Vikan - 24.11.1960, Page 42
bráðar byrja að streyma niður i gegnum bað,
annaðhvort með vaxandi hraða eða í stórum drop-
um eða slettum, sem helltust niður gegnum
bynnstu blettina. Ef svo færi, mundu dropaslett-
urnar útrýma því lofti sem fyrir vseri alllt i
kring, með feiknaafli. Slíkt gas, sem streymdi
niður gæti verið nógu kalt til þess að drepa og
frysta mammútdýr á einu augnabliki.
Nú skulum við aftur lita á vesalings mammút-
dýrin okkar, þar sem þau rölta japlandi um hag-
ana, kannski í glaða sólskini. Það er jafnvel ekki
ský á himni eða mistur i lofti, eins og nú er á
þeim slóðum, sem Mið-Asía er nú. Allt i einu
byrjar loftið að hreyfast á undarlegan hátt, eins
og fyrir kemur í norðurheimskautshéruðunum nú,
þegar fyrstu kuldarnir koma og hitinn lækkar
um 60 stig á klukkustund.
Hið eina, sem mammútdýrið verður vart við,
er skyndilegur, sár sviði um allt og brennandi
kvalir í lungunum. Loftið virðist vera orðið að
eldi. Það dregur andann nokkrum sinnum og
gefur upp öndina, og þá þegar eru lungu þess,
háls, augu og eyru og húðin kristölluð. Ef það er
í miðri dembunni umlykur hinn hræðilegi úði það
og eftir fáar stundir má segja að það sé orðið
líkneskji úr steini. Síðar kemur snjórinn og þekur
það mjúklega. Þá skulum við yfirgefa það um
stund og sjá hvað verður um fjarskyldan frænda
þess í Alaska, sem liggur rétt utan við svæðið,
þar sem demban féll.
Þar má búast við að þykkni upp og jafnvel byrji
að snjóa, en það hefur dýrið ekki upplifað fyrr
á þessum slóðum í september. Það labbar af stað
til þess að leita skjóls. En þá kemur stormur, sem
vex með miklum hraða og verður að ofsaroki,
en endar í veðri sem ekki verður með orðum
lýst. Það missir fótanna og kastast eins og Ijónin,
vísundarnir, fiskarnir úr vötnunum og öll önnur
dýr, utan i tré og kletta, rifið og kramið í smá-
tætlur og svo veltur það áfram til að enda í ólg-
andi potti með vatni, mold, brotnum trjám, ruðn-
ingsgrjóti, tættu grasi og runnum og tætlum af
meðbræðrum sínum og öðrum dýrum. Svo kemur
kuldinn og frystir þetta allt og þegar allar þessar
hamfarir eru á enda þekur snjórinn allt saman.
Svona var ástandið í Alaska. þar sem mammút-
dýrin og önnur dýr, með örfáum undantekning-
um, voru tætt í sundur strax og frusu samstundis.
En það eru önnur svæði þar sem dýrin voru sund-
urtætt, en náðu að rotna áður en þau frusu og
enn annars staðar höfðu þau rotnað heil inn að
beini og frosið sums staðar og annars staðar ekki.
Svo eru staðir þar sem stórir hópar, heilar hjarðir
af dýrum, eni í einni hrúgu í giljum og árfarveg-
um og í öðrum dældum, og af þeim eru aðeins
beinin eftir.
Ef til vill er hér fundin ráðning gátunnar miklu
um mammútdýrin, svörin við spurningunum um,
hvers vegna fundizt hafi dýr á einum stað með
sóleyjar á milli tannanna, en sundurrifin, en þó
þekkjanleg á öðrum, rotnuð á þeim þriðja og
beinahrúgur annars staðar. Dýrin frusu heil, þar
sem demba af ísköldu lofti féll til jarðar áður en
stormurinn skall á, sundurtætt og frosin þar sem
Draumar
Framhald af bls. 26.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi, að ég væri á gangi með systur
minni og strák, sem hún var einu sinni með,
— en nú er það allt búið, — og barninu hennar,
sem hún átti með öðrum manni. Við fórum
niður að bryggju og sáum þá skip, sem vinur
minn er á, sigla út höfnina, og fannst mér það
vera alveg mannlaust. Og nú langar mig að
fá vitneskju um, hvað þetta merkir.
Ein i vanda.
Svar til einnar í vanda.
