Vikan - 23.02.1961, Page 25
Verzlunin Stóllinn, Laugavegi.
Skrifborð úr tekki á 3.100.00 kr. Mjög hentugt í unglinga'
herbergi. Stóllinn er úr ljósri eik og kostar 1.775.00 kr.
Öndvegi, Laugavegi 133:
Skápur fyrir plötuspilara, lengd 88 cm, hæð 70 cm. Efni tekk. Tvær skúffur að
ofan og hólf fyrir plötur hægra megin. Verð 2.950.00 kr.
<| Skeifan, Kjörgarði.
Ruggustóll með útdregnum
fótaskemli, rúllar á ás, en undir-
staðan er föst.
Efni: Eik. Verð: 4.500.00.
Hfbýladeild Markaðsins,
Hafnarstræti:
Stóll, armalaus, í léttum
skandinavískum stíl. Grind og
fætur úr tekki, áklæddar svamp-
plötur í baki og setu. Java-ofið
Gcfjunaráklæði. Verð 2.803.00 kr.
o
'Palli pwns
Þaö lítur út fyrir, aö illska, öfund, og óheiöarleiki eigi meira undir sér
nú en nokkru sinni fyrr, og því eru öll stjörnuhröp skyldug til aö taka þátt
í bardaganum gegn hinu vonda.
Stjörnuhrap nr. 777 áriö 1961, sem nú er einhvers staöar úti aö hjálpa
Palla prins, sem fœddur er undir krabbamerkinu, á strax aö flytja sig
til fjállsins, þar sem tröUkarlinn býr. Stjörnúblaöiö býst viö skýrslu frá
nr. 777 eftir þrjá tíma.
Konungur og drottning halda því miöur, aö Putti sé sonur þeirra. Þaö
er erfitt fyrir hann aö haga sér eins og góöur prins, en tröllkarlinn, pabbi
hans, hefur stranglega skipaö honum aö þrauka. Áœtlun tröllkarls-
ins er nefnilega sú aö breyta Palla í eiröarlausan vesáling. Þess vegna
má hann gceta sín vel og gæta gleraugnanna sérstáklega vel.
RITSTJÓRI STJÖRNUBLAÐSINS.
„Jæja,“ sagði stjarna nr. 777, „þá legg ég af stað. Bless á meðan,
og vertu varkár, þangaS til ég kem aftur.“
Einn, tveir og þrir, og hún var horfin. Palli var dálítiS einmana
fyrst, en svo herti hann upp hugann. Ilann hitaði upp i eldstónni og
lét sér USa eins notalega og hann gat. Brátt brann þarna myndarlegt
bál, og Palli sat i góðum hægindastól og borðaði kökur og ávexti úr
skál, sem stóS á stofuborðinu.
Allt i einu hrökk hann við. Var ekki barið að dyrum? Jú, þarna
var alveg greiniiega bariS aftur. Palli varð dálítið hræddur. HvaS
átti hann að gera? Ef það væri nú tröllkarlinn, sem væri að koma?
Hann varð að fela gleraugun. En hvar? í flýti kom hann þeim á bak
við púða í sófanum. Þar yrðu þau að vera, þangað til hann sæi, hver
væri fyrir utan.
Framhald á bls. 41.
Eftir stutta stund komu þeir að stórri og gamalli trjárót. Hérinn
barði á dyrnar.
VIKAN 25