Vikan - 20.04.1961, Blaðsíða 35
'p^klla pwns
Þegar þangað kom var komið
kvöld, og ró og kyrrð var yfir
öllu. Palli gat ekki að því gert að
hann táraðist, þegar hann sá heimili
sitt og mikið hafði hann saknað
föður síns og móður. Kannski mundi
hann aldrei sjá neitt af þessu aftur,
og konungur og drottning mundu
ekki þekkja hann, ef þau sæju hann.
Líklega var eins gott fyrir hann
að fara í burt og láta aldrei sjá sig
framar. En þá vaknaði hjá honum
stoltiö. Hann var þrátt fyrir allt
kóngssonurinn og hann ætlaði ekki
að bregðast landi og þjóð með þvi að
leyfa Putta að komast i konungs-
sætið baráttulaust. Hann ætlaði ekki
að leyfa tröllkarlinum og norninni
að sigra sig. Hann skyldi ekki gef-
ast upp fyrr en í fulla hnefana.
Og hann settist i stórt tré í hallar-
garðinum, þar ætlaði hann að sofa
til morguns, en þá skyldi gengið til
harðrar baráttu.
Þegar hann hafði stungið nefinu
undir vænginn og var rétt í þann
veginn að sofna, hrökk hann upp
við það, að einshvers staðar í höll-
inni var kvleilct ljós. Hann gáði
betur að og sá þá, að þetta var í
herberginu hans. Það vaknaði hjá
honum mikil forvitni. Hvað skyldi
Putti vera að aðhafast og hvernig
var umhorfs núna i herberginu
hans? Hann ákvað að reyna að
gægjast inn um gluggann, þó að það
væri áhættusamt.
Hann flaug hljóðlaust yfir á þak
konungshallarinnar. Hann settist á
bak reykháf, þannig, að hann sá
inn um gluggann á þakherberginu
sínu.
Þarna lá Putti sofandi í rúminu
hans og allt I kringum hann voru
fallegar jólagjafir. Konungurinn og
drottningin stóðu við rúmið og
horfðu áhyggjufull á hann. Þeim
þótti svo vænt um litla prinsinn
sinn, en hann var eitthvað breyttur.
Þau voru að hugsa um það hvað
hefði komið fyrir hann, hvort hann
væri á svona erfiðum aldri, eða
hvort hann væri hreint og beint að
breytast.
Palli litli fylltist óviðráðanlegri
löngun til að fljúga inn til þeirra
og segja þeim allan sannleikann,
og hverpig þau gætu hjálpað sér.
En hann mundi líklega aðeins gera
þau dauðhrædd með núverandi á-
standi sinu. Og hann grét höfugum
tárum þarna á bak við reykháfinn.
Alla nóttina gat hann litið sofið,
honum fannst eitthvað óhugnanlegt
í vændum. Það ýlfraði svo ámátlega
í vindinum og fótatök varðmann-
anna við hallarhliðið voru þung og
drungaleg.
Þegar birti að degi var hann kald-
ur og svangur og það snjóaði jafnt
og þétt. Palli mundi það allt í einu
núna, að hann hafði ekki bragðað
vott né þurrt síðan hann breyttist
i uglu og hann varð veikur af
hungri, þegar ilmandi súkkúlaði-
lykt lagði fyrir vit hans úr elda-
vélinni.
Hann ákvaði, að reyna að skjótast
inn í eldhúsið og fá sér eitthvað í
gogginn, þegar eldabuskan færi með
morgunverðarbakkann upp til kon-
ungs og drottningar.
Hann flaug svo eins og elding
inn um eldhúsgluggan, en skildi
spegilinn og skrinið eftir í gluggan-
um, svo að hann yrði fljótur að ná
til þess, þegar liann færi út aftur.
Þarna stóð hann inni á miðju eld-
húsborði og nartaði kex og sötraði
kakó, þegar hann heyrði manna-
mál fyrir utan. Palli litaðist skelfd-
ur í kringum sig og flaug inn í
næsta skáp, sem hann sá opinn og
lokaði honum vandlega á eftir sér
með vængjunum. Mannainálið færð-
ist nær og tvær stúlkur komu gang-
andi að glugganum. Hérna er ég
vön að sækja mjólkina fyrir pabba
og mömmu sagði önnur þeirra,
stundum er bara búið að taka hana
á undan mér. Það er Palli prins, sem
gerir það. Hann er orðinn eitthvað
svo skrítinn upp á siðkastið.
Palli þekkti að þetta var röddin
í dóttur garðyrkjumannsins og von-
aði að hún flýtti sér, því að elda-
buskan gat komið niður þá og þegar.
En skyndilega heyrði hann, að
hún rak upp gleðióp. Nei, sjáðu hvað
eldabuskan hefur sett handa mér
í gluggan núna, sagði hún við hina,
saumaskrín, og þarna er spegill lika,
sagði liún um leiö og hún tók skrin-
ið og opnaði það. Hugsaðu þér! Nú
getur mamma saumað á mig kjól til
að vera í á afmælinu hans Palla
prins í næsta mánuði. Komdu ég
ætla að flýta mér heim, haltu fyrir
mig á speglinum. Og þær hlupu i
burtu.
En Palli fann að honum leið eitt-
hvað einkennilega og um leið heyrði
hann fótatak eldabuskunnar i stig-
anum. Hann var að stækka og
stækka og breytast. Hann var að
verða að manni aftur, en það var
ekki eins ánægjulegt og það átti að
vera, þvi að hann var lokaður inni
í skápnum.
Þegar hann komst ekki lengur
fyrir þarna inni fór hann að berja
á hurðina og kalla á hjálp. Elda-
buskan kom þjótandi og opnað|t
liurðina. — Hvað er að sjá þetta,
Palli, þú hér lokaður inni í skáp?
Hvernig vildi þetta til, hvað skeði?
Þetta var slysni, sagði hann og
lioppaöi niður af borðinu og stökk
út að glugganum. Það sá víst enginn
nema hann litinn illilegan strák, sem
liljóp eins og fætur toguðu út úr
hallargarðinuin og það heyrði víst
enginn reiðiöslcur tröllkarlsins, sem
þrumaði um allan skóginn. Og alls
énginn tók eftir brosandi stjörnu,
sem hvarf upp í himingeiminn.
En það tóku allir eftir því að Palli
prins varð aftur eins og hann átti
að sér og aldri hafði meiri hamingja
verið í konungsríkinu. Palli litli
hafði að fullu og öllu sigrazt á
tröllahyskinu, og til þess sást aldrei
fraraar.
SÖGULOK.
Málmgluggar fyrir verzlan-
ir og skrifstofubyggingar í
ýmsum litum og formum.
Málmgluggar fyrir verk-
smiðiubyggingar, gróður-
hus, bílskúra o fl.
»«■
Nútt útlit
Ný tækni
/ZZ7
MALMGLUGGAR f/£
Lækjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022.
vikan 35