Vikan - 22.10.1959, Síða 23
VIKAM
I
næsta
blaði:
4 Grein um unglingana og peningamálin.
♦ Faðir barnsins míns (saga úr daglega lifinu).
4 Lítið næturljóð (smásaga eftir Magnús Jóhannesson).
4 Ævar R. Kvaran: Á víð og dreif.
4 Vitni saksóknarans (sögulok).
4 Hugsað á leiðinni heim.
4 Húsaþáttur og þáttur dr. Matthíasar Jónassonar.
4 Sölutækni (gamansaga).
4 Vitskert? (framhaldssaga)
4 Kvikmyndasíða
4 Tízkuopna.
4 Margt fleira til skemmtunar og fróðleiks.
Ungur maður, Alfreð Flóki að
nafni, hengdi upp myndir eftir
sig í Bogasalnum fyrir skömmu.
Hann mun af hinni yngstu kyn-
slóð listmálara, og er þó hæpið að
kalla hann málara, því að ekkert
málverk var á sýningunni, held-
ur einungis teikningar. Þessi sýn-
ing var á ýmsan hátt athyglis-
verð og sérstæð. Alfreð Flóki vill
auðsjáanlega ganga utan við
troðna alfaravegi íslenzkra lista-
manna, og honum sækist gang-
an furðuvel, því að hæfileika hef-
ur hann ótvíræða.
Alfreð Flóka er eitt yrkisefni
hugljúfast: Manncskjan sjálf.
Hins vegar verður tæplega sagt,
að hann taki það yrkisefni á
mjög breiðum grundvelli. Honum
verður starsýnna á ljóta menn
en fallega, og það er ekki fríður
flokkur, sem er saman kominn
hjá honum þar í Bogasalnum. —
Auðvelt er að rekja orsakir til
þessa: Alfreð Flóki trúir senni-
lega á tvo guði — fyrir utan guð
almáttugan. Annar er látinn og
hét Toulouse-Lautrec. Hann varð
frægur fyrir myndir af gleðikon-
um og alls konar forkostulegu
fólki, sem vandi komur sínar f
Rauðu mylluna í París. Hinn
guðinn heitir Bernard Buffet og
er einna frægastur franskra list-
málara um þessar mundir og
þekktastur fyrir myndir af gráu
og grindhoruðu fólki, samanber
mynd Alfreðs Flóka til vinstri.
Það hefur alla hent að taka sér
reyndari menn til fyrirmyndar
um skeið, og áður en varir finn-
ur Alfreð Flóki sína eigin meló-
díu. Tilfinninguna fyrir línum og
formum hefur hann fyrir, og ég
spái góðu um frama hans.
Smitli lcaupmanni gremst mjög ka-
lýpsó-della sonarins og kemur upp
vínkjallara handa honum aö sjá um.
Sem betur fer, eru starfsmennirnir í
kjallaranum }íka músíkálskir, svo aö
ásamt þeim tekst Pétri aö setja sam-
an hina ágætustu kalýpsóhljómsveit.
VIKAN
Eftir. miklar . málamiðlanir . scettast
Friis- og Smith-fjölskyldurnar. Þcer
Elísábet og Henríetta verða perluvin-
ir. Nú kemur ekkert í veg fyrir, aö
þau Súsý og Pétur geti trúlofazt. —
En þá kemur babb í bátinn, — þau
eru nefnilega orönir óvinir í bili. En
þaö stendur ekki lengi.
Barþjónninn Villi (Chr. Arhoff) er
vinur Péturs, — og saman opna þeir
jazz-veitingahús i gamla vínkjallar-
anum. ÞaÖ veröur brátt fjölsótt af
ungu fólki. Og ekki minnicar áhugi
unga fólksins, þegar þaö fréttist, aö
Louis Armstrong muni veröa þarna
á feröinni og koma þar fram...........
Ný-ja veitmyahjísiö er þéttsetiö, og
þaö liggur viö átökum, þegar Louis
kemur ekki á tilteknum tíma. En loks
lætur gamli maöurinn sjá sig, — hef-
ur aöeins oröiö seinn fyrir, — og viö
mikil fagnaöarlœti syngur hann ásamt
þeim Súsýju og Pétri lagiö The
Formula Of Love.
23