Vikan


Vikan - 22.10.1959, Page 4

Vikan - 22.10.1959, Page 4
Hann er mjög reiður þessi forstjóri, og ef hann verður svona ásýndum á degi hverjum, þá megum við vita, að hann háttar í björtu um fimmtugs- aldur. | hverjum degi — árið um kring — deyja menn af því, sem $1 venjulega er nefnt hjartaslag eða hjartabilun, og sá, sem - fyrir andartaki var lifandi, starfandi maður, er ekki leng- ur til. Það er eins og lífið sýni okkur I einu vetfangi regindjúp fánýtis með því að stanza skyndilega. Maður á bezta aldri fór frá okkur á miðjum starfsdegi sínum. Hann hefði átt að lifa mörg ár enn, og hann hefði vafalaust lifað, ef hann hefði hlustað nógu snemma á við- vörunarmerki hjartans og áminningar um, að eitthvað væri þar á seyði, — það væri veikt og hann sjálfur í bráðri lífshættu. En hver má vera að því að hlusta á hjarta sitt á þessum tímum asa og metorða? Það stenzt líklega, meðan það þarf, segja menn og bjástra ótrauðir áfram í baráttunni um fjármuni, titla og félagslegar stöður. Áður fyrr var litið á blóðtappa i hjartanu sem eðlilegan gamalmennasjúk- dóm, sem felldi fólk í fyrsta lagi á aldrinum 65—70 ára, en i dag er þetta sjúkdómur, sem leggst á fulltíða mann. Sjúkdómurinn kemur fram þegar á fimmtugsaldri, og það er óhugnanlegt, að hann verður stöðugt tíðari með yngri mönnum. Kransæðastífla er reglulegur karlmannasjúkdómur. Með því er þó ekki sagt, að hann leggist aldrei á konur, en karlmenn í nútimaþjóðfélagi eru miklu líklegri til að fá hann, og á þar ekki litla sök hið æðisgengna kapphlaup í nútímaþjóðfélagi, metnaðargirnin, kyrrsetur við vinnu og ekki sizt hin fjöl- mörgu farartæki. Við skulum byrja á hinum metnaðargjarna manni, honum er hættara en nokkrum öðrum. Til þess að ná hátt í þjóðfélfaginu verður hann að þræla sér út, og hann er stöðugt undir fargi mikils taugaóstyrks, sem veldur því, að hann er sífellt spenntur og getur ekki slappað af. Taugaóstyrkurinn veldur því, að efni myndast i nýrnahettunum, sem heitír adrenalin, en það hefur aftur á móti þau áhrif, að hinn metnaðargjarni fær of háan blóðþrýsting. Þegar blóðþrýstingurinn vex, kemur meiri þrýstingur á blóðið, og þess vegna myndast hringiður, þar sem slagæðar eru e. t. v. þrÖngar, jafnvel við smá- vægilega áreynslu, og þá er hætta á myndun stíflu. Metnaöarmaðurinn vinnur að jafnaði kyrrsetuvinnu og á bíl. Hann hreyfir sig því of lítið, hann fitnar, cholesterin myndast í æðunum, og blóðrásin verður ófullnægjartdl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.