Fréttablaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 4
4 25. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR Í frómas Skaparans sem fjallað er um á blaðsíðu 60 í Jólablaði Fréttablaðs- ins í gær eiga líka að fara 1 til 2 tsk. af vanilludropum eða 1 msk. af sérríi eða koníaki. Þá skal áréttað að fyrsti sunnudagur í aðventu er 29. nóvember. LEIÐRÉTTING ALÞINGI Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra var ekki kunnugt um að ráðgjafi hans, Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur, hygðist gera kröfu upp á 230 milljónir í bú Landsbankans. Árni Páll upplýsti það í svari við fyrir- spurn Gunnars Braga Sveins- sonar, Fram- sóknarflokki, á þingi í gær. Sagði Árni Páll að það væri ekki sitt að fella dóma um kröfu Yngva Arnar en sjálfur hefði hann ekki gert slíka kröfu. Gunnar Bragi vildi fá svör um hvort Árni Páll styddi kröfu Yngva Arnar og teldi hana sið- ferðislega rétta. Árni Páll svaraði þeim spurningum ekki. - bþs Krafa Yngva í Landsbankabúið: Árni hefði ekki gert slíka kröfu ÁRNI PÁLL ÁRNASON FJÖLMIÐLAR Þóra Kristín Ásgeirs- dóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, telur að ríkisvaldið eigi að styðja við fjölmiðla til að tryggja innviði þeirra og lýðræðislega umræðu. Slíkt sé alþekkt á Norðurlöndunum. Hún saknar ákvæðis þar um í frumvarpi um fjölmiðlalög sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu vikum. „Í frumvarpinu er ekki tekin afstaða til þessarar spurningar. Við erum eina þjóðin á Norðurlönd- um þar sem enginn stuðningur er við aðra fjölmiðla en ríkisútvarp. Mér finnst að við eigum að skoða allar leiðir til að efla fjölmiðla og tryggja fjölbreytni og fjölræði þar. Við stöndum uppi með fjölmiðla á brauðfótum og mikil óánægja er með ástandið þar. Ég held að við þurfum að taka afstöðu til þessarar spurningar til að ná árangri.“ Þóra segist ánægð með ýmis- legt í frumvarpinu; ábyrgðarregl- ur séu samræmdar á milli prent- og ljósvakamiðla og ákvæði séu um gagnsæi eignarhalds og vernd heimildarmanna. Ákvæði um sjálf- stæði ritstjórna gangi hins vegar allt of skammt og selji mönnum sjálfdæmi. „Þá finnst mér hlutverk fjölmiðla- stofu óljóst og sakna þess að engin jafnréttisákvæði séu í frumvarp- inu þrátt fyrir að augljóslega sé pottur þar brotinn. Eftir alla þá umræðu sem hefur verið í samfélaginu um fjölmiðlalög má segja að þetta séu vonbrigði.“ Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra segir að með frum- varpinu verði tilskipun Evrópu- sambandsins um fjölmiðla innleidd. Hlutverk fjölmiðlastofu verði að fylgjast með að fjölmiðl- ar fari að settum reglum, til að mynda varðandi áfengisauglýs- ingar og fleira í þeim dúr. Þá hafi hún ákveðnu eftirlitshlutverki að gegna, til dæmis varðandi eignar- hald fjölmiðla. Frumvarpið hefur verið til kynningar á vef menntamálaráðu- neytisins og hafa gefist tækifæri til athugasemda. Það verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum og segir Katrín að menntamálanefnd muni hafa góðan tíma til að fara yfir málin. Stjórn Blaðamanna- félagsins mun álykta um frum- varpið þegar það verður lagt fyrir þingnefnd. Starfshópur sem er með málefni Ríkisútvarpsins til endurskoðun- ar lýkur vinnu sinni fyrir mánaða- mót. Katrín segir efnivið þeirrar vinnu verða notaðan til að endur- nýja þjónustusamning og einn- ig til skoðunar á lagaumhverfi Ríkisútvarpsins. kolbeinn@frettabladid.is Vill að fjölmiðlar fái stuðning frá ríkinu Formaður Blaðamannafélagsins vill að fjölmiðlar fái stuðning frá ríkinu. Nýtt frumvarp um fjölmiðla er á leið inn á Alþingi. Fjölmiðlastofa mun hafa eftirlit með fjölmiðlum. Málefni Ríkisútvarpsins eru til skoðunar hjá starfshópi. DAGBLÖÐ Með nýju fjölmiðlalögunum verður löggjöf um prent- og ljósvakamiðla sameinuð. Stofnuð verður fjölmiðlastofa sem hefur eftirlit með fjölmiðlum. Frum- varpið fer fyrir Alþingi á næstu dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÞÓRA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR KATRÍN JAKOBSDÓTTIR DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku