Veðrið - 01.04.1968, Side 3

Veðrið - 01.04.1968, Side 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 75.00 1. HEFTI 1968 13. ÁRGANGUR RITNEFND: JÓNAS JAKOBSSON FLOSI H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞÓRSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131 JÓN EYÞÓRSSON, veðurfræðingur. - MINNINGARORÐ - Jón Eyþórsson, veðurfræðingur, lézt ;í 74. aldursári á Landspítalanum hinn 6. marz s. I. eftir nærri fjögurra mánaða legu. Hann var fæddur 27. janúar 1895 að Þingeyrum í Húnavatnssýslu. Foreldrar lians voru Eyþór Árni Benediktsson bóndi og kona hans Björg Jósefína Sigurðar- dóttir. Þau fluttu rétt fyrir aldamótin að Hamri í Bak-Ásum, og þar ólst Jón upp, unz hann hóf skólanám. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Akureyri 1914 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1917. Eins og flestir námsmenn á íslandi i'yrr og síðar þurfti Jón að vinna liörðum höndum á sumrin. Reyndist honum vegavinna drýgst til fjáröflunar, Jrví að á þeim árum var verið að leggja vegakerfi það, sem enn er undirstaða umferðar- innar, rúmri hálfri öld síðar. Vafalítið er, að þessi sumur hefur hinn sivakandi áhugi Jóns á íslenzkri náttúru glæðzt við athugun á ummerkjum veðurs, vatna og jökla á svipmót landsins og á undirlagið, sem vegir Húnaþings voru lagðir um og brýrnar reislar á. Frá Reykjavík lá leiðin til Kaupmannahafnar, og þar tók liann fyrri hluta náttúrufræðiprófs árið 1919. Þá stóð hann á vegamótum og ýmsar leiðir opnar. Það réðist, að nokkru vegna ráðleggingál Þorvalds Thoroddsens, að hann liélt til veðurfræðináms í Noregi, því að Jrá var nýstofnuð jarðeðlisfræðidcild í Björgvin undir forystu Vilhelm Bjerkness prófessors, sem Jjá var orðinn heims- þekktur lyrir nýjar kenningar í vcðurfræði. Að loknu námi við háskólann í Osló og veðurfræðistofnunina í Björgvin vann Jón sent veðurfræðingur á norsku veðurstofunni í 4—5 ár, aðallega við veðurspár. Á sumrin ferðaðist hann Jjó mikið við eftirlit á veðurathugunarstöðum. En í sumarfríum starfaði hann ásamt öðrum ungum áhugamönnum við veðurathuganir á háfjöllum Noregs, og Jtar mun hafa vaknað hinn brennandi áhugi hans á jöklafræði og gildi jöklarannsókna. Átti Jón sinn Jjátt í að byggja fjallastöðina á Fanaráken í Jötunheimum. Þar kynntist hann ]>rófessor Ahlmann, sem vann með honum að könnun Vatnajökuls í tvo mánuði sumarið 1936. Árið 1926 fluttist Jón lieim alfarinn og réðist lil Veðurstofu íslands sem VEÐRIÐ --- 3

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.