Vikan


Vikan - 22.10.1959, Qupperneq 3

Vikan - 22.10.1959, Qupperneq 3
Kæra VIKA Sökum atvinnu minnar á ég öðru hverju er- indi við starfsmenn i opinberum skrifstofum eða öllu heldur starfsmenn tveggja opinberra stofnana, sem ég liirði ekki um að nafngreina. Venjulega er ég þar á ferðinni skömmu eftir, að opnað er á morgnana. í annarri stofnuninni er afgreiðslan til fyrirmynda að mínum dómi, en í hinni ge'tu máður hins vegar gengið að því vísu, að starfsmennirnir gefi sér ekki tima til að sinna manni fyrr en eftir drykklanga stund, þvf að þeir eru niðursokknir i blaðalestur og hvorki heyra mann né sjá, fyrr en þeim sjálfum gott þykir, og breytir þar engu um, þótt maður hósti og ræski sig. Þvi fer fjarri, að ég ætlist til þess, að starfsmenn slíkra stofnana sýni við- skiptamönnum þrælsótta og undirlægjuhátt, enda virðist ekki mikil hætta á þvi með þeirri stétt hér á landi, og má margt á milli vera og þess arna, . J. B. Ég er bréfritara sammála. Það má ekki minna vera en starfsmenn opinberra stofnana meti þá, sem þeim ber að veita þjónustu, meira en dag- blöðin. Þar eins og annars staðar — eiga af- greiðslumaður og viðskiptamaður að koma fram hvor við annan eins og siðmenntaðir og jafn- réttháir aðilar af gagnkvæmdi hæversku. Kæra VIKA Þú, sem allt veizt og gefur ráð við öllu, nú leita ég til þin i vandræðum minum. Ég var trúlofaður stúlku. Kynni okkar voru lítil, en við stofnuðum heimili, og hún tók móð- ur sína til sín, þvi að liún gat ekki verð án henn- ar. En þegar hún kom, vildi liún öllu ráða, og hin lilýddi henni eins og barn, enda þótt hún væri orðin tuttugu og sjö ára. Móðir hennar hafði ekki gott orð á sé, eins og síðar kom í ljós. Ég átti þvi enga samleið með þeim, og skildu því leiðir okkar. Ég hélt satt að segja, að svona fólk væri ekki til... Nú hef ég miklar áhyggjur af drengnum, sem við áttum saman. Hann er hjá henni og orðinn fimm ára. Ég fæ eltki að sjá hann, hún bannar mér það. Einu sinni fór ég þangað lieim og ætl- aði að sjá hann, en þá var gerð á mig líkams- árás. Á síðustu jólum fór móðir min þangað og fékk kaldar viðtökur, því að henni var lirint frá dyrunum. En sagan cr ekki öll sögð enn, því að ofan á þetta bætist, að mikil óregla er á heim- ilinu og drengurinn liefur jafnvel verið sendur út til að hringja á lögregluna að næturlagi. Þetta er nú vandræðaástand, og því leita ég VIKAN Útgefandi: VIKAN H.F. Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.) Auglýsingastjóri: Ásbjörn Magnússson F ramkvæmdast j óri: Hilmar A. Kristjánsson Verð i lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholti 33. Simar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017 Prentun: Prentsmiðjan Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. — til þín, kæra VIKA, og bið þig nú að hjálpa mér og gefa mér góð ráð ■— og svara mér fljótt. Með beztu óskum. Ég sé aðeins eitt ráð. — Snúið yður sem fyrst til barnaverndarnefndar, og leitið að- Framh. á bls. Sý. amerísht hreinsiefni til ððlfþvotta 09 hreingerninða Aðeins ein y$irferð ★ Ekkert skrúbb ★ Ekkert skol ★ Engin þurrkun. Þér þurfið aðeins að blaulvinda klútinn eða þvegilinn og strjúka einu sinni yfir og öll óhreinindi strjúkast af á svipstundu. lórtöflur 1 tafla í þvottavélina um leið og þér blandið öðru þvottaefni, og hvíta tauið verður mjallahvítt. örugga efnið til blæfegrunar hvítum eða litföstum efnum úr bómull, líni. nælon, orlon, dacron og rayon. Til að hreinsa og hvíta gulnaða emeleringu, s.s. baðkör, vaska, W.C. skálar, postulín, emelerað- ar vörur o. s. frv. Kaupið pakka strax. Betri efni. Auðveldari og minni vinna. Betri árangur. i Bankastræti 7, Laugavegi 68. VIKAN 3

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.