Vikan


Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 2

Vikan - 05.09.1956, Blaðsíða 2
Bg er stúlka á seytjánda ári og er með einskonar flugdellu, en það cr ekki flugfreyjustarf sem ég er að tiugsa um. Ég vil aðeins verða flug- kona, sem sagt að lœra að fljúga sjálf. Ef ég hef orð á þessu við ein- hvern, reka allir upp stór augu og segja „þú getur aldrei laert að fljúga“. Mér finnst þetta hreint ekki uppörvandi og svo kemur að því sem ég œtlaði upphaflega að spyrja um. Getið þið veitt mér upplýsingar varð- andi t. d, námskostnað, hvernig kennslu er liagað, hvort ekki er hœgt að vinna samfara námi? Parf ein- hverja menntun eða sérstök próf til að fá inngöngu í flugskóla? Er tak- markaður aldur? Parf heilbrigðis- skírteini? Hvert á ég svo að snúa mér, ef um fleiri en einn flugskóla er að rœða . . . SVAR: Þú skalt ekkert láta það á þig fá, þó öðrum lítizt ekki á fyrir- ætlun þína. Það eru margar flug- konur til í heiminum, sem hafa sýnt það og sannað, að það liggur ekkert síður vel fyrir konum að fljúga en karlmönnum. Hér á íslandi er a. m. k. ein stúlka, sem hefur lokið full- komnu flugmannsprófi, og fleiri hafa hið svokallaða „sólópróf". Þú skalt snúa þér til Flugskólans Þyts, eða skólastjóra hans, Karls Eiríkssonar. Náminu er þannig hagað að þú getur auðveldlega unnið með því. Hvað aldrinum viðkemur, þá þarftu að vera orðin 18 ára til að fá próf, heilbrigðisvottorð þarftu líka að leggja fram. Annars er bezt fyrir þig að fá nánari upplýsingar hjá skólastjóranum. 1 32. tbl. Vikunnar birtum við dæg- urlagatexta, sem Tónasystur syngja, en af einhverjum mistökum birtist lokaerindi úr öðru Jjóði í staðinn fyrir tvö síðustu erindii-, sem eru svona: Á sigling glæsti'i um hyidjúp höf þú hugsar um mig. Mín von og dáð af dimmri gröf er draumur um þig. Til mín — til mín þú kemur vísfc senn og bíð þín, b«d þín enn. Til mín — til mín þú kemur víst senn. Ég bíð þín, bíð þín enn. En þótt þú aldrei eigir leið að eilífu heim, mun brimið hvísla í beiskri neyð úr bládýpi skein Til mín — til mín o. s. frv. Lesendur eru l>eðnir velvirðingar á þessu. Viltu gjöra svo ,vel og segja mér eitthvað um sœnsku leikkonuna Ullu Jacobson. Hvað er hún gömul? Er liún gift? Og viltu svo gefa mér utanáskrift hennar. SVAR: Sænska leikkonan Ulla Jacobson, sem hlaut frægð fyrir leik sinn í myndinni ,,Hún dansaði eitt sumar", kom í stutta heimsókn til Framháld á bls. lJf. Á blaðsíðu 10 er sagt frá keppni um aðalhlut- verkið í kvikmyndinni, sem gerð er eftir sögunni ,,Sumarástir“. Nú eru úrslitin komin. Sú sem varð hlut- skörpust heitir Gisele Franchomme, er 17 ára gamall menntaskólanerh- andi, sem hefur aldrei leikið. Hún er ljóshærð með græn augu, 1,72 sm. á hæð og 56,5 kg. á þyngd. Svona á þá söguhetjan Cécile að líta út í myndinni. Forsíöumyndina tók Hjálmar R. Bárðarson af Hannesi Jónssyni á Núps- stöðum. HEIMILISTÆKIN Höfum fyrirliggjandi flestar stærðir og gerðir af CROSLEY heimilistækjum ☆ ELDAVÉLAR KÆLISKÁPAR VASKAR UPPÞVOTTAVÉLAR KVARNIR VIFTUR ☆ Gjörið svo vel að líta inn í RAFTÆKJADEILD okkar JOHNSON & KAABER H.F. RAFTÆKJADEILD, Hafnarstræti 1 Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J- Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.