Vikan


Vikan - 03.11.1960, Síða 14

Vikan - 03.11.1960, Síða 14
r hópnum Sigried Clark heitir hún og hefur alið allan sinn aldur i Californíu, har sem appelsínurnar vaxa á trjánum og snjór þekkist ekki frekar en pen- ingar á íslandi. Hún er aðeins ellefu ára gömul og Þar sem okkur þótti fróðlegt að vita hvernig hún kynni við sig á Islandi tókum við okkur til og fengum hjá henni nokkur orð. — Þú ert íslenzk í aðra ættina, Sigried, er það ekki? — Jú, mamma er íslenzk. — Og finnst þér þú eiga heima hér á íslandi? — Já, mér finnst t. d. mikið frekar að fólkið hérna sé fjölskylda mín, heldur en skyldfólk mitt erlendis, en samt langar mig dálítið út aftur. — Já, við trúum því vel. Var ekki nokkuð erfitt fyrir þig að byrja i skólanum hérna, þurftirðu ekki að lesa upp ýmislegt til að verða sam- ferða hinum krökkunum? — Jú, Það var nokkuð erfitt, sér- staklega með málið til að byrja með, því að það eru ekki nema þrjú ár síðan ég byrjaði að læra íslenzku, en það hefst alit saman. — Hvernig kanntu annars við þig í skólanum? — Ágætlega, mér finnst bara dálítið agaleysi og börnin eru ekki nærri því eins kurteis og úti. Ég mundi frekar vilja vera í skóla erlendis, fé- lagslifið er mikið betra. — Hvað finnst þér skemmtilegast að læra? — Reikning og bibliusögur. — Finnst þér nú ekki litið um að vera hérna, lítið sem Þú getur gert þegar þig langar til að skemmta þér? — Jú, svo sannarlega, það er ekkert hægt að gera nema fara i bió. — En gerirðu ekki eitthvað sér- stakt í tómstundum? — Ja, ég er í ballett. — Jæja, varstu kannski í ballett úti líka? — Já. —- E'rtu jafnvel að hugsa um að verða balletdansmær ? — Nei, svarar hún, en það var nokkuð dræmt. — Hvernig finnst þér að verzla hérna, geturðu fengið allt sem þú villt fá? — Nei, það eru mikil viðbrigði, en ég reyni að útvega mér það sem ég get að utan. — Hvað er það helzt sem að Þér finnst Island hafa fram yfir Kali- forníu? — Snjórinn, mér finnst snjórinn einna mestur kosturinn við ísland. Það er svo gaman að leika sér í hon- um. — En finnst Þér samt ekki dálítið kalt hérna? — Nei, nei, ekkert mjög. — Jæja, Sigried, við ætlum ekki að vera að tefja þig lengur, áttu ekki efiir að læra? — Nei, ég er eiginlega alveg búin, ég á bara eftir biblíusögur og reikn- ing. bréi Kæra Vika Eg les alltaf Vikuna, og mér þykir gaman að lesa hana. En nú ætla ég aö spyrja að svolitlu. Hvernig er hægt að raða sig og syngja dægurlög í danshljómsveit? Hvað á maður að læra, þegar maður ætlar að verða kvenlögregla? Hvernig er skriftin? Magga. Leitiö til einhvers hljómsveitar- stjóra og reyncLu aö fá hann til aö hlusta á þig og segja þér til —ef til vill hefur hann aöstööu til aö koma þér einhversstaöar á framfœri, annaö hvort meö sinni eigin liljómsveit eöa annarsstaöar. Annars er erfitt aö gefa þér nokkur góö ráö varöandi þetta mál, því viö höfum enga hugmynd um hve mikla hœfileika þú hefir sem dægurlagasöngkona, en á því veltur auövitaö mikiö. Á undanförnum ár- um hefur oft veriö efnt til hljómleika hér í bœnum, þar sem kynntir hafa veriö nýir dægurlagasöngvarar og oftast