Veðrið - 01.04.1968, Side 7

Veðrið - 01.04.1968, Side 7
HLYNUR SIGTRYGGSSON, veðurstofustjóri: Veðurvarzla veraldar - World Weather Watch Nokkrum sinnum liefur það komið fyrir í sögu veðurfræðinnar, að tæknifram- íarir á öðrum sviðum hafa haft úrslitaþýðingu á þróun hennar. Reyndar má líklega segja svipað um aðrar fræðigreinar, en þó munu þessir atburðir hafa komið oftar fyrir innan veðurfræðinnar og orðið þar afdrifaríkari en í sögu annarra fræðigreina. Þannig varð uppfinning ritsímans um ntiðja síðustu öld til þess, að hægt varð að safna veðurfregnum af stórum landssvæðum á skömmum tíma, og komst þetta til framkvæmda nokkru eftir hið nafntogaða óveður á Svartahafi þann 14. nóvember 1854, er olli nteiri usla í flotunr Frakka og Breta þar, en fallbyssur fjendanna höfðu mátt til. Þegar skipulag fór að komast á skeytasendingarnar, voru fljótlega stofnaðar veðurstofur í ýmum löndum, á Bretlandseyjum árið 1861, í Frakklandi 1863 og í Noregi árið 1866. Næstu hundrað ár þróaðist veðurfræðin jafnt og þétt. Athugunarstöðvum fjölgaði í öllum hlutum heims, mest þó á norðurhveli jarðar, og háloftaathug- anir urðu algengar á þriðja og fjórða tug tuttugustu aldar. Framfarir á vísinda- sviðinu urðu líka stórstígar, inestu munaði þó, er Vilhelm Bjerknes lagði smiðs- höggið á verkið, sem gera þurfti til að hægt væri að beita aflfræði Newtons á loft og höf. Þessu verki var að mestu lokið um síðustu aldamót, þótt það liafi að sjálfsögðu verið endurbætt síðan. Bráðlega kom þó í ljós, að ef leysa átti stærðfræðilíkingarnar, sem réðu breytingum loftsins, þurfti til þess lítt viðráðanlegan talnagrúa, jafnvel þótt þær væru gerðar eins einfaldar og frekast þótti fært. Enskur stærðfræðingur, Lewis F. Richardson, gerði þó tilraun til þess árið 1922. Aðaltæki lians var venju- leg reiknivél — bezta tækið, sem þá var tiltækt — en hún reyndist allsendis ónóg. Richardsón vann eitt sinn sex vikur að því að reikna veðurspá tólf tíma frarn í tímann — og hún reyndist röng. Eftir þetta áætlaði Richardson, að 64 000 reiknivélar og reikningsmenn þyrfti til að reikna áður en veðurspáin kæmi út í tæka tíð. Hér um bil liundrað árum eftir stofnun liinna fyrstu veðurstofa leit aftur Foreldrabyggð sinni og æskustöðvum unni Jón og var þeim trúr til hinztu stundar. Hann kaus að hverfa til uppruna sins og lilaut leg að fæðingarstað sínum, Þingeyrum í Húnaþingi. Þangað fylgdu honum traustustu garparnir i hinu fræga jöklaliði lians. Það er stór eyða þar, sem Jón stóð áður. Það finnum við bezt, sem störfuðum með honum og undir hans leiðsögn. En þó er missir venzlafólks og ættingja mestur, systkina, barna og barnabarna. Þeim vottum við innilega liluttekningu við fráfall hans. Jónas Jaliobsson. VEÐRIÐ 7

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.