust áfram. Burðarmenn struku og leið- angurinn varð að bíða á meðan leitarflokkar voru sendir á eftir þeim. Þeir voru fangaðir, húðstrýktir og járnaðir, og svo var haldið áfram. I þorpinu Kiora veiktist Farquhar, hinn hvíti aðstoðarmaðurinn. Fætur hans bólgnuðu ótrúlega mikið og hann kvartaði undan verkjum um allan líkamann. Stanley varð að skilja hann eftir hjá héraðshöfðingja, ásamt nógu magni af glerperlum til að borga fyrir dvöl hans, uns leiðangurinn sneri aftur. Seinna frétti hann, að hann væri látinn. Enn rakst leiðangurinn á nýja erfiðleika. Einhver sýki kom upp í burðardýrunum og þau stráféllu, uns aðeins fimm voru eftir. Næst veiktust burðarmennirnir. Stanley sjálfur þjáðist af mýraköldu og slæmum magasjúkdómi. Leiðangursmenn voru síður en svo burðugir, þegar þeir komu til Unyanyembe í grend við Tabora. Tabora var arabisk- ur virkisbær og miðstöð fílabeins- og þrælaverzlunar þeirra, íbúarnir voru alls um fimm þúsund. Arabarnir tóku Stanley tveim höndum. Hann fór að vona, að þarna gæti hann hvílst ásamt mönnum sínum. En það var öðru nær. Það var mikil ólga í héraðinu. Strokuþræll að nafni Mirambo hafði gert sig að höfðingja stórs landsvæðis milli Tabora og Ujiji. Hann hafði safnað um sig þús- undum stríðsmanna og var nýbúinn að taka feiknháan toll af arabiskum kaupmönnum, sem fara þurftu yfir yfirráðasvæði hans. Fyrir vikið hafði hann heitið þeim að reyna ekki að hindra för þeirra. En tollinn var hann ekki fyrr búin að fá greiddan en hann rak þá til baka sömu leið og þeir höfðu komið. Stanley hafði ætlað að halda til Ujiji, þar sem hann hugðist byrja leitina að Livingstone fyrir alvöru, en nú lokaði þessi „svarti Napoleon“ leiðinni. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að hann yrði að gera bandalag við Arabana og segja Mirambo stríð á hendur. Ai'abarnir fullyrtu, að þeir mmidu geta ger- sigrað strokuþrælinn á tveim vikum, en eftir það yrði leiðin opin til Tanganyika. Stríðinu var frestað um viku vegna veikinda Stanleys, en að lokum rann upp sá dagur, að 2,000 manna lið hélt frá Tabora til þess að ganga milli bols og höfuðs á Mirambo. Allmörg þorp voru tekin og lögð í eyði og hinn sigursæli her sótti fram af miklum vígamóð. Svo náði mýrakaldan aftur tökum á Stanley og hann gat hvorki hrært legg né lið. Þegar hann komst á fætur, frétti hann, að Miramba hefði komið Aröbunum að óvörum, fellt þá flesta og stökkt her þeirra á flótta. Menn Stanleys yfirgáfu hann nú unnvörpum. Jafnvel Shaw var> búinn að fá nóg af ferðalaginu. Það var ekki um annað að velja en hörfa til baka til virkisbæjarins. Stanley var orðinn fullsaddur á orustum og Aröbum. Hann ákvað að skilja við þá. Nú var kominn september. Hann var búinn að vera á ferð í sjö mánuði, og líf Livingstone kunni að vera i veði. Hann hafði ekki um annað að velja en að sveigja Framhald á bls. 18. Ritstjórinn sendi blaðamanninn til Afríku að leita að manni. sem ffestir töldu dauðan! 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.