Vikan - 04.02.1960, Side 18
^ei
*
I-Irútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Það
sem gerist í þessari viku mun reyna
talsvert á þolinmæði þína og þraut-
seigju. E'f þú gefst upp umsvifalaust
og án baráttu, mun það koma þér í koll
síðar. Skyndileg breyting á háttum vinar þíns,
mun einnig valda talsverðri breytingu á háttum
þínum. Heillatala 3.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Ekki
verður vist skapið sem bezt i vikunni,
og virðist ætla að ganga á ýmsu. Þó
virðist létta til um helgina. Það mun
koma fyrir dálítið einkennileg atvik í
sambandi við gamla skuld. Þú hefur látið eitt
sérstakt verkefni sitja á hakanum undanfarnar
vikur. Reyndu að bæ.ta úr því.
Tvíburamerlcið (22. maí—21. júní): Þér
virðist ætla að vegna vel á flestum
sviðum í vikunni, þótt allt bendi samt
til þess að á einu sviði gangi alit á
afturfótunum. Láttu það samt ekki á
þig fá, og reyndu að sjá aðeins ijósu hiiðar til-
verunnar. Talan 6 getur orðið þér örlagarík eftir
helgina.
Krabbamerkið (22. júni—23. júlí): Það
mun margt glepja þig í vikunni, svo
að vikan verður síður en svo eins og
undanfarnar vikur — ef til vill verður
hún mjög skemmtileg. Upp úr helg-
inni kemur þú að rnáli við mann eða konu, og Þið
munuð ráðgast um mál, sem snertir þig persónu-
lega. Heillalitur bleikt.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Aðiög-
unarhæfni þín mun koma í góðar þarf-
ir i vikunni, líklega annaðhvort á
fimmtudag eða föstudag. Á vinnustað
kemur fyrir skemmtilegt atvik, sem
snertir þig óbeinlínis, en þú skalt ekki taka það
allt of alvarlega.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú
skalt varast að skipta þér af málefnum
annarra í þessari viku. Stjörnurnar
gefa ótvírætt í ljós, að mikil afbrýði-
semi er á ferðinni, annaðhvort ert þú
afbrýðisarnur eða einhver í þinn garð. Bezt væri
að þú værir sem mest heima við i vikunni.
rjuLWL~ Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.):
SpTjjBÍjl Áform, sem þú hefur haft lengi á prjón-
gngg|| unum, heppnast einkar skemmtilega í
í þessari viku, þótt endalokin verði alls
ekki eins og þú hafðir i fyrstu gert
ráð fyrir. Vinur þinn kemur þér þægiiega á óvart
um helgina.
HDrekarnerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þessi
vika verður ákaflega rómantisk. Elsk-
endur munu bindast fastari böndum —
sérstaklega virðist þó vikan vera hent-
ug til þess að taka stórar ákvarðanir
í hjartans málum. Á mánudag kemur dálítið f.vrir.
HBogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þú
virðist vera orðinn of hirðulaus, og
einmitt í þessari viku, mun það koma
þér í koll, ef þú gjörbreytir ekki hátt-
um þínum á stundinni. í samkvæmi
munt þú kynnast afar skemmtilegum manni, sem
mun verða þér hollur vinur í framtíðinni.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þeg-
ar menn leita ráða hjá þér, skalt þú
fyrst ihuga málið, áður en þú kveður
upp nokkurn úrskurð í málinu, því að
ellegar getur það komið þér í koll sið-
ar. Þú munt hjálpa kunningja þínum að ráða
fram úr máli, sem er honum ákaflega hjartfólg-
ið. I-Ieillatala 5.
Vatnsberamerkiö (21. jan. -19. feb.):
Þótt ekki gerist mikið í vikunni, mun
'SYSSÍ hún verða óvenju ánægjurík. Sam-
komulag ríkir bæði heima og á vinnu-
stað. Þér gefst mikill tími til þess að
sinna áhugamálum þínum, og notaðu þann tima
vel. •
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þú
verður á báðum áttum alla vikuna, út
af því hvort þú átt að ráðast í fyrir-
tæki, sem í fljótu bragði virðíst ákaf-
lega varasamt. Sannleikurinn er samt
sá, að þetta er ekki eins áhættusamt og virðist.
