Vikan


Vikan - 23.02.1961, Blaðsíða 8

Vikan - 23.02.1961, Blaðsíða 8
DOMSDAGS P R E D SURTI H J A dr. Ferris að koma á eftir mér, en majór Rívero átti að verða eftir í flauginni til þess að hafa auga með tækjunum. Flaugin var eina skjól okkar, og við vildum ekki láta neitt koma fyrir flaugina, meðan við værum úti að vinna. Dick átti að fá að spóka sig um tunglið, þegar við kæmum aftur. Það var bæði erfitt og langdregið verk að koma stiganum vel fyrir í þykkum rykmekkin- um. Rykið var fínt eins og kalkduft, og þar eð ekki var neitt andrúmsloft og þyngdaraflið mörg- um sinnum minna en á jörðinni. hékk það í loft- inu, blikandi og ógagnsætt i sólskininu Ég mældi geislaáhrif. áður en ég klifraði niður, og aft.ur. þegar ég fann fast land undir fótum. sem reyndar var ekki fast, heldur eins og æðardúnn. Geiger- teliarinn sýndi, að ekki var geislavirkni að óttast. — Allt í lagi, dr. Ferris, sagði ég í hjálmhátal- aranum. — Þú getur komið niður. — Fg sé ekki handa skil, sagði Chuck. — Bölvuð vitleysa, heyrðist í Rívero innan úr flauginni. Það er ekkert ryk þarna. Þetta er bara ímvndun. Skömmu seiona stóð Ferris við hlið mér, kalk- litur draugur í hvitu þykkninu. Við tókumst í tiondur og héldum varlega af stað út i myrkrið. T fyrstu vögguðum við eins og dauðadrukknir, bví að við vorum óvanir svona litlu aðdráttarafli. En er við vorum komnir spölkorn frá flauginni, tók að létta til, og okkur veittist léttara að ganga. — Hæ, strákar! sagði Dick Rivero, og ég fann. að hann var æstur og kvíðinn. Hafið þið séð nokkra kynjakarla? — Ekki enn, svaraði ég. — Hafið þið séð nokkurn grænan ost? — Heyrðu, góði, sagði ég, — reyndu að hugsa um tækin þín. Við skiptumst á, svo að þú færð bréðum að fara í skemmtigöngu. Eftir svo sem tíu mínútur vorum við komnir út úr mekkinum og sáum þá. að við stóðum í botni hvíts mánadals. Auðvitað var grafkyrrt, har sem ekkert andrúmsloft var til þess að flytja hlióðið, og ég hef aldrei augum litið neitt eins hrikalegt og eyðilegt. Tindarnir gnæfðu mót svörtum flauelshimninum og ljómuðu eins og bréðið brons í sólarbirtunni. Stiörnurnar minntu á þyrpingar af demöntum. Yfir bronsfjöllunum skein jörðin svo giatt. að ég varð að bera hönd fvrir augu til þess að geta horft á hana. Það var dagnr í Norður-Ameríku. — Það er keopni á Yankee Stadium, sagði dr. ti’erris í hátalarann. — Hvernig ætli Micky Mantle takist upp? — Mantle ætti að vera hérna. sagði ég. Hann mundi senda boltann á braut umhverfis tunglið. Eg hevrð' niðurbælt vein og leit snöggt við. Eg bióst. við að dr. Ferris hefði dottið, en sú var ekkí raunin. Hann horfði kvíðafullur á mig. Eg sagði: — Rívero, — varst þetta þú? — ,Tá. bað held ég! hreytti Rívero út úr sér. — Hvað er að? — Ekkert, — ég reif bara smágat á hanzkann í loftgáttinnl. — Loftgáttinni! sagði ég gramur. ■— Hvern f.iandann ertu að gera í loftgáttinni ? Við biðum eftir svari frá Rívero. Hann virtist skömmustulegur eins og barn. sem staðið hefur verið að verki yfir ávaxtamaukskrukku. — Þetta er ekkert. skippari. Eg stakk bara út hendinni til