Vikan


Vikan - 22.10.1959, Síða 6

Vikan - 22.10.1959, Síða 6
EG varð miður mín af örvæntingu, þegar mamma sagði mér dag emn, að iiun ætiaoi aö giítast i annaö sinn. PaDDi fórst fyrir morgum arum í íiugslysi, og mér iiaiöi virzt mamma aldrei ætia að ná sér eftir það. Húií var enn glaðlynd og fjörug, en hún virtist saint svo ósegjaniega einmana og virtist aiitaf syrgja paDba. Og nú ætiaöi hún aö gixiasx axtur, meira að segja manni, sem var tveimur árum yngri en hun. Með ofsa æskunnar sagói ég henni skoðun mina á þessu, að ég væri aíar vonsvikin. Ég talaði illa um tilvonandi uppeidisföður minn, já, ég var balreíö og skildi ekki, hvermg siíkt gæti átt sér stað. Eg kannaðist reyndar viö nafnið Christian Mathisen. Mamma hafði minnzt á hann ööru hverju. Hún halði kynnzt honum hjá kunningjum sínum, og hann hafði stundum ekið henni heim. En ég gat ekki imyndað mér, að þau væru ástfangin. Eg roðna af skömm, þegar mér veröur hugsað til þess, hvernig ég hegðaði mér þennan dag og hversu indæl og skilningsrik mamma var. Þegar hún fékk loks orðið, eftir að ég haiði ausið yfir hana ókvæðisorð- um, leit hún á mig full meðaumkun- ar og sagði lágt: — Reyndu að skilja þetta betur, Gréta. Ég er aðeins f jöru- tiu ára gömul, og lííið blasir enn við mér. — Þótt ég hafi elskað föður þinn meira en nokkuð annað á þess- ari jörð, þarfnast ég manns, sem ann mér og verður heimilinu til stuðn- ings, þú skalt ekki halda, að þetta rýri föður þinn á nokkurn hátt. Ég hef loksins komizt að þvi, að maður getur elskað oftar en einu sinni á ævinni, þótt ég hefði ekki viljað trúa því, þegar faðir þinn lézt. Hún leit hugs- andi á mig, en ég gat ekki svarað neinu; hún hefði ekki viljað hlusta á mótrök mín. — Ég er viss um, að þér verður vel við Christian, Gréta, sagði hún loks. — Vertu nú væn við hann. Ég veit nefnilegEb að hann kvíður því dálítið að eignast 18 ára gamla uppeldisdótt- ur. Ég hefði átt að fara að ráðum mömmu, en ég vildi það ekki. Ég vildi hreinlega ekki sætta mig við hann. Og ég vildi ekki láta hann búa í þessu húsi okkar, þar sem við pabbi höfðum átt svo margar ánægjustund- ir saman. Ég neitaði að borða með þeim á brúðkaupsdaginn og sat í stað þess heima og grét, og mér fannst örlögin hafa leikið mig grátt. Mönnum kann að virðast þetta eintóm eigingirni, en þeir, sem hafa verið í mínum spor- um, vita, hvernig manni verður innan brjósts. Núna finnst mér blátt áfram skelfilegt til framkomu minnar að hugsa. Mamma og Christian lögðu af stað í stutta brúðkaupsferð. Þegar þau komu heim aftur, hafði ég einsett mér að flæma uppeldisföður minn að heim- an og gera honum lífið eins ömurlegt og mér var unnt. Hann hafði þröngvað sér inn á heimili okkar, og ég ætlaði að láta hann finna það. Plann átti að fá að sjá, að hann ætti ekkert erindi hérna á þessu heimili, sem pabbi hafði skap- að, — hann ætti eHki heima hérna, aðeins pabbi, og hefði ekki átt að giftast mömmu, sem var svo indæl og góð. Ú, það er hægur vandi að haga sér eins og kjáni, þegar maður sér aðeins eigin sár, en ekki annarra. Mér fannst mamma ekki þarfnast mín lengur, að hún hugsaði ekki leng- ur um mig. Hún hafði gifzt manni, sem mér var illa við, og hún hafði ekki hugsað svo langt, að ef til vill gæti það valdið mér óhamingju. Ég stóð eins og steinrunnin við gluggann, þegar eigur Christians voru fluttar inn á heimili okkar. Hann gerði að gamni sínu við flutninga- mennina og íannst það, að þvi er virtist, ofur eðhiegt, aö hann hegðaði sér ems og pabbi naíði eitt sinn gert. En þessi maóur hatöi leikið á mömmu og íengið hana tii að giítast sér, en hann atti eftir að iðrast og snauta heim tii sín. i I ; ' I I I ; En þetta fór allt á annan veg. Auk þess sem Christian var mjög vingjarn- legur og skiinmgsrikur var hann akaf- lega aöiaöandi og karlmannlegur. Hann var alltaf í góðu skapi og hitti oftast nagiann á hófuðið, þegar þau voru að tala saman. Hann var eigin- lega nauöaiíkur þeim manni, sem mig haiði alitaf dreymt um: — hár, glæsi- legur og viðmótsþýður. Og hann skildi augsýnilega ekki þauihugsaðar athugasemdir mínar. Þegar ég reyndi að vera eins hrana- leg og mér var unnt, virti hann mig ekki viðlits, svo að mér íannst mér algerlega ofaukið á heimilinu. .prátt fyrir ákvarðanir mínar komst ég ekki hjá því að játa fyrir sjáflri mér, að ég kunni vel við hann. En það er alltaf erfitt að játa á sig galla, svo að lengi var ég köld og hrysslngs- leg gagnvart honum. Hann reyndi að sýna mér vinsemd, og mamma lét ekki heldur sitt eftir liggja. En ég var