Vikan


Vikan - 22.10.1959, Side 22

Vikan - 22.10.1959, Side 22
Spjallað í síma Já, góðan dag. — Góðan dag. — Hvar er þetta með leyfi? — I Steðja. — 1 Steðja, já? — Já. — Er það smiðja? — Já, það er smiðja, já. — Og hver er maðurinn, sem ég tala við? — Sigurður Sveinsson. — Sigurður Finnsson? — Nei, Sigurður Sveinsson. — Sigurður Sveinsson, já. — Þetta er nú hjá Vikunni hérna. — Já. — Heimilisblaðinu Vikunni. — Já. — Við erum að fara af stað með nýjan þátt í þessu blaði, sem er á þá lund, að við hringjum bara í eitthvert númer út i bæ. Við gáum ekki einu sinni í skrána. — Jahá. — Og nú langar mig til að spyrja þlg, Sigurður, um álit þitt á landhelg- ismálinu. Hvað finnst Þér, að við ætt- um að gera í því máli? — Að við ættum að gera? Ég veit ekki. Ætli við ættum ekki að láta Það dankast. — Láta það dankast? — Ég held það. — Sjá hvað setur? — Sjá hvað setur. Sjá hvort það mundi ekki jafna sig. — Hvað mundir þú gera, ef þú vær- Ir ráðherra? Mundir þú kalla ambassa- dorinn heim frá London? — Nei. — Þú mundir láta Kristinn sitja þar? — Já. — Jahá. — Það er nú mín skoðun persónu- lega. — Ef þú værir utanríkisráðherra ? Þú heldur að þetta verði leyst á ein- hverjum alþjóðlegum grundvelli? — Ja, hvort sem er. Það yrði leyst hvort sem væri. — Og þú mundir ekki verða neitt vondur við Kanana að vera þarna i Keflavík án þess að verja okkur? — Nei, ég álit að þeir geti ekki skipt i sér af þessu. — Nei, þú álitur það? — Já. En af því að við minnumst nú á Kanann, hvaða afstöðu mundir þú taka tii þessa nýafstaðna máls þarna i Keflavíkinni — með mennina, sem voru látnir fleygja sér niður? — Ég hef ekki kynnt mér það og get ekkert sagt um það. — Nei, það er nefnilega það. — Það þýðir ekkert að segja, nema menn viti nákvæmlega frá báðum hlið- um. — Nei, það er rétt. En segðu mér eitt, Sigurður, ef það yrðu nú alvar- legir árekstrar á miðunum — við skul- um segja, að eitthvert herskipið sigldi nú varðbátana okkar niður. Hvaða af- stöðu mundir þú þá taka sem utanrík- isráðherra? — Mmm.... það er nú erfitt að segja.... — Segjum að þú ættir nú að taka einhverja afstöðu bara í dag — fyrir hönd þjóðarinnar? — Ég yrði ekki tilbúinn að gera það. — Ja, það mundir þú verða að gera sem ráðherra. — Já.... — Þú mundir leggjast undir feld, eins og Þorgeir? — Já, ég mundi liggja i sólarhring. — Liggja í sólarhring, já? Svo að þú getur náttúrlega ekki sagt um það núna, áður en þá hefur farið undir feldinn, hvað þú mundir gera? — Nei, nei.... ég mundi ekki taka afstöðu í málinu svoleiðis óhugsað. —- Hvað smíðið þið helzt þarna í Steðja? —■ Það eru nú ýmsar vélar og við- gerðir á vélum. — Ert þú verkstjóri? — Ég, nei, ég er nú einn af eigend- unum. — Einn af eigendunum, já. - Já. — Hvar er þetta fyrirtæki til húsa? — Það er á Skúlagötu 34. — Já, rétt. Og þetta er góður bisn- | Sýning Alfreðs Flóka iss, er það ekki? — Ja, svona sæmilegur. — Hvað hafa menn mikil árslaun við svonalagað? — Það er misjafnt, eftir þvi hvað þeir vinna mikið? — Fer það eftir því hvað þeir vinna mikið? — Já. — Er ekki dálítið gott að hagræða framtölunum ? — Nei, nei, nei, nei, það er ekki hægt. Það verður að fara allt eftir vissum reglum. — Allt eftir vissum reglum, já? — Já. — Og ertu ánægður með skattafyr- irkomulagið hjá okkur? — Nei.... enginn ánægður með það. — Það er það, enginn, nei? Og ætl- arðu að kæra kannski fyrir þig sjálfan persónulega? — Nei. — Láta það eiga sig? Hvað hafðir þú í útsvar? — Ég.... ja, ég man það ekki ná- kvæmlega. — Sextíu þúsund? — Nei, nei.... sjálfur? Nei, nei. — Já? — Nei, ég er með svona sex, sjö þús- und. — Sex, sjö þúsund. Það hefur nú verið anzi lögulega framtalið? _ Nei. — Af eiganda fyrirtækis? — Ja, það er.... þeir geta fengið minna en aðrir. — Er það svo? — Geta það, já, já.... — Ef þeir eru snillingar að telja fram. — Nei, það er. . . . ----- Er það ekki? — Nei, þeir verða að gefa upp. — Já, náttúrlega. Jæja, ég þakka nú kærlega fyrir mjög greinargóð svör, Sigurður. — Já. — Blessaður. — Blessaður. r", x ASTAROÐUR (Kærlighedens Melt,di;8 | Ný, dönsk kvikmynd með Nínu og Friðrik og Louis Armstrong í aðalhlutverkum. Fjölskylda Friis hœstaréttarlögrnanns iökar klassíska tónlist á kvöldin ásamt Thomsen fullméktugum (Holger Juul Hansen), sem ]>ó kemur aöallega vegna Súsýjar. Súsý (Nína) er dóttir Friis lögmanns. Henríetta, frœnka hennar (Clara östö), er „húsmó6ir“ á heimilinu. / nœsta húsi býr Smith vínkaupmaöur ÍGunnar Lauring) ásamt konu sinni, Elísabetu (Elsa Maria). Sonur þeirra er aö læra vinverzlun í Frakklandi, svo aö Smith veröur aö þola söng- elsku frúarinnar einn. Smith og Friis lögmaöur eru óvinir, því aö Friis segir hinn vera svindlara. Pétur Smith (Frederik) snýr aftur heim úr námsförinni og veit meira um söng og kalýpsómúsik en frönsk vín. Þau Súsý hittast og veröa þegar ástfangin hvort af ööru án nokkurs tillits til þessj aö feöur þeirra eru „upp á kant“ og engar Ukur til sátta á nœstunni. 22 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.