Fréttablaðið - 25.11.2009, Page 22

Fréttablaðið - 25.11.2009, Page 22
 25. NÓVEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR Þótt Bókatíðindi, sem koma út í nóvember á hverju ári, flokk- ist strangt til tekið undir aug- lýsingarit má líka líta á þau sem mikilvægt uppfletti- og yfirlits- rit, en þar er að finna kynningu á helstu útgáfubókum ársins. „Fyrsti vísir að Bókatíðindum varð til fljótlega eftir að Félag ís- lenskra bókaútgefenda (Bóksala- félag Íslands) var stofnað árið 1889 en upp frá því fóru menn að taka saman lista yfir hvað væri til af bókum í landinu,“ segir Kristj- án B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Fyrsta bókaskráin kom út árið 1890 og hefur komið út nánast sleitulaust síðan.“ Fyrir síðari heimsstyrjöldina var einungis um að ræða nokk- ur hundruð titla á ári en meðan á henni stóð fjölgaði þeim til muna. Eftir stríð dró hins vegar úr útgáfu þar til hún tók kipp á sjöunda ára- tugnum. „Þá var bókaskráin orðin nokkuð fornfáleg og komu fyrstu Íslensku bókatíðindin út árið 1974. Í þeim voru hins vegar engar inni- haldslýsingar eins og verið hafði í bókaskránni,“ segir Kristján. Á árunum 1983-1985 komu Ís- lensku bókatíðindin út í dagblaðs- formi með Morgunblaðinu en í þeim var bæði að finna kápumynd- ir og innihaldslýsingar. „Árið 1986 komu Íslensku bókatíðindin út sem sérstakt rit í glansblaðaformi en þau hafa verið í núverandi broti undir heitinu Bókatíðindi frá árinu 1991,“ segir Kristján. Allt frá árinu 1983 hefur form Bókatíðindanna verið hið sama: Kápumynd af bók, titill, höfundur, innihaldslýsing, verð og aðrar upp- lýsingar. Bókatíðindunum er skipt niður í ævisögur, fræðibækur og bækur almenns efnis og handbæk- ur en Kristján segir fræðibókum sífellt fjölga og eru þær ívið fleiri í ár en í fyrra. - ve Fræðibókum fer fjölgandi Fyrsti vísir að Bókatíðindum varð til fljót- lega eftir að Félag íslenskra bókaútgefenda var stofnað árið 1889. Bókaútgáfan Skrudda gefur út bókina Heitar laugar á Íslandi. Þar greinir frá ósnortnum nátt- úrulaugum og manngerðum laugum sem skemmtilegt er að skoða og njóta. „Ég er alltaf á fjöllum,“ svarar Jón G. Snæland, höfundur bókarinn- ar Heitar laugar á Íslandi, þegar hann er inntur eftir því hvernig hann viti af svona mörgum laug- um á landinu. Jón skrifaði bókina með konu sinni, Þóru Sigurbjörns- dóttur, en hann hefur einnig skrif- að fleiri bækur sem tengjast óbil- andi áhuga hans á jeppaferðum og hálendi Íslands. Hann gaf til dæmis út bókina Á fjöllum fyrir jólin í fyrra. Jón hefur verið viðloðandi starf ferðaklúbbsins 4x4 um langt skeið og því farið vítt og breitt um land- ið. Á ferðum sínum hefur hann víða komið í áhugaverðar og skemmti- legar laugar. „Þær voru svo farn- ar að safnast upp og ég ákvað að taka þetta sem verkefni og gefa út á bók,“ segir Jón en hann tekur ávallt gps-punkta alls staðar þar sem hann fer og því er auðvelt fyrir ferðamenn að rata í laugarnar sem sumar hverjar eru vel faldar. Laugarnar í bókinni eru á annað hundrað en Jón segir þær vera mun fleiri á landinu. „Marg- ar þeirra eru nú bara í hlaðinu hjá bændum og ég vildi ekki vera að beina ferðamönnum þangað,“ segir hann glettinn en samt er úr nógu að velja. Laugarnar eru bæði í byggð og óbyggð, ósnortnar nátt- úrulaugar og manngerðar. Hverri laug fylgir fróðleikur. En hvernig varð hann sér úti um hann? „Það hefur lítið verið ritað um þessar laugar svo þetta var svolítið grúsk. En svo hef ég alltaf haft eyrun sperrt þegar verið er að segja frá íslenskri náttúru,“ segir Jón og hefur því viðað að sér vitn- eskju um laugarnar yfir langan tíma. En á hann sér uppáhaldslaug?“ „Já, ég verð að segja Landbrota- laug við Haffjarðará, hún finnst mér einna fallegust, svo er laug- in í Hveragili austan við Kverk- fjöll einnig mjög skemmtileg. Það sem er skemmtilegt við hana er að það er varla hægt að fara í hana nema á veturna því á sumrin renn- ur leysingavatn í laugina og kælir hana um of,“ útskýrir hann. Ljósmyndir eru af hverri laug en Jón segist hafa tekið fæstar sjálf- ur. Þar hafi vinir og kunningjar lagt sitt af mörkum. Vísar á heitar laugar Félagar úr Rottugenginu og Sóðageng- inu baða sig í heitu lauginni í Hveragili. Þóra slakar vel á í Hellulaug við Flóka- lund. Þóra og Helena, dóttir þeirra Jóns, fara í fótabað í Landbrotalaug sem er ein af uppáhaldslaugum Jóns. Jón G. Snæland þar sem hann kann best við sig, í jeppanum sínum. M YN D IR/Ú R EIN KA SA FN I Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.