liafa staöiö fyrir kynningu þessari þekktir liljómsveitarstjórar hér. Kannski þú getir fengiö tækifæri til aö lofa fólki aö lieyra í þér á nœstu kynningarhljómleikum. En aö- alutriöiö er aö vera dugleg aö æfa sig, og fá einhvern, sem vit hefur á, til aö segja þér til. Spurningu nr. 2 er mjög erfitt aö svara skýrt, því svo ótal margt kem- ur til greina, er stúlka er ráöin í Kvenlögregluna. En lágmarksaldur er 25 ár og gagnfrœöamenntun skilyröi. Auk þess þarf aö sjálfsögöu aö sækja einhver sérnámskeiö í sambandi viö starfiö. En bezt væri fyrir þig aö snúa þér beint til Kvenlögreglunnar i Reykjavík, Klapparstíg 16. Þar hlýt- ur þú aö fá allar þœr upplýsingar, sem þú þarfnast. Skriftin er bara sæmileg Kæra Vika. Mig langar mjög mikið til að skrif- ast á við norsk börn og ég ætla að biðja þig að birta fyrir mig nafn „Mig vantar hundraö krónur nú á stundinni, en ég lief ekki hugmynd um hvar ég’á aö fá þær.“ „Þaö var gott, ég hélt kannski aö þú ætlaöir aö fá þœr lánaöar hjá mér.“ „Komdu meö aö synda.“ „Get þaö ekki. Mölurinn át baö- fötin mín.“ „Nú, er hann í megrunarkúr, greyiÖ.“ „Hefur nokkur af œskudraumum þínum rœzt?“ „Já, þegar bróöir minn var aö toga í háriö á mér, óskaöi ég þess aö ég voeri sköllóttur Skip & Flip. Það hljómar eins og naín á haframjöli eða einhverju sliku. En það er nú samt ekki svo. Skip & Flip eru Þessir tveir ungu piltar hér á myndinni og þeir eru nyjustu hijóm- plötustjörnurnar irá „Top Kank", og eru sagðir gera rokkmusikinni góð skil og vera með betri „duettuin", sem fram hafa komið á siðustu ár- um. Og áreiðanlega eiga þeir eftir að gera „lukku" nér með lögunum sínum eins og annars staðar. „HefurÖu gleymt því aö þú skuldar mér fimm ihundruö krónur?“ „Nei, ekki ennþá, en ef þú gefur mér svolítinn tíma, þá skal ég reyna þaö.“ „Af hverju eruö þiö feitu mennirnir alltaf svona geögóöir?" „Sjáöu til, viö getum hvorki slegist eöa hlaupiö.“ Dómarinn: Þú lýgur svo ósennilega, aö þú gætir veriö lögfrœöingur. Hún er ekki nema ellefu ára, en er nú þegar orðin þekkt í Noregi og Danmörku fyrir söng sinn. „Lille Grethe", eins og hún er alltaf kölluð, er norsk og hefur bæði sungið inn á hljómplötur og ieikið i nokkrum kvikmyndum og er um þessar mund- ir óhemju vinsæl meðal yngsta fóiks- ins í heimalandi sinu. Um hverja helgi ferðast hún á milli borga í Noregi og syngur rokklögin sin og allt keyrir um koll af fagnaðarlátum. Annars er „Lille Grethe" i skóla eins og önnur börn á þessum aldri og kvað standa sig þar með prýði, þrátt fyrir hinn mikia tima sem fer í æf- ingar og annað í sambandi við söng- inn. Hún ætlar sér að verða annaö- hvort leikkona eða píanóleikari þegar hún er orðm stór, og er ekki aö efa að þessi músíkalska teipa á eítir að ná langt, að að hverju sem hún snýr sér í iramtíðinni. Þú skalt skrifa til „Norsk Ukeblad". Bladecentralen, Sörkedalsveien 10, OsLo. skrítlur einhvers norks blaðs, sem birtir nöfn pennavina. Þakka þér svo fyrir allt skemmtilegt. Þú ættir gjarnan að hafa fleiri myndasögur. 1. C. hlj ómlist 14 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.