Vikan - 05.09.1956, Page 11
EVA WIND er fyrir ýmsra hluta sakir
óvenjuleg stúlka. Hún er lagleg og
fallega vaxin, og um þessar mundir sýn-
ir hún kjóla á tízkusýningum í London.
Hún varð fyrir skemmstu 21 árs. En þótt
hún sé ung að árum, þá hefur hún ratað
í fleiri ævintýri en margur gerir á heillri
mannsævi.
Henni er ævintýraþráin í blóð borin.
Hún lítur þeim augum á tilveruna, að hún
geti því aðeins orðið skemmtileg og til-
breytingarík, að menn þori að tefla dá-
lítið á tvísýnu. Og hún þykist hafa reynsl-
una fyrir því, að þá, sem heima sitja, láti
hin eftirsóknarverðu ævintýri oftast eiga
sig, að maður verði að leggja land undir
fót og bókstaflega leita þau uppi.
Eva fæddist í Birmingham. Hún var 15
ára þegar hún hætti í skóla og síðan
hefur hún unnið allt milli himins og jarð-
ar. Hún hefur dvalist með Tataraflokki í
Granadafjöllum á Spáni; hún hefur unnið
við uppskerustörf á frönskum vínekrum;
hún hefur sýnt föt á Rivierunni; hún hef-
ur starfað á skipum; hún hefur verið upp-
þvottastúlka í veitingahúsi.
Fyrstu árin eftir að hún hætti skóla-
göngu var hún þjónustustúlka uppi í sveit,
vinnukona í Nottingham og síðan í þrjá
mánuði matreiðslukona og bamfóstra á
listisnekkju auðugra hjóna.
Þégar hún fór frá þeim, hafnaði hún í
London, þar sem hún réðist í vist, þar til
ferðaþráin rak hana enn af stað og við
tóku 18 mánuðir af samfeldum ævintýr-
um.
„Mig langaði að sjá Evrópu,“ segir hún.
„Ég hafði safnað mér dálitlum pening-
um, og ég hugsaði sem svo, að ef ég leggði
land undir fót og ynni fyrir mér þegar
með þyrfti, gæti ég haft það ágætt.“
Hún var því ekki fyrr komin til Frakk-
lands, en hún þrammaði af stað upp í
sveit. Margir urðu til þess að gefa henni
far í bílum sínum. „Ég hafði enga sér-
staka ferðaáætlun,“ segir hún, „elti bara
nefið á mér. Um nætur dvaldist ég í sælu-
húsum og farfuglaskýlum, þar sem gist-
ingin kostaði ekkert eða sama sem ekkert.
Það eina, sem ég þurfti að borga fyrir,
var maturinn. Það er makalaust, hve litlu
maður eyðir með þessu móti.“
Þegar hún kom til Briissel, var hún samt
orðin peningalítil, svo að hún fór á stúf-
ana að leita sér að vinnu. Hún varð barn-
fóstra hjá belgiskri fjölskyldu. Það var
sumar, og eftir nokkurra vikna dvöl í
borginni, fór fjölskyldan upp í sveit og
nýja bamfóstran fylgdi henni.
Um haustið sagði hún upp vistinni og
hélt enn af stað. Hún komst til Þýzka-
lands og Danmerkur, þar sem htn sá lít-
ið brezkt kaupfar og fór um borð að
spjalla við landa sína. Árangurinn var sá,
að hún fékk ókeypis far til baka til Þýzka-
lands.
„Svo fór ég aftur til Frakklands," held-
ur hún áfram, „og dvaldist nokkra daga
í París. Mér fannst tími til kojminn að
ég stækkaði sjóðinn minn dálítið, svo að
egar Frakki nokkur fyrir skemmstu
tjáði dómstólunum, að hann hefði
ekki efni á að greiða stúlkunni, sem
hann hafði verið giftur, lífeyri, varð hún
svo gröm, að hún ákvað að sýna það
svart á hvítu, að hann færi með stað-
lausa stafi.
Og þannig komst upp um einn svæsn-
asta glæpamann Frakklands.
Maðurinn hennar fyri’verandi, lýsti
stúlkan yfir, var síður en svo fátækur
kaupsýslumaður, eins og hann gaf í
skyn. Hann var bíræfinn og kænn inn-
brotsþjófur og geymdi hagnaðinn af
ránsferðum sínum í fjórum bankahólf-
um.