Það er ekki andskotalaust líf að vera
kóngur eða prins. Þá er maður skikkað-
ur til þess að vera formaður Itauða-kross-
ins og annarra líknarfélaga og verður sí-
fellí að gefa blóð til þess að gefa gott
fordæmi. Þetta verður veslingurinn hann
Albert Belgíuprins að hafa og á mynd-
inni er verið að taka honum blóð, rétt
einu sinni. En mikið mega þeir vera
hamingjusamir, sem fá blátt, konunglegt
bióð í sinn arma skrokk.
V
rcssannn prcssar
Margir þekkja Hauk Guðmundsson press-
ara, enda er hann víða á ferð með pressu-
járnið og brettið. Og stundum sést hann á
ferð með fatapoka eða nýhreinsuð föt und-
ir höndum. Það er mál manna, að Haukur
sé duglegur að vinna og kunni vel sín verk.
Hann fer til starfa sinna, hvernig sem
viðrar, og hefur stundum lent í stórliríð-
um og ófærð með tæki sín og dót. Hefur
hann joá brotizt áfram í ófærðinni, þegar
rútubílar hafa staðið fastir í sköflum.
Haukur á marga vini og þekkir flesta,
en kannast við aðra. Gegnir þekking hans
á öllu mögulegu fólki oft furðu, og taka
honum þar fá.ir fram. Haukur lætur sér
fátt koma á óvart, en brosir sínu tvíræða
brosi við heimskulegum, sjálfbirgingsleg-
um heimi. Kannski er hann mestur heim-
spekingur okkar.
Á myndinni, sem Pétur Thomsen tók
fyrir nokkrum árum, sést Haukur við
straubrettið, brosandi og ánægður i starfi.
Leynir sér ekki í svip hans einlæg vinnu-
gleði, enda er Jjað æðsta von hans að
geta orðið sjálfstæður og sjálfbjarga þjóö-
félagsþegn og séð sér farborða með starfi
sínu.
Einhverju sinni var Helgastaða-Gvendur
á rjúpnaskytteríi og hitti mann, sem líka var
á rjúpnaveiðum, en hafði orðið fyrir því
óhappi að festa krassann á byssunni og leit-
aði ráða hjá Gvendi.
Gvendur vat sér við og svaraði:
— 'BIessaður, þetta kom einu sinni fyrir
mig, og ég setti, meiningin, skot í byssuna
og miðaði á fallegan hóp og ,ég þræddi
meiningin, ellefu stykki upp á hann, krassa-
skrattann, skilurðu.
Ausíantialdsfiegurð
Þeim hinum ráðandi austaníjaldsmönnum
finnst að vísu öll aðdáun á kvikmyndastjörn-
um og fegurðardrottningum ákaflega kapítalis-
tískt og hvimleitt fyrirbrigði. Sjálfur Krússéff
hefur gengið fram
fyrir skjöldu og var-
að fólk við persónu-
dýrkun. Samt sem áð-
ur síast það í gegnum járntjaldið, að í
hinn vondu Ameríku og öðrum auð-
valdsríkjum séu fagrar leikkonur hátt
skrifaðar og eftirsóttar og þessi aðdáun
er farin að smita út frá sér þar eystra.
Þær eru pólskar þessar stjörnur, sem
meðfylgjandi myndir eru af og báðar
ljómandi fagrar. Þær eru frægastar af
kvikmyndaleikkonum Pólverja og sanna
að austantjaldsfegurðin er ekki síðri, ef
haldið er á lofti. Og varla ætti það að
skaða þá Gomulka og Krússéff til muna,
þótt unglingarnir hengi myndir af þeim
Evu og Irmu í herbergin sín.
Irina.
Eva.
‘Ráðherrann
iór í leikhúsið
Jens Otto Kragh hefur
haft skjótan frama í dönsk-
um stjórnmálum og komst
í ráðherrastólinn ungur að
aldri. Það vakti að vonum
mikla athygli, þegar hann
staðfesti ráð sitt og lét sér
ekki nægja minna en vin-
sælustu leikkonu Dana,
Helle Virkner. Hún var áð-
ur gift dönskum leikara, en
var á lausum kili, þegar
ráðherrann kynntist henni
á ferðalagi til ftalíu. Það
varð mikil og skyndileg ást
og nú hafa þau stofnað
heimili og má víst segja að
þax sé varla krókui’ né kimi,
sem ekki hefur birzt mynd
af í dönskum blöðum.