Vikan


Vikan - 14.02.1956, Síða 13

Vikan - 14.02.1956, Síða 13
HVER VAR ÞESSI DULARFULLI FANGI? Þeir grófu stúlkuna lifandi, vegna „öryggis rikisins44 Framhald af blaðsíðu 7. Mótmæli Lermontors stoðuðu ekkert og einni stundu eftir miðnætti leiddi yfirfangavörðurinn stúlkuna inn til þeirra. Var nú mikil breyting orðin á högum hennar, svo mikil, að Lermon- tor segist hafa brugðið. í stað fallegu kjólanna, sem hún hafði haft með sér í útlegðina, var hún klædd venjulegum fangabún- ingi, sem sýnilega hafði verið notaður áður. Hár hennar hafði verið klippt og þungum klossuðum handjárnum læst um úln- liði hennar. Hún horfði þögul á mennina, eins og hún gerði sér ekki grein fyrir því, sem var að gerast. Það var ekki fyrr en yfir- fangavörðurinn tók upp grimuna, að hún rankaði við sér. Hún hrökk við, hörfaði óttaslegin aftur á bak og hrópaði: „Hvað er þetta?“ Fangelsisstjórinn bað hana að vera rólega, en hún svaraði angistarfull: „Nei! Nei! Þið ætlið að drepa mig!“ Þá lofaði hann henni því, að ef hinn ómannúðlegi höfuðbúnaður meiddi hana á nokkurn hátt, þá skyldi hann tafarlaust fjarlægður. Óttinn skein úr augum hennar, en hún átti ekki annars úrkost- ar en treysta honum. Hún stóð með lokuð augu á meðan yfir- fangavörðurinn þrýsti „húfunni“ á höfuð henni og læsti gjörð- inni að hálsi hennar. Þá opnaði hún augun og sagði óttaslegin: „Það meiðir mig!“ Um leið felldi yfirfangavörðurinn grímuna brá hespunni í hálsgjörðina og læsti í flýti hengilásnum. Fá- einum mínútum síðar var stúlkan komin í neðanjarðarklefann. Calonne hafði það eftir Lermontor, að hann hefði oft rætt við stúlkuna, áður en hann hélt til baka til Moskvu. Hann heimsótti hana í klefa hennar strax daginn eftir þennan atburð. Þá minnti hún hann á loforð fangelsisstjórans. Lermontor bætti, að manni virðist, gráu ofan á svart með því að segja henni, að eflaust yrði gríman fjarlægð eftir fáeina daga. Sama svarið gaf hann viku seinna, og síðan enn nokkrum dögum síðar. Or því hætti hún að spyrja, og hefur að líkindum þótt það þýð- ingarlaust. Lermontor taldi ekki, að höfuðbúnaðurinn hefði beinlínis valdið henni sársauka. Þó játaði hann, að hún hefði mjög lítið getað hreyft höfuðið og raunar alls ekki getað beygt það. Skipanir hinna miskunnarlausu ráðamanna í Moskvu höfðu verið framkvæmdar, stúlkan hafði verið beitt öllum þeim grimm- úðlegu þvingunum, sem notaðar voru við harðsvíruðustu glæpamenn. Hún sat í neðanjarðarklefa, þar sem rakinn var svo mikill, að gólf og veggir flóðu sífellt í vatni. Hún bar hand- járn og fótajárn og var klædd betrunarhúsbúningi karlfanga. Og hún bar sakamannagrímuna illræmdu, sem hélt höfði henn- ar eins og í skrúfstykki. Hún var í rauninni lifandi grafin. Járn- in torvelduðu henni mjög allar hreyfingar. Þegar Lermontor kom að kveðja hana, sat hún á trébekkn- um með fangakost sinn á hnjánum. Það var lítið kringlótt op á grímunni, ,,járnmunnur,“ sem hún mataðist í gegnum. Lermontor tjáði henni, að hann mundi gera allt, sem í hans valdi stæði, til þess að fangavist hennar yrði gerð léttari. Hún horfði á hann gegnum sjónrifu grímunnar, en sagði ekkert. Og þegar hann kom til Moskvu og reyndi að efna heit sitt, kom hann allsstaðar að lokuðum dyrum. Lermontor framdi sjálfsmorð. Það er hægt að sanna. Hann hafði líka gnægð peninga, þótt enginn vissi, hvaðan hann fékk þá. Var sagan, sem hann sagði Calonne lögfræðingi, sönn? Eða var þetta eintómur tilbúningur hans eða Calonnes eða beggja? Þeirri spurningu verður naumast svarað úr þessu svo óhyggj- andi sé. Því hefur verið haldið fram, að sögurnar um stúlkuna í Bulun ættu rót sína að rekja til reyfarans fræga um mann- inn með stálgrímuna. Þetta er þó mjög hæpin fullyrðing. Vitn- in í málinu eru of mörg, og það verður ekki séð, að þau hafi á neinn hátt getað auðgast á uppljóstrunum sínum. Lermontor, sem ef til vill er mikilvægasta vitnið, bannar til dæmis að frásögn hans sé birt fyrr en að honum látnum. Meðferðin á hinni ógæfusömu stúlku er heldur ekkert eins- dæmi. Á sama tíma sem hún situr í dýflissunni í Bulun þræla tugþúsundir karla og kvenna í hinum ægilegu námum keis- arastjórnarinnar í Síberíu. Mörgum árum seinna — á 20. öld — fréttir heimurinn þar að auki um tvær konur — byltingar- sinna — sem sætt hafa litlu minna harðýðgi af hendi hinna rússnesku stjórnarvalda. Önnur situr í dýflissu í 22 ár og er svo algjörlega einangruð, að hún kann ekki að tala, þegar fangelsisdyrnar loks opnast fyrir henni. Nei, það virðist vera staðreynd, að í fangelsinu í Bulun hafi verið geymd stúlka við þær aðstæður, sem hér hefur verið lýst. Um hitt má endalaust deila, hver hún hafi verið. Var fang- inn dóttir keisarans, eða aðalsmærin Nadezhda Pisarev, eða ein- hver enn önnur? Og hver urðu endanleg örlög hennar? Lermontor skilur við hana í dýflissunni vorið 1868. Fjórum árum síðar sér Michael Krylov hana og þá ber hún enn sakamannagrímuna. Tveim- ur (?) árum síðar er hinn ónafngreindi aðalsmaður gerður út frá Moskvu til þess að semja skýrslu um „líðan og hegðan fangans Olgu Orlov.