Vikan - 22.10.1959, Side 17
liiii
■
■' ■''.'•■•••. V;.■■■
■' ■•". -■
!!!-;'! ' ; ;
Formfögur ljóskúla fyr-
ir almenna lýsingu í barna-
herbergi eða stofu.
Fagurlega unninn danskur
lampi úr ópal-gleri og kopar.
Hann beinir ljósinu aðallega á
einn stað.
Þessi larnpi fer vel yfir sófaborði og Góður leslampi þarf að vera léttur í meðför-
beinir rjósinu aðallega niður og upp, um, listrænn að útliti og geta beint ljósinu
en lítils háttar út til hliðanna. á bókina.
Danir nota töluvert mikið kertaljós, og væri
enginn skaði skeður, þótt Islendingar svikju tækn-
ina öðru hverju.
Skuggar hafa ekki aðeins sálfræðileg áhrif, þeir
hafa lika mikla þýðingu fyrir vinnu okkar.
Þegar við t. d. skrifum, strjúkum lín eða saum-
um, gera skuggarnir okkur kleiít að sjá, hvar blý-
anturinn snertir pappírinn, við getum strokið
brotin rétt og séð, hvar stinga á nálinni í efnið.
Til þess að skuggarnir styðji okkur við vinnu,
en rugli ekki, verður ljósið að korna úr réttri átt.
Oft mun það hentugra með hreyfanlegum og
færanlegum iampa, sem svo er stillt með eigin
tilraunum, þar til hinni beztu mögulegu aðstöðu
er náð.
Það er nauðsynlegt að láta ekki allt ljósið koma
úr ákveðinni átt, þar eð þá koma fram mjög harð-
ir skuggar. I mesta lagi 80% af ljósi á vinnustað
mega koma úr sömu átt. Minnst 20% eiga aö koma
frá öðrum hliðum, þá verður skugginn mátulega
mildur.
Öll ljósrör (flourecent-ljós) gefa frá sér mikið
magn af bláu og blágrænu ljósi. Þaö verkar kalt
og ónógt og hefur tilhneigingu til þess að afbaka
liti herbergisins. Fólk fær gulgráan hörundslit, og
matvörur tapa nokkru af fersku útliti sínu. Ástæða
er því til að vera varkár með notkun ljósröra í
heimahúsum.
Á heimilum kemur þrenns konar lýsing til
greina: vinnuljós, þægileg lýsing og loftlýsing.
I eldhús er æskilegast að hafa lýsingu á vegg
eöa undir skápum þannig, áð hún biindi ekki,, en
gefi þó ljós á vinnuborð. Einnig þarf loftljós fyrir
efri skápa. Æskilegt væri að hafa minnst einn
lampa yfir vaski, annan yfir eldavél, þriðja yfir
vinnuborði o. s. frv. Hin alkunna lýsing í eldhúsi,
einn lampi í miðju lofti, er langt frá að vera hin
hentugasta, þar eð húsmóðirin mun skyggja á
vinnu sína, hvar sem er við vinnustaði meðfrani
veggjunum.
í borðkrók eldhúss er notuð sams konar lýsing
og yfir matarborði, en þar er æskilegast að hafa
ljóshlif úr málmi um 60 sm frá borðplötu. Það
blindar ekki, þar eð ljósið kastast niður á borðið
á lakmarkað svæði.
I dagstofu er æskilegast að hafa lampa yfir sófa-
borði, sem lýsir niður, en einnig að nokkru leyti
út í stofuna.
Borðlampi er óhentugur, því að sófaborð er oft
notað til margra hluta, og þá mun borðlampi vera
fyrir.
Standlampar eru góðir til að lesa við þá og
einnig við vinnu. Um vinnuljós hefur áður verið
rætt.
1 svefnherbergi er nauðsynlegt að hafa loft-
lýsingu vegna skápa, en hún er hins vegar óheppi-
leg, þegar fólk liggur, þar eð það blindar.
Við rúm eru litlir lampar með færanlegri málm-
hlíf hið ákjósanlegasta. Þeir eru festir í rúmgafl
eða vegg, og æskilegt er, að hver hafi sinn lampa.
Bezt lausn fyrir ljós yfir snyrtiborði er eitt ljós
sitt hvorum megin við spegil, þó svo langt frá, að
ekki komi spegilmynd af lampanum.
í baðherbergi og ganga þarf loftlýsingu.
í barnaherbergi er loftlýsing nauðsynleg vegna
leika barnanna Einnig þyrfti litlum lampa að
vera komið þannig fyrir, að Ijósið skíni ekki í augu
barninu, þegar hugsa þarf um það á næturnar.
Stærri börn ættu að hafa eigin rúmlampa. Við
vinnu barns þarf venjulegan vinnulampa.
Hér hafa i megindráttum verið nefnd þau atriði,
sem umhugsunar þurfa við, þegar valin er lýsing
í heimahúsum.
Staðsetning ljósa er alltaf háð tízkunni að ein-
hverju leyti, einkum i stofum. Fyrir skömmu var
það mikið tíðkað að hafa veggljós í stofum og Þá
gjarnan tvö saman og siðan hengd mynd á milli.
Nú þykir okkur slík staðsetning veggljósa út í
bláinn og auk þess þreytaneU „sýmmetrísk“ og fer
illa við nútíma húsbúnað,
Heppileg lýsing í barnaherbergi: plastkúla,
sem gefur jafna birtu, og liðamótalampi,
festur á vinnuborð.
Ég hef að nokkru leyti stuðzt við ýmsar grein-
ar úr bókum og tímarjtum, þar sem reyndir menn
hafa fjallað um þessi mál: G. I. J-
LÝSING í HEIMAHÚSUM
Hóíkur úr möttu ópalgleri
gefur jafna og þægilega
birtu.
Þessi lampi er eftir einn af færustu urkitektum Dana. Hann
lýsir bæði upp og niður og fer mjög vel yfir borðstofuborði
og borðkrók.
Yfir borðkrók í eldhúsi fer
Vel að hafa keilulagaðan hjálm,
sem hægt er að hækka og
lækfca að vild.
Borðlampi úr tituðu
gleri, ópal-gleri og tekk,
— þægilegur og list-
rænn.
■
iPHMfll
. •■,:
s*ÉI8iÉsS«B
>> .
.
91$
■