Að dreyma skip á siglingu er merki um
ævintýri, sem mun verða ágóðasamt og full-
nægjandi. Af draumnum má skilja, að þetta
ævintýri sé í sambandi við Amor, — í sam-
bandi við þennan vin þinn, sem starfaði á
hinu mannlausa skipi.
Draumráðandi Vikunnar.
Mig dreymdi, að strákurinn, sem ég er hrifinn
af, væri kominn heim. Hann hefur verið er-
lendis í sumar. Við erum í félagsskap með mörg-
um öðrum krökkum, og þar sá ég hann fyrst.
Hann var í fallegri, grárri peysu og var alltaf
að tala við einhvern. Hann var að reyna að
benda mér að koma að tala við sig, en ég
þóttist ekki sjá það. Ég var að tala við háa,
Ijóshærða stelpu, sem hann hafði verið með
stundum áður, en hún var alltaf að reyna
að fá mig sem lengst í burtu frá honum. Ég
fór niður í snyrtiherbergi til að iaga mig til,
en hárið á mér var aldrei gott. Annaðhvort
var það út í loftið eða það lá þétt niður. Að
endingu fór ég upp, en þá var fundurinn byrj-
aður, og ég kom of seint. Þá vaknaði ég.
Feimin.
Svar til Feiminnar.
Þessi draumur er tákn vonbrigðanna. í
raun og veru er hann fullur af táknum um
vonbrigði. Ekki er mér grunlaust um, að þú
ljtir nokkuð stórt á þig og sért ekki nógu
sveigjanleg eftir aðstæðunum. Fólk getur
verið mjúkt og þýtt í viðmóti, þó að það
haldi sinni ákveðnu stefnu. 011 verðum við
að temja okkur auðmýkt, eða við lærum auð-
mýkt af lífinu fyrr eða síðar með blíðu eða
stríðu. Eðli konunnar er að láta ganga eftir
sér, en það eru líka takmörk fyrir því, hvað
hver maður lætur bjóða sér af því taginu. f
öllum kvenréttindamálum nútímans ætti
ekki að vera svo ósiðlegt af konunni að
ganga eftir þeim manni, sem henni lízt vel
á. Eða eru lögmál náttúrunnar ef til vill
^ sterkust i þessu tilliti? Þýðing draumsins
42 VIKAbt
er því að mínu viti ábending um margs kon-
ar erfiðleika á næstunni.
í i j
Draumráðandi Vikunnar,
Ég og vinkona mín sóttum báðar um pláss á
heimavistarskóla en fengum ekki. Nú kemur
draumurinn. Mig dreymdi að þessi vinkona mín
kemur til mín og segir að hún sé búin að fá
pláss á skólanum. Ég reyni þá aftur að fá pláss
á skólanum, en án árangurs. Ég tók þetta mjög
nærri mér og grét mikið. Jæja svo kemur að því
að hún fer og einnig bróðir hennar og frændi.
Ég hélt áfram að gráta en þá kemur frændi
hennar til mín en ég er mjög hrifinn af hon-
um og kyssir mig, en hárið á mér verður allt
fyrir og svo fara þau en ég sit eftir og græt.
Með kærri þökk,
Kiddý.^
Svar til Kiddýar.
Draumur þessi merkir að þú munir ekki
hitta vin þinn, sem býr nokkuð langt frá þér.
Einnig ber draumurinn með sér vonbrigði á
ýmsum sviðum, svo sem ástarmálum. Von-
brigði og erfiðleikar tvinnast saman í draumi
þessum og má því einnig búast við erfiðleik-
um.
Kæri draumaráðandi Vikunnar,
í nótt dreymdi mig eftirfarandi draum: Ég var
úti að labba með barn i vagni, sem mér fannst
vera mitt. Ég skildi barnið eftir fyrir utan ein-
hverja byggingu á meðan ég skrapp inn fyrir.
Ég man ekkert hvað ég var að gera eða hve
lengi ég var. Þegar ég fór út þá vatt ég mér
— Ég skil að þér rekið upp stór augu frú, en
það er ekki nokkur leið að venja manninn minn
af því að koma inn svona óhreinn á fótunum.
rokið kom á undan frostinu og þar sem dýrin höfðu
haft tíma til að rotna áður en frostið kom, eða að
jarðskorpan flutti þau norður á bóginn, voru bara
beinin eftir.
