Vikan


Vikan - 08.11.1956, Síða 14

Vikan - 08.11.1956, Síða 14
834. KROSSGÁTA VIKUNNAR. Ldrétt skýring: 1 kvendýr — 4 í húsi, þf. — 7 lyndiseinkunn — 10 málmur — 11 hugur — 12 raup — 14 einkennisstafir — 15 reikningsskapur — 16 hérað í Noregi - 17 tónn — 18 menn — 19 iengdarmál — 20 stórfljót — 21 afleiðslu- og beygingar- ending — 23 kveina - 24 feitur — 25 tæp — 26 ófrjó — 27 rétt — 28 á litinn - 29 skarð - 30 þyngdarmál — 32 áflog — 33 úlf — 34 bein — 35 tónn — 36 amboð — 37 dreytill 38 afkomandi — 39 flýtinn ........ 41 hlý — 42 farartæki -— 43 dýra — 44 áreiðanlegur 45 dæld - - 46 á fuglsfæti — 47 bókstafur — 48 vax- borinn dúkur 50 beygingarending — 51 prik 52 — 15 lárétt — 53 eldfæri, þf. (fornt) — 54 nakið — 55 úrgangur — 56 upphrópun — 57 vondir — 59 lindar - 60 hlassið 61 haf yndi af — 62 mjólkurmatur - 63 lengdarmál — 64 vísinda- mannsefni. Lóörétt skýrmg: 1 hin andlega geymd — 2 tré 3 tveir eins — 4 mannsnafn 5 máttur 6 lrumefni 7 brenna — 8 frískleg —- 9 tveir eins — 11 hrumur niaður — 3 2 vindnr — 13 hús - 15 mállýti — 16 fiskur — 17 velklæddur — 18 f.keldýr, þf. 3 9 tóntegund — 20 stolið — 22 karldýr — 23 vxn — 24 hraust — 26 dómur — 27 erfið undir tönn — 29 not — 30 fót - - 31 ungviði — 33 vinkona - 34 þýzk borr, — 35 ljósker — 36 vökvi — 37 stillur 38 dýrahljóð 40 hæg- i'ara 41 stc.f — 42 augnsjúkdómur — 44 raup — 45 jarðvegsefni — 47 vökva- iaus 38 vík — 49 skip 51 leiðinlegt —- 52 svall - 53 óþokki — 54 fói'n — 55 jneiðsl - 56 ljómi 58 lána 59 keyrðu 60 selja upp 62 tveir samstæðir • 63 forsetning. Lausn á krossgátu nr. 833. LÁr.ÉTT: 1 farmannastétt — 11 mun — 12 ógn — 13 sút — 14 rif — 16 Emil ic' valr — 20 sár — 21 mör — 22 hof — 23 í's — 27 um — 28 ein — 29 melónur 30 orf — 31 in — 34 ta — 35 bókaútgáfan -— 41 Aróma — 42 írena — 43 Karla- ■agnús — 47 sl. — 49 té — 50 vot — 51 alfræði ■— 52 val — 53 es — 56 la — 57 bær — 58 mús — 59 sæl - 61 náin — 65 rosi 67 ill — 68 lút — 71 sót — 73 kóð — 74 fallvaltleiki. LÓÐRÉTT: 1 fum — 2 anis — 3 mó — 4 agg — 5 nn — 6 as — 7 súr — 8 tt — 9 traf -— 10 til — 11 meðreiðarsveini -— 15 framfarafélagið — 17 lát — 18 görótt — 19 vor — 24 sin — 25 meta -— 26 Gulá — 27 urt •— 32 lómar — 33 Garún — 35 bók — 36 kar — 37 úða - - 38 góa — 39 fín — 40 nes — 44 lull — 45 Markús - 46 goði — 48 los — 49 tal — 54 væn — 55 vær — 57 bila -— 60 lokk —- 62 álf — 63 uúv — 64 hól — 66 sói — 68 11 — 70 ta — 71 st — 72 te. AFBRAGÐS LEIKKONA Framhald af hls. 11. barn. Svo kom ég hingað. Ég hélt að þú mundir kannski skilja þetta og . . . Hún lauk ekki við setninguna, byrjaði bara að hrína -— alveg eins og krakki. En nú var ég allt í einu kominn á hnén við hliðina á henni. Einhvem veginn lá handleggurinn á mér yfir herðarnar á henni og ég þuldi bjánalegustu setning- arnar, sem ég hef nokkurn tíma heyrt á leikferli mínum. Og það sem furðulegra var, mér var fúlasta alvara. Það var. komið miðnætti, þegar við leit- uðum uppi veitingahús og pöntuðum okk- ur steikt egg og kaffi . . . Það hefur kannski verið þessari hollu fæðu að þakka — eins og að líkindum lætur hefur Júlía mætur á þeim hollasta mat sem hugsast getur — en eitt er víst, henni batnaði kvefið á örskömmum tíma. Og um það leyti sem leikferðinni var að l’úka, lék hún betur en nokkru sinni fyrr. Satt að segja sá ég hana aðeins leika illa í eitt einasta skipti og það var þegar við komum aftur til New York. En þá var hún auðvitað mjög taugaóstyrk, þar sem hún var að fylla út sinn hluta af um- sóknareyðublaðinu vegna giftingarleyfis- ins. Hefði hún ekki verið svona utan við sig, þá hefði hún áreiðanlega aldrei skrif- að „Chicago, Illinois" í línuna, sem ætluð er undir fæðingarstað brúðarinnar. Þegar hún var búin að því, sagði ég — I Chicago, elskan? Mig minnir að þú segð- ist vera fædd í Cincinnati. Hún leit bara á mig og roðnaði upp í hársrætur, ofurhægt. I fyrsta sinn á leik- ferli sínum var hún nú búin að gleyma því