þess að ná í dálítið af þessu hvíta ryki. Ég er kominn inn aftur. — Þú segir það. sagði ég. — Og þú hreyfir þig ekki, þangað til við komum aftur. Skilurðu það? — Já. majór! — Við komum eftir tæpa klukkustund. — Já, majór. Við Ferris hófumst handa á ný. Við grófum niður i hvítt rykið og tókum nokkra steina. sem minntu á kalkstein. Vjð stungum þeim niður í bakpoka okkar. Síðan tókum við lokið af tæki, sem safnaði i sig lofttegundum, ef einhverjar fyndust, og létum það standa opið, á meðan við tókum hitann bæði i skugganum og í sólinni. Vísindamenn á jörðu niðri höfðu farið mjög nærri um hitann. 1 sólinni sýndi mælirinn 43 gráð- ur Celsíus. Við vorum á skuggabeltinu nálægt hinni myrkvuðu hlið tunglsins, og þess vegna var tiltölulega svalt. Ég var feginn þvi, að við höfðum ekki lent sólar megin. Þar hefði verið allt of heitt til þess að yfirgefa skipið. Skuggarnir bak við klettana voru biksvartir, — en rúmlega 100 stiga heitir. Ég var afar hreykinn af því, er dr. Ferris tók af mér litmynd, þar sem ég var að stinga Banda- ríkjafána í tunglið með jörðina í baksýn. Það var sorglegt, að Kólumbus skyldi ekki hafa átt Framhald á bls. 43. Eftir Auðólf Gunnarsson, stud. med. í grárri móðu desembermorgunsins stóðu eitt sinn tveir ungir menn við einhvern óræðan veg mitt úti á ekrum Mississippi- daís i Bandaríkjum N-Ameríku og þráttuðu um það sin á milli, hvort jólin væru i dag eða á morgun eða þá liðin, án þess að þeir yrðu þeirra varir. — Það gat svo sem verið, að þau hefðu farið fram hjá þeim einhvers staðar á leiðinni frá landa- mærum Kanada til suðurstranda Bandaríkj- anna. Þeir, sem ferðast á þumalfingrinum, standa úti á þjóðvegum jafnt á nótt sem degi, — stöðva bila, — fá að sitja aftan á, — sofa litið og eru órakaðir, fara auð- veldlega á mis við jólin á skemmri leið en þessari. En þótt einhver slurkur hefði þannig taoazt framnn af jólunum i ryki þjóðveg- anna, mátti þó enn þá sjá. að eitthvað eimdi eftir af heim i borginni Ncw Orleans suður við Mexikóflóa. Að minnsta kosti voru út- stilltnr mvndir nektarklúhba Bournbon- strætis enn þá umgirtar jólaskrauti, er minnti á sakleysi og hreinleika meyja þeirra er harna kepna um hylli karlmanna. En einhvern veginn er það nú svo, að framandi menn i erlendri stórborg finna ekkí iólin á strætnm eða skemmtistöðum, iafnvel ekki á fliótahát. sem siglir i kyrru hvers kvölds eftir Mississippifljóti, bar sem hljómsveit leiknr á þiljum, meðan fliótið gjálfrar við kinnunga. — Nei, eitthvað vantar, — eitthvað, sem minnir á lieilaga kyrrð þeirra jóla, sem verða til í litlu húsi og litlum bæ iáfnt norður við heimskaut og suður við Mexikóflóa. Það er i leit að þessu. sem menn fara i kirkiu á framandi ströndu um iól, •— jafn- vpl heir, sem hafa þangað ekki komið, siðan þeir voru fermdir, eins og hann Burtur vinur minn. Bevndar hét hann nú ekki Burtur, held- ur Gvshert Waterdrinker. En þar sem mað- nrinn var hollenzkur og þarlendir menn bera fvrra nafnið fram með þvl að ræskja sig svo rækilega, að fólk her hönd fyrir höfnð sér til að verjast hrákanum, sem