“ Honum rennur til rifja meðferðin á henni, en kemst samt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé bein- línis verið að reyna að „murka úr henni lífið.“ Þegar samtal þeirra fer fram, er hún í járnum og með grímuna. Sé frásögn Lermontors sönn, er það seytján ára gömul stúlka, sem hann flytur til Bulun. Hún er þá 23 ára, þegar aðalsmaðurinn yfirheyrir hana; í sex ár er hún búin að þola hina ómannúðlegu fangelsisvist. Urðu það örlög hennar að veslast upp í neðanjarðarklef- anum, leysti hún ,,ríkisvandann“ með því að finnast einn góð- an veðurdag látin á klefagólfinu ? Til allrar hamingju kemur fram eitt vitni enn, og vitnisburður þess gefur ástæðu til að ætla, að svo ömurlegt hafi hlutskipti hennar ekki orðið. Það er maður sá, sem getið er um í upphafi þessarar frásagnar, flótta- maðurinn, sem kom austan frá Rússlandi 1880 og rifjaði upp að nýju sögurnar um „stúlkuna með jámgrímuna.“ Maður þessi, byltingarsinni að nafni Golitsin, fullyrti, að hann hefði talað við stúlkuna og hún hefði sagt honum í trún- aði, að hún væri dóttir Alexanders keisara. Hún var þá enn i fangelsinu við Bulun, en varðhald hennar var með nokkuð væg- ara móti. Þannig var henni nú hlíft við að bera sakamanna- Framháld á bls. 18. E,N rÓ^T ^R/N JIAÐUK NOKKUR var búinn að fá þá flugn í höfuðið, að hann væri dauður. Læknirinn lét hann taka sér stöðu fyrir framan spegil ogemlurtaka í sifellu: „Það blæðir ekki úr clauðum mönnum.“ Svo stakk hann títuprjón í hantllegg- inn á honum, svo að úr blæddi. „Jæja, sérðu nú?“ sagði læknir- inn sigri hrósandi. „Hvort ég sé.'“ ansaði maður- inn. „Það b 1 æ ð i r úr dauðum mönnurn." ÞEGAJt HJÓN ein fórust í bíi- slysi, skildu með þeim leiðir. Þegar eiginkonan var komin til liimnarikis, hringdi hún strax á manninn sinn. „Hvernig hefurðu það þarna neðra?“ spurði húii. „Ágætt,“ svaraði eiginmaður- inn. „Við þurfum ekkert annað að gera en ganga í rauðum fötum og vera með liorn og moka svo- lítið á eldinn öðru hvoru. Við vinnum sjaldnast lengur en tvo tíma á sólarliring. En segðu mér, hvernig er það þarna efra?“ „Æ, minnstu ekki á það,“ sagði eiginkonan. „Við verðum að fara á fætur klukkan fjögur að safna saman stjörnunum; svo verðum við að drösla tunglinu inn og liengja út sólina. Loks verðum við að rogast fram og aftur með skýin allan liðlangan daginn.“ „En hversvegna þurfið þið að erfiða svona ,“ spurði eiginmaður- inn. „Satt að segja,“ svaraði konan, „erum við anzi liðfá hérna uppi.“ JÓN HAFÐI aklrei áður komist í kast við yfirvöldin, en nú stóð hann frammi fyrir sýslumannin- um sakaður um að hafa stolið kálfi frá Karli nágranna sínum. Sýslumaður spurði, hvað hann hefði gert við kálfinn. „Ég át hann, sýslumaður góð- ur.“ „Það er þokkalegt eða hitt þó heldur. Og hvað lieldurðu þú get- ir sagt þér til varnar á dóms- degi, Jón, þegar þú verður Ieidd- ur fyrir kálfinn og eiganda hans og Iiarl lýsir yfir, að þú hafir stolið lionum?" „Sögðuð þér, sýslumaður minn, að kálfurinn yrði viðstaddur líka ?« „Það gerði ég vissulega,“ „Jæja, þá mundi ég segja: Gerðu svo vel, Kalli, hérna er kálfurinn þinn.“ TVÖ MJÖLKURBtr voru komin í harðvítugt viðskiptastríð. Annað þeirra fékk kappakstursgarp til að aka eins og vitlausan mann um bæinn með auglýsingaspjald, sem á var ritað: „Þessi fullhugi drekkur mjólkina okkar.“ Hitt mjólkurhúið siaraði með svofelldri auglýsingu: „Menn þurfa ekki að vera fullhugar til þess að drekka o k k a r mjólk.“ ÞEGAE ENDURSKOÐANDINN fór á fætur um morguninn, trúði liann konunni sinni fyrir því, að hann hefði varla blundað um nóttina. „Hversvegna reyndirðu ekki að telja kindúr?“ spurði konan. „Einmitt jiað sem ég gerði. En ég mistaldi mig á fyrsta hundr- aðinu og var fram undir morgun að finna skekkjuna.“. 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.