Vikan


Vikan - 16.01.1964, Blaðsíða 15

Vikan - 16.01.1964, Blaðsíða 15
Hillan riðaði og skalf, Jiar til hún féll með öllum sínum þunga — og öúum vörunum — ofan á fólkið og hann sjálfan. en hann var kominn i liróka- ræður við nokkra félaga sína þarna um stjórnmál og önnur dægurmál, það var byrjað að skammast út af veðrinu, sem alltaf var svo andstyggilegt, að varla væri luindi út sigandi, síðan íarið í samræður um nýj- ustu athurði dagsins, sem blaða- mönnunum voru kunnir, og að lokum fóru þeir að líta í kring um sig i verzluninni, ræða sam- an um útlit hennar og fyrir- komulag, spyrja hvern annan i hálfum hljóðum um eigendur hennar og l'leira. Þeir drukku fyrsta glasið á skömmum tima, og fengu sér annað af bakkan- um. Fyrsta feimnin var farin af flestum gestanna, menn voru farnir að ganga fram og aftur, skoða í hillur og kynna sér húsaskipan, dást að fyrirkomu- lagi í hillum, og sýnilegt var, að flestir voru komnir i gott skap eftir stutta stund. Með sjálfum sér hugsaði Styrm- ir: „Já, ég mátti svo sem vita það, að þetta væri eins og venju- lega, þegar menn eru að opna verzlanir. Það er hellt í mann brennivíni í einn eða tvo klukku- tima, og svo er manni sagt að fara heim og skrifa einhverja lofgerðarrollu um þessa fyrir- myndarverzlun, sem ber af öll- uín öðrum, og sem eigi eftir að skipa sinn háa sess i menningar- lifi hverfisins. Hér geta menn fengið keypt allt, sem hugur- inn girnist — á hóflegu verði — þurfa helzt ekkert að hafa fyrir því . .. bara liringjá svo lcemur það. Bæjarins bezta verzl- un og allt það. Jæja, sama er mér, ef ritstjórinn vill taka þetta í blaðið. Ekki er það mitt að dæma um það. Bezt að nota sér af brjóstbirtunni á meðan hún gefst, og bjarga svo heiðr- inum á eftir.“ Hann tók eftir því, að mað- urinn, sem hafði staðið við dyrnar, þegar hann kom, var farinn þaðan, og var nú að handfjatla vélrituð blöð, og var sýnilega að undirbúa sig undir að lialda ræðu. „Jæja, þá kemur það,“ hugs- aði Styrmir. „Loksins fær mað- ur að vita liver hefur teiknað ])etta veglega hús, hver hefur teiknað innréttingar, komið fyr- ir hillum, hver hefur lagt í það rafmagnið, vatnið, skolpræsið og pússað gluggana. fig læt mér það i léttu rúmi liggja, því ég fæ það livort sem er skrifað á blaði á eftir, eins og fimm ára krakki, sem kann ekki að skrifa. fig held að ég láti það nægja . . . bezt annars að ná sér í ann- að glas áður en þessi heiðurs- maður byrjar á ræðunni.“ Og það stóðst á endum, að liann gómaði nýtt glas — það þriðja — um leið og hann lieyrði sagt: „Góðir gestir . ..“ Styrmir hlustaði aðeins með öðru eyranú á það, sem maður- inn sagði, og óskaði þess af heilum hug, að hann gæti lokað báðum eyrum með innbyggðum klöppum, líkt og augunum. Til þess að drepast ekki úr leiðind- um á meðan á ræðunni stóð, fór hann að virða fyrir sér kven- fólkið, sem þarna var saman- koinið. Hann varð að leita lengi þar til hann kom auga á eina mátu- lega unga, sem lionum leizt vel á. Þá róaðist liann í bili, og tók sér fyrir hendur að skoða liana í rólegheitum frá toppi til tá- ar. Byrjaði neðst á liáum stál- hælunum, og fikraði augun upp- ávið, þar til hann kom að kjól- faldinum. Hann lokaði augunum augnablik, og reyndi að gera sér í hugarlund að hann sæi eitt- hvað, sem liann alls ekki sá, og' mundi líklega aldrei sjá. Svo opnaði hann aftur augun, og athugaði hvort útlínurnar væru í samræmi við það, sem hann hafði gert sér í hugar- lund, en komst ekki að neinni ákveðinni niðurstöðu, Hann missti þvi áhugann fyrir þessuin ákveðna likamshluta, og liélt áfram uppávið, renndi augun- uin eftir fagurlega sköpuðum handleggnum fram að grönnum og lipurlegum fingrunum, sem héldu á lágvöxnu kokkteilglasi, barmafullu af glitrandi geim- vökva. Hún virtist vera eitthvað nervös blessunin. Hendin fór skyndilega að skjálfa og vökvinn skvettist úr glasinu. Hann heyrði einhvern dularfullan þyt, sem jókst áð- ur en hann gat gert sér grein íyrir því, þungur niður, drun- ur og loks óskaplegur hávaði, eins og öll veröldin væri að farast. Styrmir hélt allt i einu að hann væri að verða vitlaus -— eða livort hann hefði drukkið sv.ona mikið ... nei... hann komst aldrei að neinni niður- stöðu, þvi hann fann allt i einu að hann missti glasið á gólf- ið, heyrði skerandi óp stúlk- unnar, sem hann var að horfa á, og um leið tóku fleiri undir hrópið. Hann frekar skynjaði eii sá, að stóru rúðurnar í nýju verzluninni spundruðust eins og þær hefðu verið skotnar í sund- ur, sá fólkið hlaupa sitt í liverja áttina, horfði á stóran stafla af Framhald á bls. 30. - y , I f f VIKAN 3. tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.