Vikan - 21.01.1960, Blaðsíða 25
FRAMHALD
úr síðasta blaði
sem skóburstari, uppþvottama?5ur
og þjónn, og smám saman kynntist
ég öllum aSstæðum. Fyrir hend-
ingu fór ég aS fást viS tóbaks-
verzlun, en á henni kunni ég nokk-
ur skil, þar sem faSir minn hafSi
verzlaS meS þá vöru áður.
Og sú varð raunin, að Onassis
eldri átti margt gamalla viðskipta-
v’ina í Argentinu, auk þess sem
tiann átti þar nokkurt fé í bönk-
um, sem hafði ekki fengizt flutt úr
landi. ÞaS fé kom Onassis yngra
nú í góSar þarfir, auk þess sem
honum tókst aS fá nokkurt fé að
láni vegna þess, live faðir hans var
þekktur þar að áreiðanleik. Fyrsta
árið svaf Onassis ungi ekki nema
þrjár klukluistundir livern sólar-
hring. Hann gegndi þjónsstarfinu
samtimis þvi, sem hann var að
koma undir sig fótunum sem tó-
baksinnflytjandi. En þegar honum
þótti auðsætt, að græða mætti fé
á tóbaksinnflutningi, sagði hann
Ipusu þjónsstarfinu og helgaði sig
verzluninni eingöngu. Ekki leið á
löngu, áður en hann tók að færa
út kviarnar. Hann flutti inn vindl-
inga samtímis þvi, að hann flutti
út ull og húðir og annaö þess
hátt ’r. Og þcgar hann var orðinn
tvitugur, var hann orðinn svo
vel stæður, að hann þóttist geta
látið það eft'r sér að sofa átta
tima i sólarhring.
Dugnaður og fjármálavit bessa
unga manns vakti mikta athvgli,
og svo mikið traust báru landar
hans til hans, að þeir fongu hnnn
til að hafa millisöngu um verzl-
nnarviðskipti Grikklands og Argen-
tinu. Onnssis lá ekki á liði sinu,
og svo mjög fannst Grikkjum til
um árangurinn, að þeir skipuðu
hann grískan aðalræðismann i
Buenos Aires i viðurkenningar-
skyni.
Þá var Onassis tuttugu og fimm
ára að aldri og auðæfi hans metin
á þrjátiu milljónir króna.
Honum heppnaðist allt, sem hann
tók sér fyrir hendur. Sú saga er
sögð, að fyrsta skipið, sem hann
komst yfir, hafi verið oliuflutninga-
skip, sem sat strandað á kletti, og
hafði bæði eigandi þess, björgun-
arfélagið og vátryggingarfélagið
gefið upp alla von um, að þvi vrði
náð út, þar sem allar tilraunir i
þvi skyni reyndust árangurslausar.
Onassis fékk það því fyrir litinn
pening. En viti menn: — Daginn
eftir að skipið var komið i hans
eign, breyttist vindáttin; gerði
storm og stórsjó, svo að skipið
losnaöi af skerinu litið laskað og
var sem nýtt eftir tiltölulega lítla
viðgerð.
Þegar í byrjun síðari heims-
stýrjaldar átti Onassis yfir 45 olíu-
flutningaskip og vöruflutningaskip.
Hann leigði bandamönnum allan
flotann, og nú gat hann fyrst farið
að græða fé fyrir alvöru. Hann lét
tækifærin ekki heldur ónotuð.
Hann sópaði að sér milljónunum.
Hann á nú mörg hundruð skip, og
einkaauður hans er talinn nema
allt að tuttugu milljörðum króna.
Enginn veit það þó með vissu, —
Onassis sennilega ekki heldur.
Vafalaust er þó skemmtisnekkja
hans, Christina, jiað skipið, sem
honuin þykir vænst um í flota sín-
um. Upphaflega var það kanadískur
tundurspillir, 1880 lesta, en Onass-
is keypti hann og lét breyta hon-
um í skemmtisnekkju i skipasmiða-
stöð einni i Kiel. Er sagt, að hann
liafi varið til þess allt að áttatíu
milljónum króna, enda getur ekki
skrautlegri skeið í liafi.
Onassis hefur látið gera sér
einkaskrifstofu um borð i snekkj-
unni og hefur þaðan þráðlaust
talsamband við allar skrifstofur
hinna mörgu fyrirtækja sinna og
skip sin á öllum höfum. En nú
er svo ástatt i lieimi vorum, að
• l!t or þar á bverfanda hveli, ekki
hvað sizt í alþjóðlegum viðskipt-
um og puðm-r'ni. Onassis er því
infnnn við ölhi hú'nn. Hnnn hpfnr
hiiið sér hp’m'li um horð i Christ-
inn o<r nenmð har s';o frá öllu. að
s’’i"ið oetu’’ lát'ð i haf fvrirvara-
laust. hi’enær sem er ot hvert sem
er. Það er húið nviustu og full-
komnustu ratsiártækjum, og allur
tæknilegur úthúnaður er eftir þvi.
Hámrrkshraði skips’ns pr 22 hnút-
ar á vöku. Auk þess sem skipið er
húið venjulegum björgunarbátum
fyrir áhöfnina, sem er þýzk og er
44 menn. er komið fyrir á þiljum
vélbát miklum, sem gengur sjötiu
km á klukkustund, sex lesta segl-
bát með þilfari og búnum öllum
fullkomnustu tækjum og loks flug-
vél, sem lent getur bæði á landi
og sjó, tekur fjóra farþega og getur
flogið án lendingar allt að 2000 km
með 320 km hraða á klukkustund.
í henni flýgur Onassis ásamt nán-
ustu samstarfsmönnum sinum frá
Monte Carlo, þar sem Iv nn hefur
aðalskrifstofur fyrirtækja sinna, til
úlibúanna i Paris, Hamborg og
Lundúnum.
Og jafnvel ]>ólt svo færi, að
nauðsyn bæri til, að skipið væri
lengi i liafi, cr svo frá öllu gengið
þar um borð, að engum þyrfti að
Framhald á bls. 28.