Leifarnar sem stóðu upp úr jarðveginum, þar
sem frostið kom fyrst niður, voru örugglega frosn-
ar og varðar fyrir skemmdum þegar snjórinn kom,
eins og t. d. Beresovkadýrið. Það út af fyrir sig
er mikilvæg sönnun, því jöklar náðu aldrei að
myndast í Siberíu, þar sem jarðskorpan var sí-
íellt á hreyfingu. Það hefur sézt, að einhvern tíma
hefur byrjað að myndast þar jökull, en hann varð
brátt að engu, og þegar hann bráðnaði, bar
vatnið úr honum heilmikið aí leðju niður, að sunn-
an og norður eftir, en Þannig renna árnar í
Siberíu, og leðjan lagðist ofan á snjóinn. Hún fraus
á haustin og bráðnaði á vorin og af því að dökk
efni taka til sín meiri hita en ljós efni, bræddi hún
smám saman snjóinn undan sér og urðu Því dýrin
umlukin leðju, sem kom í staðinn fyrir saman-
þjappaðan snjóinn.
Eins og við sögðum i upphafi, var enginn, sem
óskaði eftir hraðfrystum fílum. En margir munu
fyllast þakklæti vegna tilveru þeirra, þegar það
kemur í ljós að hún mun stuðla að þvi að svar
fáist við spurningum um þá atburði, sem geta haft
úrslitaáhrif á líf okkar og framtiðartilveru. Þarna
er ef til vill fyrirboði um, hvað við getum átt í
vændum, ef sams konar atburðir eiga eftir að
gerast. -fc
út um glugga og kem niður við hliðina á pilti.
Ég sá strax hver pilturinn var svo ég spyr.
ÞorirSu ekki að snerta á því. Hann spurði hvort
þetta væri sitt barn. Ég játti því. Mér fannst
hann gleðjast mjög við því. Siðan löbbuðum
við saman niður í bæ. Allt var öðru visi um-
horfs en það er. Síðan tekur hann mig í faðm
og segir. „Gréta, höfum við virkilega aldrei
kyssts. En hvernig höfum við þá getað gert
þetta sem árangurinn hér sýnir? og bendir í
áttina að barninu.
Eigthsý.
Svar til Eigthsý.
Draumurinn er merki urn hamingju í fjöt-
skyldulífi þínu. Tákn hamingjunnar eru
mörg þarna t.d. kossinn, barnið og húsið.
Barnið er ennfremur tákn um stóra fjöl-
skyldu, sem þú munt eignast. Kossinn er tákn
um vetgengni í ástarmálum í þessu tilfelli,
merking kossins fer mjög eftir kringumstæð-
um.
Vinsamlegast ráðið eftirfarandi draum:
Ég var í nokkurs konar járnbrautarlest, með
aðeins 2 vögnum og fannst mér ég stýra. Var það
auðvelt, en þar sem vagninn minn elti annan, fór
hann sömu leið og gengnum hvað sem fyrir var.
Allt í einu var ég ein i öðrum vagninum og fannst
ég komast í strand, þar sem hús varð á vegi
mínum og gegnum það varð ekki komist. Allt í
einu sá ég mann þar og um leið varð ég vör við
að reyk lagði upp úr pokum, sem í húsinu var.
Hafði ég grun um að maðurinn hefði kveikt í,
en þar sem mér lá á að finna rétta leið og hitta
gerði ég ekki neitt og þar eð ég einnig sá að
maðurinn var með byssu, lét ég sem ég setti
hann ekki í samband við við reykinn, og lét hann
þá byssuna síga og fór niður um þröngt gat,
sem var á gólfi byggingarinnar. Allt í einu var
ég komin af stað aftur i vagninum og var þá
faðir minn sem er dáinn fyrir löngu, allt í
einu kominn og vildi hann stýra, en mér fannst
hann svo þreyttur og lásburða að ég bað hann
um að leggja sig og breiða eitthvað ofan á sig.
o.s.frv.
Draumur þessi var óundirskrifaður.
Draumur þessi er eins og sjá má hinn has-
arfengnasti, og of langur til að fara út í ein-
stök tákn hans nema það helzta. Þáttur járn-
brautarinnar f draumnum bendir til þess að
þú ættir að einbeita þér betur að starfi þínu
heldur en þú gerir, bæði vegna sjálfs þíns og
annara viðkomandi aðila. Ef þú gerðir það
eru fullar horfur á tekjuaukningu hjá fcér.