Leynilögreglan franska rannsakaði
framburð hennar, og árangurinn varð
sá, að maðurinn var dæmdur til tíu
ára fangelsisvistar.
Réttvísin á sér stundum öflugan
bandamamn þar sem ástarguðinn er.
Einn af skæðustu vasaþjófum Feneyja
véit það að minnsta kosti af sárri
reynslu. Hann var hreinasti töframað-
ur með hendumar á sér og stal að með-
altali fimm peningaveskjum á dag.
Ferðamenn voru fórnarlömb hans.
Carlo ,,vann“ aðeins þrjá mánuði árs-
ins, en árstekjur hans hafa verið áætl-
aðar nærri hálfri milljón króna. Hina
mánuðina var hann í „fríi“ í Juan les
Pins, þar sem hann átti íburðarmikið
fjölbýlishús, fínan bíl — og kærustur.
Meðan hann stal einungis veskjum,
gekk allt að óskum. En þegar hann stal
forláta hálsmeni á grímudansleik í San
Remo og gaf einni kærustunni það,
fór illa fyrir honum.
Stúlkan las í blöðunum lýsingu á hinu
stolna djásni og krafðist verðlaunanna,
sem þeim var heitið, sem skilaði því.
Jú, Carlo hinn kvensami hafnaði í
Steininum.
Á svipaðan hátt var 26 ára gamall
ævintýramaður í senn hjartaþjófur og
peningaþjófur á frönsku Rivierunni.
Raunar staj hann skartgripum líka.
Svo stórtækur var hann, að mánað-
artekjur hans námu tugum þúsunda.
Þetta gekk eins og í sögu, þar til
hann einn góðan veðurdag stóðst ekki
freystinguna og gaf nýjustu vinkonunni
sinni nokkra af skartgripunum, sem
hann var nýbúinn að stela.
Þegar hún sendi armband til viðgerð-
ar hjá gullsmið, kannaðist hann við
það sem stolið. Slóð J*ess var rakin til
kvennag-ullsins fingralipra og lögregl-
unni tókst að hafa upp á skartgripasala
í Tangier, sem játaði að hafa kaypt
stolna skartgripi af þeim handtekna.
Þegar hér var komið, gafst sökudólg-
urinn upp og játaði að hafa . stolið
skartgripum, sem samtals voru virtir á
nærri fimm milljónir króna.
Þessi unga stúlka segir:
MAÐUR VERÐUR AÐ LEITA
AÐ ÆVINTYRUNUM
ég hélt inn í Mið-Frakkland í leit að upp-
skeruvinnu. En þar var litla vinnu að fá
á þessum tíma árs, og enn rýrnaði sjóð-
urinn. Þá var mér sagt, að ég kynni að
fá vinnu í grennd við Bordeaux, þar sem
vínuppskeran var að hefjast. Svo að ég
lagði af stað til Bordeaux. Ég fór auð-
vitað fótgangandi, en margir urðu til þess
að gefa mér far spotta og spotta. Þegar á
áfangastað kom, vann ég í þrjár vikur á
vínekrunum."
Næst lá leiðin til Spánar og nýrra ævin-
týra. Hún var kaupakona á spænskum
bæ um hríð. Svo fór hún að skoða land-
ið og fór fótgangandi eins og fyrri dag-
inn. Einn daginn bauð vörubílstjóri henni
far, og þegar þau komu til smábæjar eins,
bauð hann henni upp á kaffi.
Þau fóru inn í krá, þar sem koma henn-
ar virtist vekja talsverða athygli. Nokkr-
um mínútum síðar birtist lögreglan.
Lögregluþjónamir horfðu grunsemdar-
augum á útiteknu stúlkuna með bakpok-
ann og fóru með hana niður á lögreglu-
stöð.
Það var leitað á henni og síðan var
hún læst inni í klefa. I klefanum var henni
haldið í tvo daga, á meðan lögreglan spurð-
ist fyrir um hana. Lögreglufulltrúinn átti
erfitt með að skilja, hvað kornung stúlka
Framhald á bls. 14.
Ástarguðinn öflugur bandamaður
11