Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 25.11.2009, Síða 24
 25. NÓVEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR Bókin Freakonomics eða Furðuhagfræði eftir hagfræðiprófessorinn Steven D. Levitt og blaðamanninn Stephen J.Du- bner sló öll met í sölu bóka um hag- fræði þegar hún kom út árið 2006, seldist í fjórum milljónum eintaka um allan heim og kom út á 35 tungumál- um, meðal annars á íslensku. Í bók- inni eru lögmál og tölfræði hagræð- innar notuð á daglegt líf, vonir og væntingar. Er sá frambjóðandi sem hefur meira fjármagn bak við sig líklegri til sigurs í kosningum en aðrir þótt hann hafi ekkert annað til að bera en fé? og svarið er nei. Spurt er líka hvort frekar eigi að leyfa barninu sínu að leika á heimili þar sem er byssa eða sundlaug og niðurstaðan er að börnum stafar meiri hætta af sund- laugum þar sem fleiri börn drukkna í sundlaugum ár hvert en verða fyrir voðaskotum. Aðdáendur Freakonim- ics geta glaðst því nú er komin önnur bók frá þeim félögum sem ber hið stutta og þjála nafn, Superfreakon- imics: Global cooling, patriotic prost- itutes and why suicide bombers should buy lifeinsurance sem útleggst á ís- lensku: Ofurfurðuhagfræði: hnattræn kólnun, þjóðernissinnaðar gleðikonur og af hverju sjálfsmorðssprengjusveitir ættu að fá sér líftryggingu. Bók þessi er ekki síður umdeild en sú fyrri og mikill feng- ur fyrir alla þá sem féllu fyrir henni. Eitthvað til að rökræða í jólaboðunum. Bókin Fransí Biskví er nú end- urútgefin í fyrsta sinn en hún hefur verið ófáanleg frá því að hún kom út árið 1989. Þar er meðal annars að finna áður óbirt efni og myndir sem varpa nýju ljósi á viðfangsefnið. Um þessar mundir eru tuttugu ár síðan blaðamaðurinn og rithöf- undurinn Elín Pálmadóttir gaf út bókina Fransí Biskví, þá fyrstu íslensku sem helguð er þorsk- veiðum Frakka á Íslandsmiðum. Bókin seldist upp á sínum tíma en hefur nú verið endurútgefin í fyrsta sinn, með lagfæringum, nýjum myndum og áður óbirtu efni sem höfundurinn hefur viðað að sér frá fyrstu útgáfu. Bókin í sinni uprunalegu mynd þótti tímamótaverk og var meðal annars tilnefnd til Íslensku bók- mennaverðlaunanna fyrsta árið sem þau voru veitt. „Þá hafði ekkert verið ritað um þetta efni á íslensku, nema um einstök sjó- slys og strönd, sem voru ekki svo fá. Mér telst svo til að 400 skip og 4.000 franskir fiskimenn hafi ekki snúið aftur heim til konu og barna,“ útskýrir Elín, sem fékk sjálf áhuga á efninu þegar hún vann hjá íslenska sendiráðinu í París. „Þar voru Frakkar sífellt að spyrja mig út í fiskveiðar Frakka hér við land. Þannig að ég heim- sótti loks frönsku útgerðarbæina, sem áttu afkomu sína undir þess- um sjómönnum á sínum tíma. Út frá því skrifaði ég þrjár lang- ar greinar í Morgunblaðið. Eftir það linnti ekki símhringingum frá fólki alls staðar að af land- inu. Áhuginn var svo mikill. Svo ég hélt áfram að afla fanga þar til úr varð bók,“ rifjar hún upp. Elín segist hafa skynjað mikinn og sívaxandi áhuga á þessu efni, enda hefur myndast virkt vinabæjasamband milli heimabæja fiskimannanna og íslensku bæjanna þar sem þeir komu mest. Hún hefur vart haft undan að svara fyrirspurnum og segja frá. Samhliða því hefur hún kom- ist yfir upplýsingar sem varpa nýju ljósi á viðfangsefnið. Nefnir þar sem dæmi landgöngu frönsku fiskimannanna í Reykjavík. En þegar þeir flykktust í land í hverj- um fiski í maí skiptu þeir til dæmis á brennivínssnafsinum sínum, sem Íslendingar nefndu ranglega koníak, fyrir ullarvörur. Með þessar nýju upplýsing- ar undir höndum þótti Elínu ekki stætt á öðru en að uppfæra verk- ið og koma því í prentun. „Í sam- ræmi við það er búið að hanna útlit bókarinnar upp á nýtt með undir- fyrirsögninni Þriggja alda bar- áttusaga og bæta við nýjum mynd- um og frásögnum,“ segir Elín og tekur fram að ekki sé þó vikið út af þræði upphaflegu útgáfunnar. Þriggja alda baráttusaga í endurbættri útgáfu Elín stóð í ströngu við endurútgáfu bókarinnar Fransí Biskví. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● FRÆÐIRIT VERÐLAUNUÐ Félag íslenskra bókaútgefenda veitir Íslensku bókmenntaverðlaunin í janúar ár hvert. Verðlaun eru veitt annars vegar í flokki fagurbókmennta og hins vegar í flokki fræðirita og rita almenns efnis. Verðlaunin voru sett á stofn af Félagi íslenskra bókaútgefenda í tilefni af hundrað ára afmæli félagsins árið 1989. Meðal vinningsfræðirita síðustu ár eru Íslensk byggingar- arfleifð I: ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940 eftir Hörð Ágústsson (1998), Hálendið í náttúru Íslands eftir Guðmund Pál Ólafsson (2000) og Þingvallavatn eftir Pál Hersteinsson og Pétur M. Jónasson (2002). Af ýmsum furðustaðreyndum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.