Veðrið - 01.04.1968, Side 29

Veðrið - 01.04.1968, Side 29
Annan márz mátti sjá feikna mikinn ís nálega fyrir öllu hafi. En sá ís kom aldrei alveg að landi ailan þann mánuð. Enda voru oftast hin beztu veður allan marz. í apríl voru oft mjög góð veður. Þ. 4. var t. d. allt að 20 st. Ititi unt miðjan daginn. Aftur á móti komu vondar stórhríðar um páskana (sem voru að þessu sinni 16. apr.). Þau hríðarveður héldust í nokkra daga. Nú fór ísinn að reka að landi á ný, og á þriðja sumardaginn (þ. 23.) voru kontin liafþök, að því er hezt varð séð. Ekki leið samt á löngu áður en ísinn fór að leysast sundur á ný, og hvarf meginísinn von bráðar. Ekki verður annað sagt en ísinn væri meinlaus að þessu sinni. Þó var hann á ferðinni á versta tíma og var talinn mikill úti fyrir. Að vísu olli liann á tímabili alhniklum truflunum á samgöngum með ströndum fram. Hins vegar gerði hann ekki boð á undan sér eins og hann gerði t. d. 1918, og eins og hann virðist hafa verið að gera nú um skeið, hversu lengi sem honum sýnist að fresta aðal-áhlaupinu.1) Læt ég hér svo útrætt um þennan fjórðung ársins 1911. En eins og áður er sagt, átti ég á þessum gömlu blöðunt minum ágrip af veðurfars-lýsingu nokkurra miss- era sama aldartugar. Þau eru sex talsins og korna hér á eftir í réttri röð. I. Sumarið 1915. Það sumar mætti nefna þokusumarið. Þá lá ísinn við Norðurland meira og minna fram í 14., 15. viku sumars. Olli liann að sjálfsögðu þokuríkinu. Þá var liiti olt aðeins þrjú stig um hádaginn. Þá voru norðan hafstormar rnjög tíðir, en úrkoma sama og engin. Var heyskapartíð því eigi óliagstæð. Hins vegar var spretta mjög rýr og stóð lengi í stað vegna kuldanna. Frosta gæti töluvert í öndverðum septem- ber. En cftir það fer tíðarfar að breytast. Er svo að sjá sem náttúran hafi viljað bæta fyrir sumarið. Var nú landátt og hlýindi allt haustið og allt að því mánuð fram yfir veturnætur. Þá sungu farfuglar, er hálfur mánuður var liðinn af vetri. II. Veturinn 1915—16. Fram að nýári var veðrátta yfirleitt stillt og góð. Með janúar fór að brydda á bleytuhríðunum eða slyddunum, senr einkenndu veturinn nrest. Varð fljótlega jarðlaust þar, sent snjódýpi og jalnfenni var. Er ekki að orðlengja það, að upp frá því var ekki um neitt haglendi að ræða tdllangt fram á sumar, nema þá kannske meðfram sjónum. Mestar voru bleytuhríðarnar á þorranum. Þá voru stórviðri tíð. Stórbrim og jafnvel hafrót var hvað eftir annað. Um fyrstu sumar- helgina var meira að segja hauga sjór. Á fannkomu var ekkert lát að undan- teknum hálfsmánaðar kafla í marz. Þá voru stillt veður og væg írost. III. Sumarið 1916. Það lieilsaði nú reyndar ekki fyrr en sjö eða jafnvel átta vikum á eftir tímanum. Þá rnátti aka sleðum um endilangar sveitir í fardögum. Þá fór lítið að gróa fyrr en í níundu og tiundu viku. En þá var náttúran líka fljótvirk. Varð að lokum 1 Þetta er skrifað á miðgóu. VEÐRIÐ 29

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.