Vikan


Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 11

Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 11
I t Austurbærinn svarar fyrir sig að þessu sinni. — Hér hafið þið þátttakanda núnver fimm í fegurðarsamkeppninni, Þuríði Magnúsdóttur. Hún rekur ættir sínar austur í Skaftafellssýslur, og þaðan kemur myndarlegt og táp- mikið fólk, eins og allir vita. Móðir hennar, Lilja Bjarnadóttir, er þaðan, en faðir hennar, Magnús Haraldsson, er úr Reykjavík og rekur heildsölu. Þuríður nam við Gagnfræðaskóla verknáms og hefur mest unnið við af- greiðslustörf í búðum. Nú sem stendur er hún við afgreiðslu í úra- og skart- gripaverzlun Magnúfar Baldvinssonar á Laugavegi. Þuríður hefur verið í handbolta, sem nú virðist vera orðin mjög vinsæl íþrótt og árangursrík. Þar hefur hún fylgt Þrótti að málum, — ekki vörubílstjórafélaginu, heldur Knattspyrnuféiaginu Þrótti. Annars er það eins um Þuríði og margar ungar og fallegar stúlkur: Hana langar til þess að verða tízkusýningarstúlka og vonar, að það takist með tímanum. Þuríður er nítján ára, 168 cm á hæð og 53 kg. önnur mál: brjóst 91 cm, mitti 61 cm, mjaðmir 97 cm og háls 30 cm. smWMlÉÍBÉ&fiíaÉiÉlfeÉ YI/-'~» i 1

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.