Veðrið - 01.04.1968, Blaðsíða 8

Veðrið - 01.04.1968, Blaðsíða 8
út fyrir að gagngerar breytingar yrðu á sviði veðurfræðinnar, og enn var það vegna tækniþróunar á óskyldum sviðum. f þetta skipti voru þróunaratriðin tvö. Skömmu eftir miðja öldina sleit rafeindareiknirinn skyndilega barnsskónum, og gat á fáum mínútum lokið meira og betra reiknistarfi en Richardson lauk á sex vikum. Og fáunt árum seinna var fyrsta gervihnettinum til veðurathugana skotið á loft, hann þaut umhverfis jörðina á einum eða tveimur klukkutímum, og sýndi skýjafar og storma á svæðum, sent varla liafði nokkur veðurathugun borizt frá fyrr. Enginn skyldi þó ætla, að starf Richardsons hafi verið unnið fyrir gýg, eða gamla veðurathugunarkortið úrelt. bvert á móti. Reikningsspárnar voru einmitt byggðar á aðferðum Richardsons, og venjulegar veðurathuganir þurfti til að fá fullan skilning á því, er gervihnattamyndirnar sýndu. En möguleikar veðurfræð- innar höfðu gerbreytzt. Nú var hægt að sjá fram á möguleika til að mynda skýja- lög lofthafsins, og jafnvel mæla hita þeirra utan úr himingeimnum. Síðan ntyndu hraðvirkir rafreiknar taka við þessunt þúsundum athugana frá gervi- hnöttunum og athugunarstöðvunum á jiirðu niðri, fella þær saman í heilsteypta stærðfræðimynd af lofthafinu og nota síðan lögmál aflfræði og hitafræði til að reikna út veðrið næstu sólarhringa. En auðséð var, að til að koma þessu í framkvæmd þurfti víðtæka alþjóðasam- vinnu, bæði til fjármögnunar og skipulagningar. Veðurfræðingarnir leituðu því til stjórnmálamannanna sér til trausts og halds í þessum efnum. Þeir brugðust vel við: sextánda allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun, þar sem það lýsti ánægju sinni vegna hinna stórfelldu möguleika, er geimkönnun og geimtækni veitti til framfara á sviði veðurfræðinnar, og taldi fullvíst, að þær gætu orðið öllum jjjóðum til mikilla liagsbóta. Þingið livatti líka alla félaga Sameinuðu þjóðanna og dótturstofnun þeirra, Alþjóðaveðurfræðistofnunina, til að nota öll tiltæk ráð við að efla þekkingu á öflurn þeim, er ráða veðurfari og nota þau, ef unnt væri, til að breyta veðráttu til batnaðar. Þessu marki átti að ná meðal annars með því að efla þær veðurfræðistofnanir, sem þegar hafði verið komið á fót og lengst væru á veg komnar, og veita félögum Sameinuðu jjjóðanna tækifæri til að notfæra sér jtær á sent hagkvæmastan hátt. Fljótt á litið kann þessi ályktun að virðast málskrúð eitt. Svo er þó ekki. Hún lagði Jtvert á móti breiðan grundvöll, er Iiægt var að byggja á frekari áætlanir og framkvæmdir. Alþjóðaveðúrfræðistofnunin hóf þegar að endurbæta og endur- skipuleggja hið gamla veðurathugunarkerfi með hliðsjón af nýjum aðstæðum, og naut lil jtess aðstoðar sérfræðinga frá flestum löndum heims. Þetta nýja kerfi var nefnt World Weather Watch — Veðurvarzla veraldar. 1-Iér á eftir verður helztu þáttum jtess, veðurathuganakerfinu, vinnslukerfinu og fjarskiptakerfinu lýst í liöfuðatriðum. Oll veðurfræði byggist á veðurathugunum, Jrær veita þekkingu um ástand loftsins á hverjum tíma. Um átta þúsund athugnnarstöðvar urn allan lieim senda frá sér veðurskeyti á nokkurra klukkustumla fresti, við Jtetla bætast svo veðurskeyti frá 3000—4000 skipum úti á rúmsjó, og háloftaathuganir frá 700 8 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.