stolt, og þegar maður er ungur, skiptir stoltið mann miklu. Þau höfðu verið gift í rúma þrjá mánuði, þegar Christian minntist á það, hvernig ég hagaði mér gagnvart honum. Við stóðum í eldhúsinu og vorum að vaska upp, á meðan mamma hellti upp á kaffið og lagði á kaffiborðið inni í stofunni. Ég var á varðbergi, meðan hann talaði. — Gréta, sagði hann: — Ég hef eiginlega verið að furða mig á fram- komu þinni. Hvers vegna í ósköpunum hatar þú mig vegna þess, að ég gift- ist henni móður þinni? Ég veit auð- vitað, að þú metur föður þinn mikils, en þú hlýtur að hafa gert Þér grein fyrir því. að einhvern tíma mundi móðir þín giftast aftur, því að hún er enn ung og falleg kona. Ég stamaði, þegar ég svaraði, eld- rjóð í framan: — Mér fannst Það ekki rétt af mömmu að giftast aftur. — Þú ert yngri en hún, og . . . Ég kom skyndilega ekki upp orði. Loks, er Christian spurði mig um þetta ósköp blátt áfram, gat ég ekki svarað á viðunandi hátt. Mér fannst allt það, sem ég hafði si og æ verið að hugsa um, svo kjánalegt og barnalegt núna. Ég leit vandræðalega niður á votar hendur mínar, lét nokkrar undirskál- ar falla niður í vatnið og horfði sljó fram fyrir mig. Christian gekk skyndilega til mín, tók varfærnislega undir hökuna á mér og leit framan i mig rannsak- andi. — Hafðu engar áhyggjur, Gréta, sagði hann alvarlega, — þetta lagast allt. Hann beygði sig niður og kyssti mig létt á vangann. Ég roðnaði, þegar hann kyssti mig, en mér fannst ég einhvern veginn vera skyndilega orðin önnur og betri stúlka. Og þá hlógum við skyndilega upphátt. Mamma birtist í dyrunum og horfði undrandi á okkur. — Hvað í ósköpunum er svona fyndið? spurði hún. Og það var ekki nema von, að henni brygði, því að venjulega sögð- um við Christian ekki orð, þegar við vorum ein saman. Við snerum okkur að henni, og Christian lagði handlegginn um axl- irnar á mér. -— Við erum orðin vinir, Ingeborg, sagði hann og rétti hina höndina til hennar. Augu mömmu ljómuðu af innilegri gleði, og tárin komu fram í augu mér. Ég sá skyndilega ákaflega eftir því, hvernig ég hafði hegðað mér. Ég hafði alls ekki hugsað um mömmu, því að henni hlaut að hafa liðið illa. Upp frá þessu komst aftur á jafnvægi á heimili okkar, og mér leið prýðilega heima hjá mömmu og Christian. Mér stóð algerlega á sama, þótt ungir menn byðu mér aldrei út, og ég átti fáa góðkuriningja. Ég vissi, að mömmu þótti þetta miður, en mér fannst það mig engu skipta. Christian var eini maðurinn í lífi mínu, en ef einhver hefði gefið í skyn, að ég væri ástfang- in af honum, hefði ég hlegið. — Ást- fangin af uppeldisföður minum! — I manninum hennar mömmu! Samt dauðleiddist mér, þegar hann var ekki heima og við gátum ekki farið i kvöldgönguna okkar, og áður en hann kom heim í matinn, var ég öll á nálum. Þetta var undarleg til- finning, því að ég var í senn sorg- mædd og glöð. Ég skildi þetta ekki fyllilega, því að fyrir skemmstu hafði ég fyrirlitið þennan mann. Oft þaut ég heim frá skrifstofunni, svo að ég kæmist heim á undan hon- um. Mömmu fannst þetta dálítið furðulegt og hló að ákafa mínum, en ég er hrædd um, að hún hafi ekki séð, hvað mér bjó í brjósti. Dag einn, er ég kom heim á venju- legum tíma ,var mamma lasin. Hún sat á legubekknum, náföl og guggin. — Hvað er að, mamma? spurði ég og horfði undrandi á hana, því að yfir- leitt var mamma stálhraust. — Ég veit það ekki, Gréta mli., sagði hún aðeins. — Farðu í rúmið, sagði ég strax, — það er ekki sjón að sjá þig. — Já, ef ég þyrfti ekki að fara í þetta samkvæmi í kvöld. — Christian hefur hlakkað svo til þess að fara þangað með mér. Hann kom í Þessu inn í stofuna og brá, þegar hann sá mömmu. Hann skipaði henni að fara í rúmið og sagði strax, að hann mundi ekki fara einn í samkvæmið, þrátt fyrir áköf mót- mæli mömmu. — Farið þið Gréta saman, sagði hún loks. — Hún hefur gott af því að fara einu sinni út að skemmta sér. Hjartað sló örar i brjósti mínu, þegar ég heyrði Christian segja treg- lega: — Jæja, jæja, ef Þú vilt, en ég vil helzt ekki þurfa að láta þig liggja hérna eina ... Ég stóð í sömu sporum, þegar Christian kom aftur niður í stofuna, eftir að hann hafði farið með mömmu upp i svefnherbergið. Ég er sannfærð um, að hann tók eftir gleði minni og eftirvæntingu. — Farðu nú að búa þig, sagði hann hlæjandi og smellti saman fingrunum. — Þú átt að verða mér til sóma í kvöld. Ég verð með Þér í allt kvöld, Christian, hugsaði ég, — ein! Ég á hann í kvöld og á hann ein! 6 VIK AN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.