Vikan


Vikan - 03.11.1960, Qupperneq 12

Vikan - 03.11.1960, Qupperneq 12
9 8 1 'Sl' I f* Wl'* 1 |B H í * 1 "r~ Nixon, Patricia og dœtur þeirra. Eftir fimm daga fara fram forsetakosningar i Bandaríkjunum. Þá tjalda forsetaefnin öllu, sem til er og sagt er oð eiginkonur þeirra geti haft ótrúleg áhrif á gang málanna ÞÆR RÁÐA fJRSLITUM Frú Nixon: Frú Kennedy: „Þetta er hinn mikli draumur okkar Banda- ríkjamanna, þegar fólk af lágum stigum kemst efst í þjóðfélagsstigann með dugnaði og áhuga.“ Þannig mælti kona Richards Milhous Nixons, Patricia, þegar ákveðið var, að maður hennar yrði frambjóðandi repúblíkanaflokksins í forseta- kosningunum í Bandaríkjunum. Stjórnmál hafa átt sterk ítök í huga Patricíu Nixon síðustu 14 ár. Á þessum tíma hefur maður hennar verið kosinn í fulltrúadeild Bandaríkja- þings og öldungadeildina, hann hefur verið vara- forseti landsins, og nú er hann í framboði í for- setakosningunum í haust. Um þetta farast henni svo orð: „Síðan 1946 höfum við Dick staðið hlið við hlið i kosningahríðinni og barizt saman. Það er erfitt starf, en heillandi. Ég hef gaman af því. Ég hef gaman af að hitta fólk.“ Hið eina, sem skyggir á ánægjuna af þessu starfi, er, að það skil- ur hana frá tveimur ungum dætrum þeirra hjóna, — Triciu, sem er 14 ára, og Julie, 12 ára. Patricia Nixon er 48 ára, grannvaxin og veik- byggð að sjá, brúneyg með Ijósrauðbrúnt hár. Hún er aðlaðandi í framkomu, eðlileg, vingjarnleg og róleg, og hlýja og einlægni skina úr svip hennar og látbragði. Hún er alltaf smekklega klædd, en berst aldrei mikið á. Þótt frú Nixon sé ákaflega kvenleg í útliti og fínbyggð, býr hún yfir nær óþrjótandi orku og viljaþreki. Ástæðuna má ef til vill að nokkru leyti rekja til uppeldis hennar og aðstæðna í uppvexti. Hún var 12 ára, þegar móðir hennar dó, og kom það þá á hana að sjá um heimilið fyrir föður sinn og tvo bræður. 17 ára missti hún föður sinn, og fór hún þá að vinna fyrir sér við ýmis störf. Hún kostaði sig sjálf til náms við Kaliforníuháskóla og brautskráðist þaðan með ágætum vitnisburði. Því næst kenndi hún við gagnfræðaskólann í bænum Whittier í Kaliforníu, og þar kynntist hún Richard Nixon, sem þá var ungur lögfræðingur. Fundum þeirra þar fyrst saman, þegar þau léku í litlu leikhúsi áhugamanna í bænum. Giftingin fór fram þrem- ur árum síðar. Á striðsárunum var Nixon liðsforingi í banda- ríska flotanum, og fylgdi Patricia manni sínum þangað, sem hann var sendur innan Bandaríkj- anna, eins og títt var um eiginkonur. Hún fékk alls staðar vinnu, og þegar hann var sendur til Evrópu, hélt hún áfram að vinna. Frá 1953, fyrsta árið, sem Nixon var varafor- Framhald á bls. 34. Jacqueline Bouvier var orðin 24 ára, þeg- ar hún fór að hafa áhuga á stjórnmálum. Það var fyrir sjö árum, — sama ár og hún giftist John Fitzgerald Kennedy, öldunga- deildarþingmanni frá Massachusetts, sem nú er frambjóðandi demókrata i forsetakosn- ingunum í Bandaríkjunum 8. nóvember nk. Síðan hefur áhugi hennar vaxið með ári hverju, og hún hefur fylgt manni sínum ötullega á stjórnmálabraut hans. „Ég er búin að fá áhugann nú,“ segir Jacqueline Kennedy brosandi. „Þetta er smitandi." Ef maður hennar verður kosinn forseti nú i haust, verður hún önnur yngsta forsetafrú í sögu bandarísku þjóðarinnar. Yngst var Frances Folsom, 21 árs, sem gift- Kennedy, Jacqueline og dóttirin. ist Grover Cleveland forseta árið 1886, og var brúðkaupið haldið í Hvita húsinu. Jacqueline Kenndy er grannvaxin, með grágræn augu og kastaniubrúnt hár. Orð fer af fegurð hennar og smekklegum og tízkulegum klæðaburði. Hún er fluggáfuð kona, fáguð í framkomu, en nokkuð hlé- dræg og ákaflega kvenleg. Hún er af auð- ugri og áhrifamikilli ætt eins og eiginmað- ur hennar. Hún er menntuð í einkaskólum, — stundaði nóm við Vassar College, var eitt ár i Sorbonne í París og lauk kandídats- prófi frá Georgs Washingtons-háskóla. Frönsku og ítölsku talar hún reiprennandi og er vel að sér í sögu og listum, fylgist Framhald á bls. 34. 1 2 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.