Veðrið - 01.04.1968, Síða 19
Oö.OOZ þ. 17. á þessum sólarhring hreyfist lægðin, sem myndast á Grænlands-
sundi, austur með norðurströnd Islands og dýpkar um 15 mb.
Veðurkortunum frá 21. og 22. júlí 1968 svipar mjög svo til júníkortanna frá
1959: Lægð á Grænlandssundi, sem hreyfist á 24 kist. austur meff Norðurlandi og
er kl. Oö.OOZ ca. 200 km suðaustur af Langanesi og hefur dýpkað um 15 mb eins
og júnílægðin.
Urn Jressa lægð og áhrif hennar segir svo í Veðráttunni:
Mynd II. Júlilœgðin 1966.
„Þ. 21. myndaðist lægð norðaustur af Vestfjörðum og regnsvæði nálgaðist
landið vestan að. Vindur gekk til suðurs og rigndi um allt land. Úrkoma var
óvenju mikil á suðvestanverðu landinu. Um kvöldið snérist vindur til vesturs
og kólnaði í veðri. Síðari hluta nætur var lægðin fyrir norðaustan land og vind-
ur orðinn norðvestlægur með rigningu norðan lands. Þ. 22. hvessti og rigndi um
norðanvert landið. Þetta veður stóð einnig næstu tvo daga, en þá var víða
stormur eða rok, mikill sjógangur við Norðurland og rigning eða slydda í byggð
en snjókoma til fjalla. Hvassviðrið náði yfir allt landið að heita má, en var Jx>
ekki mikið vestan lands. Síðdegis }>. 24. fór að lægja . . . o. s. frv.“ Og enn segir
svo um áhrif veðursins á láði og legi:
í úrfellinu }>. 21. féllu skriður allvíða, og vegaskennndir urðu suðvestan lands
og víðar. Skriður féllu á veginn í Hvalfirði og ræsi féll niður á Kjalarnesi svo að
vegurinn varð ófær. Við Mógilsá slitnaði síminn. Skriður féllu einnig úr Akra-
fjalli og ein þeirra stíflaði Berjadalsá. A Vestfjarðaleið og í Norðurárdal nyrðra
féllu skriður. í norðanrokinu þ. 23.-24. urðu miklar og margvíslegar skemmdir
víða um land. Hey fauk víða, einkum í Skaltafellssýslum og Rangárvallasýslu
svo og á Héraði. Girðingar lögðust niður og kartöflugarðar skemmdust mjög
mikið. íslenzkur skipverji á norsku síldarflutningaskipi féll fyrir borð og
drukknaði 50 sjómílur út af Raufarhöfn. Tvær trillur sukku við Svalbarðsströnd.
Síldveiðiskip laskaðist fyrir norðan land. Þök tók af húsum í nágrenni Olafs-
VEÐRIÐ
19