Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 26
jSvnrt og
hvíu
Fæstir telja sig skorta um-
burðarlyndi gagnvart öðrum
þjóðum og kynstofnum. 1
raun og veru telst það til
góðra siða að vera frjálslyndur í kynþáttamál-
um. Það yrði leit að manni hér á landi, sem vildi
láta hafa það eftir sér, að hann áliti t.d. negra
vera okkur óæðri. En ekki kæmi það okkur á
óvart, að grímur tvær rynnu á menn, ef þeir
kæmust í þá aðstöðu að þurfa að taka afstöðu
á persónulegri hátt. Sannleikurinn er sá, að
menn eru nú ekki dýpri í sannfæringunni en svo,
að kæmi til mála, að eitthvert skyldmennið
ætlaði að tengjast negra, þá yrði aldeilis uppi
fótur og fit. Og þannig var það með hjónaband
þeirra Maj-Britt og Sammy Davis yngra. Allt
ætlaði af göflunum að ganga. Kvenfélagsfundir
voru haldnir víða í Bandaríkjunum til þess að
mótmæla ósómanum.
STOKKHÓLMUR.
Víða er pottur brolinn. Að minnsta kosti virðast.
yfírvold Stokkliólms eiga 1 jafnmiklum erfiðleikum'
og yfírvöld annarra borga við hreinsun og liiliald. Íbii-
arnir hafa ekið aflóga rúmum, stólum og alis konar
rusli og sldliS það eftir í útjaðri borgarinnar.
VILLIDÝR.
Yfirleitt þykir friðsamlegt á Norðurlöndum og fdtt um
villidýr, hættuleg mönnum. En I ríki Svia eru ýmsar
tegundír villidýra, sem ekki eru þægileg í umgengni.
Þar á meðal er Gaupan. Hún er talin grimmust villi-
dýra á norðurhveli og ekkert lamb að leika sér við.
Það bar til tíðinda, að þrjú eintök voru lögð að velli
fyrir skömmu í Norður-Svíþjóð og þótti afrek. Af mynd-
inni má marka hversu stór skepnan er.
STÓÐ.
Það er viða London en i KaupmannahÖfn og
eru íslendingar ekki einráðir um þúfur og
sináhross. Þessi mynd er frá Slietlandseyjum
og gæti alveg eins verið úr Ölfusinu.
KU KLUX KLAN
Það er furðanlegt, að
fuliorðið fólk skuli
klæðast alls konar bún-
ingsskrípum, þegar það
ætlar sér að koma sam-
an til skrafs og ráða-
gerða um sameiginleg á-
hugamál. En þannig er
því farið um þá, sem
félagar eru i Ku Klux
Klan. Enda eru sameig-
inleg áhugamál þessara
manna ekki síður furðu-
leg en búningarnir.
Það þykja að minnsta
kosti fréttir hér á landi,
að hópur manna skuli
með ofbeldi koma jieirri
skoðun á framfæri, að
aðrir kynstofnar en sá
hvíti skuli ómerkir
teljast.
AUGLÝSING.
Maður nokkur í Lond-
on auglýsti í stóru
dagblaði eftir lifsföru-
naut, sem tæki „ró-
legt kvöld með góðri
hljómlist“ fram yfir
að silja 1 skemmtl-
görðum og kyssast og
klappast. Honum
barst ekki eltt einasta
svar.
KALIFORNÍA.
I San Diego í Kaliforníu eru væntanlegir
brunaliðsmenn hrekktir með einkennilegum
spurningalista. Meðal annars verða umsækj-
endur að svara þessum spurningum: „Farið
þér heldur á stefnumót en taka til á skrif-
borðinu yðar? og ennfremur: „Viljið þér held-
ur kyssa laglega stúlku en skrifa vikuskýrsl-
una?“ Nýliðarnir áttu von á öðru visi spurn-
ingum varðandi þennan starfa og auk þess
fannst þeim varla von til þess að svara þeim
með nei.
2 C 'A<M4