Vikan - 22.10.1959, Síða 26
Nokkrar köknnppskriítir
Svona til tilbreytingar komum við með nokkrar kökuuppskriftir. Það er trú mín, að
íslenzkar húsmæður séu fremri öllum öðrum hiismæðrum i kökubakstri. Það er alveg
ótrúiegt. en satt, að maður fer varla svo i kaffi til vinkonu sinnar, að inaður fái ekki
að bragða á einhverri alveg óséðri köku, og i sumar er ég oft búin að'fá góðar kökur
eftir uppskriftum úr VIKUNNI. Af þessu veit ég, að nýjar kökuuppskriftir eru alltaf
vel séðar.
PIPARKÖKUR
300 g sykur,
dl svrón.
3 tesk. negull eða ens?i-
fer eða 2—3 tesk.
kanill,
140 a srajör eða smjör-
líki,
2 egg,
2 egsjarauður,
1 ril m'ólk,
1200—1300 g hveiti.
2 kufaðar tesk. hjarta-
salt,
2 tesk. sódaduft,
möndlur til skrauts.
Hitið sykur og sýróp, og bætið í krydd og smjör.
Hrærið eggin og eggjarauðurnnr. og hrærið út
í blönduna, bætið mjólk i, og látið þetta kólna
dálitið. Hrærið því næst hveitinu i, eftir að
hjartasaltinu og sódaduftinu hefur verið bland-
að f bað. Breiðið stykki yfir deigið, og látið það
standa í 3 daga. Veltið deiginu f stórar kúlur. og
leggið þær á smurða plötu. Fletjið þær dálitið út,
og stingið hátfri afhýddri möndlu i miðju bverr-
ar kúhi. Bakið piparkökurnar brúnar við all-
góðan hita. Látið þær kólna, og leggið þær f ílát
með nokkrum sneiðum af nýju brauði (þá verða
þær mjúkar og seigar).
SKONSUR
3 dl hveiti,
1% tesk lyftiduft,
1 tesk. sykur,
3 dl heilhveiti,
Y2 tesk. salt.
Þessu er öllu blandað saman. Þá er 4—5 matsk.
af smjöri hnoðað saman við og 2 dl af volgri
mjólk blandað í og linoðaðar hringlaga kökur.
EPLASTEIK (pie).
Þrjú egg eru þeytt með 50 g af sykri, — 50 g
af hafragrjónum hnoðað út í, þvf næst % 1
mjólk og seinast djúpum diski af niðurskornum
eplum. Þetta er síðan látið í sniurt, eldtraust
form og haft í heitum ofni í 1 tíma. Smá smjör-
klatta má láta út á, þegar fer að stífna.
Nýlendugötu 26. — Sfmar: 19477 — 13309.
LJÓSKASTARAR
fyrir skip, báta 0. fl.
Útvegum með stuttum fyrirvara ljóskastara í
stærðunum:
10 tommu 12 — 14 — 16 —
18 — 20 — 22 — 24 tommu
Enn fremur oftast á lager
perur og aðrir varahlutir
f þá.
H.F. SEGULL
FÁST HJÁ
HERRADEILD
AUSTURSTRÆTI 14 SlMI 1 23 45
26
V IK A N