hvað hún átti að segja. Sektarsvipur- inn á henni var svo greinilegur, að ég gat ekki annað en hlegið. Og það gerði ég hjartanlega. — Þú ert engin smáræðis leikkona, elskan! Þú átt áreiðanlega mikla fram- tíð í vændum, eða heldurðu það ekki? — Jú, tvenns konar framtíð, sagði hún og hélt áfram að roðna. Svo stakk hún hendinni undir handlegginn á mér, vinstri handlegginn auðvitað, því ég var að skrifa undir giftingarleyfið okkar með hægri hendinni. í FJÖTRUM MINNINGANNA Framhald af bls. 5 stúlku, með alla sjaldgæfu kostina, sem hét Marque, og bráðum átti að bera nafn Quentins Maufroy. Þar sem ég gat ekki sofið, fór ég fram úr, kveikti á lampanum og skoðaði fallegu mynd- irnar i ,,Pjaðrakjólnum“. Þessi saga hefði verið dönsuð í brúðkaupi mínu. En nú vissi ég að ég yrði aldrei brúður neins. Morguninn eftir kom frú Sakai inn, hress í bragði. — Klukkan hvað ferðu út í borgina í dag, Youliko san? — Það er of kalt. Ég ætla ekki út I dag. Og ég fór ekki á stefnumótið við Quentin Maufroy. Nú gengur hnerrinn í garð Framhald af bls. 9. bann við því, að menn hnerruðu í návist hans. Svo henti það unga stúlku, að hún bókstaflega varð að hnerra í salnum, þar sem hann var staddur. Hún tók það til ráðs að reka höfuðið ofan í risastóran blómsturvasa og hnerra þar. En hnerrinn bergmálaði í vasan- um og barst eins og fallbyssuskot að eyrum einvaldsins. „Hálshöggið hana!“ skipaði hann. Og hálshöggin hefði hún verið fyrir yfirsjónina, ef Saw drottning hefði ekki séð aumur á henni. Hún vakti athygli kóngsins á því, að einn af titlum hans var: „Meistari hinna níu- tíu og átta sjúkdóma,“ og bætti við: „Ef þetta er rétt, ertu auðvitað ónæmur fyrir jafn algengum sjúkdpmum og kvefi og hnerra, pg nú er að sjá, að þú ætlist til þess, að aumingja stúikán.,úe. áííka ónæm fyrir hnerra. Með því að dæma hana til dauðá, ertu því í rauninni aðeins að sýna henni sérstakan sóma.“ Kóngnum fannst svo mikið til um þessi rök, að hann fyrir- gáf söfeudólgnum. Að lpkúm má svo geta þess, að bandarískur morðingi hafn- aði eitt sinn í rafmagnsstólnum — af því hann hnerraði. 1 Hann var að drekka kaffi í veitingahúsi í New York, þeg- ar að honum setti óskaplegan hnerra, með þeim afleiðingum, að hann missti bollann úr hendi sér. Bollinn brotnaði, og leynilögreglumaður, sem þarna var staddur, léit upp þegar hann heyrði hávaðann. Hann uppgötv- aði samstúndis, að hnerrandinn var eftirlýstur morðingi, og handtök hann. MENN A TUNGLINU Framhald af bls. 3. ákveðið að endurprenta Sun-greinarnar, skrapp þetta upp úr Locke: „Blessaður farðu varlega. Ég samdi þetta allt saman sjálfur.“ Blaðamaðurinn hljóp alla leið til ritstjórnarskrifstofunnar sinnar — og þar með var hinni geigvænlegu fréttafölsun lokið. Það kom á daginn, að Locke var talsverður vísindamaður, þótt hann hefði lagt blaðamennskuna fyrir sig. Hann hafði ár- um saman haft mikinn áhuga á starfi Sir Johns Herschel og hafði raunar einu sinni talað við hinn mikla mann. Daginn eftir voru menn í New York vægast sagt talsvert kjánalegir á svip. Ákaflega feimnir og hlédrægir urðu þeir líka allt í einu vísindamennirnir, sem látið höfðu í veðri vaka, að „uppgötvanir Sir Johns“ kæmu þeim ekki aldeilis á óvart. Þeir kusu margir að vera veikir í nokkra daga. Keppinautar Sun gerðu mikið úr fölsuninni. En ritstjóri blaðsins neitaði samt afdráttarlaust að játa, að það væru engar fljúgandi manneskjur á tunglinu, og Sun hélt áfram að vera út- breiddasta dagblaðið í víðri veröld. Og hvað um Sir John Herschel, sem starfaði í kyrrþey að stjörnuvísindum sínum í Höfðaborg og hafði ekki hugmynd um, að hann var orðinn frægur í Ameríku? Hann hlýtur að hafa verið gæddur mikilli kýmnigáfu, því að þegar honum barst fregnin um Sun-greinarnar, hló hann góðlátlega og kvaðst ótt- ast, að hann yrði seint verður þess trausts, sem íbúarnir í New York höfðu sýnt honum. — JOHN MALONEY. 14

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.