Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 28

Fréttablaðið - 25.11.2009, Side 28
 25. NÓVEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● fræðirit Á N E T A N 2 0 0 7 H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N Næring fyrir andann www.haskolautgafan.hi.is • hu@hi.is • 525 4003 Fræðiritið Le Deuxième Sexe eða Hitt kynið eftir franska rithöfund- inn og heimspekinginn Simone de Beauvoir er talið hafa lagt grunn- inn að femínisma samtímans. Ritið kom út árið 1949 en þar er að finna ítarlega athugun og grein- ingu á kúgun kvenna. Ritið var fyrsta tilraunin á tuttugustu öld til að kanna stöðu kvenna í sögu- legu og félagslegu ljósi og marg- ir telja að það hafi komið af stað því sem hefur verið kallað önnur bylgja femínismans. Bókin er tæpar þúsund síður en þar fjallar Simone um sögu kvenna, hlutverk þeirra í mann- kynssögunni og hvers vegna órétt- lát skipting kynhlutverka varð til í aldanna rás. Í framhaldi af því beinir hún sjónum að stöðu kvenna í samtímanum í þeim til- gangi að opna þeim möguleika og tækifæri. Þó að femínistar efist ekki um áhrifamátt verksins hefur de Bea- uvoir verið umdeild; þykir hún meðal annars hafa göfgað hlut- verk karla og lagt upp úr því að gera konur eins og karla. - ve Lagði grunninn að femínisma Hitt kynið er frægasta verk rithöfundar- ins og heimspekingsins Simone de Beauvoir. „Ég fæ ekki skilið að nokkur þjóð geti unnið úr eigin menningararfi og orðið fullgildur þátttakandi í þeirri veraldarmenningu sem nú er að mót- ast nema hún tileinki sér vestræna heimspeki af grískum og kristn- um stofni. Við Íslendingar hljótum að leggja stund á heimspeki, ef við ætlum að lifa af sem sjálfstæð þjóð og hafa einhverja stjórn á ákvörð- unum okkar og athöfnum,“ segir Páll Skúlason, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, í bókinni Pæling- um sem kom út árið 1987. Þar velur Páll saman erindi og greinar þar sem leitast er við að skýra vestræna heimspekihugsun og beita henni á margvísleg viðfangsefni. - ve Pælt í heimspeki Í framhaldi af Pælingum gaf Páll út bókina Pælingar II árið 1989.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.