það væntir á næstu stundu. og siðara nafninu hafði löngu áður verið hrevtt úr Water- drinker (vatnsdrykkjumaður) i Beerdinker (hjórdrykkjumaður), — þá munum við kalla manninn einfaldlega Burt. Við þekkjum öll hina sérstæðu fegurð ýmissa negrasöngvara, sem flosnað hafa upp úr umhverfi sinu, — viða birzt og ýmsir lært og sungið, þótt uppruni þeirra hafi gleymzt. Margir þessara söngva eru komnir frá Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þar lifði fjöldi af svörtu, berfættu fólki við allsleysi og ánauð á víðfeðmum ekrum hvitra þræla- haldara. 1 umkomuleysi sínu kom þetta undirokaða fólk saman með leynd úti á ökrunum í skjóli næturinnar og ákallaði þann, guð sem gefið hafði fyrirheit um jafnrétti allra sinna barna. Samkomur þessar voru sambland óljósra athafna forfeðranna i frumskógum Afriku. þjónustu húsbænda sinna og trylltra trúar- athafna forfeðranna í frumskógum Afríku Áherzla var lögð á samhyggð og sam- virka þátttöku allra. Þannig efldi hið hrjáða fólk samstöðu sina i baráttunni gegn kúg- urunum, og sér til fulltingis ákallaði það guð. — Hróp þess voru brennandi og söngvar þess seiðmagnaðir i likingu við magnþrungnar særingar og tryllta trúar- dansa forfeðranna. Enn i dag má finna leifar þessara sér- stæðu, gömlu trúarathafna meðal sumra negrasafnaða, þótt fátitt sé, en þar hljóma drottni til dýrðar hvern sunnudag ýmsir beirra negrasöngvp, sem annars eru sungn- ir við hin ólikustu tækifæri viða um heim. Til þess nú að ganga úr skugga um, hvort svört sál hýr i svörtum likama og hvit i hvitum, eða hvort fólk er samt við sig i Súdan og Grimsnesinu, þá laumuðust tveir hvitir menn lengst inn i myrkvað nevrnhverfi New-Orleanshorgar. f leit sinni að jólum og gömlum negra- sálmum finna þeir eftir ávisan negraklerks nokkurs baptiska kirkiu, þar sem enn eru i heiðri hafðir gamlir siðir og seiddir söngv- ar. — Og sem við Burtur sitjum þarna á aftasta bekk og látum lítið yfir okkur, fyllist kirkian af svörtu fólki. Mér verður litið á glóhvitan koll Bnrts, og mér finnst við skyndilega svo óhægilega hvltir. Engin devfð virtist rikja yfir kirkjusókn hjá gamla, svarta klerldnum. Það er bætt við stólum á ganga og i anddyri. Allmnrgt fólk, sem er auðkennt með borða um handlegg, hjálpar fólki við að ná sér I sæti, og brátt er kirkjan troðfull, og fólkið situr mjög þétt. Þarna ægir saman alls kyns fólki. ■— Svartar konur, sem löngum liða eins og skuggar um eldhús og stofur hvitra manna, eru þarna komnar i sunnudagskjólum sin- um og bera höfuðið miklu hærra en vana- lega, „uppstrílaðar", og það er ekki laust við, að manni finnist andlitsfarðinn og sunnudagshatturinn eiga dálitið einkenni- lega við dökkan litarhátt og yfirbragð þeirra. Söngurinn hefst, og eftir því sem hann gerist taktfastari, verður andrúmsloftið i kirkjunni þyngra og um leið seiðmagnaðra. — Kórinn kyrjar látlaust innst í kirkjunni, og allur söfnuðurinn tekur virkan þátt í því, sem fram fer, án þess að syngja með. Hljómfallið verður æ fastara, og fjöldinn B VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.