sem var tólf ára þegar hann hóf athæf- ið. Hann var nítján ára þegar fyrstu brotin áttu sér stað. Hann hafði samræði við stúlkuna ellefu sinnum þegar hún var tólf og þrettán ára gömul, á árunum 1994 og 1995. Hún var þá að gæta barna fyrir systur sína og bjó maðurinn í næsta húsi. Í dómi Héraðsdóms Suðurlands kemur fram að stúlkan eigi að baki innlögn á bráðageðdeild Land- spítalans eftir að brotið var á henni. Ástæðan var þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Samkvæmt vottorði geðlæknis sem annast hefur stúlkuna eftir það hefur hún þjáðst af djúpum og lamandi þunglyndisköstum sem erfitt hefur reynst að ráða við með lyfjum. Við ákvörðun refsingar tók héraðs dómur mið af refsirammanum sem var í gildi þegar brotin voru framin og jafnframt hversu langt var síðan þau áttu sér stað. Frá þeim tíma hefði maðurinn stofnað fjöl- skyldu og eignast tvö börn. Með hliðsjón af því var dómurinn skilorðsbundinn. Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í miskabætur. - jss Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fimmtán mánaða fangelsi: Braut gegn tólf ára stúlkubarni HÉRAÐSDÓMUR Maðurinn var dæmdur í Héraðsdómi Suður- lands. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 13° 12° 12° 13° 13° 15° 11° 11° 24° 14° 19° 14° 25° 9° 11° 18° 9° Á MORGUN Strekkingur nokkuð víða FÖSTUDAGUR Strekkingur allra vestast en annars hægari -2 -1 -3 -4 -1 -1 1 1 3 3 3 6 4 6 -1 4 3 2 3 2 13 14 16 17 15 13 8 16 13 16 13 VINDASAMT Það verður vinda- samt á landinu í dag og fram á morgundaginn en síðan fer að draga úr vindi. Einnig dregur úr úrkomu norðan- og aust- anlands á morgun en á Suður- og Vesturlandi verður hins vegar nokkuð bjart. -3 Ingibjörg Karlsdóttir Veður- fréttamaður KÍNA, AP Tveir menn voru líflátnir í Kína í gær vegna framleiðslu og sölu á eitruðu mjólkurdufti, sem kostaði að minnsta kosti sex börn lífið síðastliðið vor. Talið er að meira en 300 þús- und manns hafi veikst eftir að hafa neytt mjólkurduftsins. Í duftinu var efni sem getur vald- ið nýrnabilun og nýrnasteinum. Efninu var bætt út í til þess að leyna því að mjólkin hafði verið útþynnt með vatni. Mennirnir báðir voru fram- kvæmdastjórar í fyrirtækinu Sanlu, sem framleiddi duftið. Þrír aðrir yfirmenn hlutu fimm til fimmtán ára fangelsisdóma. - gb Eitraða mjólkin í Kína: Tveir yfirmenn voru líflátnir HARMUR Ein mæðranna sem misstu barn vegna mjólkurinnar. NORDICPHOTOS/AFP ALÞJÓÐAMÁL Jón Bjarnason, sjávar útvegs- og landbúnaðar- ráðherra, undirritaði alþjóða- samning um aðgerðir hafríkja gegn ólöglegum fiskveiðum í Róm. Jón var þar staddur á aðal- fundi Matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Samningurinn kveður á um að aðildarríki verða að loka höfnum sínum fyrir erlendum skipum sem uppvís hafa orðið að ólöglegum fiskveiðum. Í ávarpi sínu á fundinum lagði ráðherra áherslu á mikilvægi þess að huga að hlut fiskveiða og landbúnaðar í þróunaraðstoð. - kóp Sáttmáli um aðgerðir hafríkja: Gegn ólögleg- um fiskveiðum Meiri veiði en í fyrra Krókaaflamarksbátar veiddu á fyrstu tveimur mánuðum fiskveiðiársins 3.692 tonn af þorski sem er 14,8 prósent af heilsársaflamarki þeirra. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 11,1 prósent. Aflamarksskip veiddu einnig hærra hlutfall nú en í fyrra, eða 17,6 prósent af aflaheimildum sínum í þorski á móti 15,7 prósentum í fyrra. SJÁVARÚTVEGSMÁL Vilja sparnaðarhugmyndir Á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar er auglýst eftir tillögum frá íbúum sveitarfélagsins og þeim boðið að senda inn hugmyndir og ábendingar um sparnað og/eða leiðir til þess að bæta starfsemi sveitarfélagsins. Allar hugmyndir eru vel þegnar og verða ræddar innan stjórnsýslunnar. GRUNDARFJÖRÐUR GENGIÐ 24.11.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 235,8831 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,66 123,24 202,69 203,67 183,22 184,24 24,619 24,763 21,847 21,975 17,732 17,836 1,3809 1,3889 196,28 197,44 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.