Vikan - 16.01.1964, Side 32
j&.<! |
zv.>,
•!.-' x-'vvy
VAROLEV:
V'fr-AMIN
SlCiN IQOO
; '"■y'v* > <« >v$
v«>Kríte Y
öv</ J-ti-n.
<a«w$iMícsr<-M
a&r
ertrt
f'
&gimiL
Þrjú skref til að auka og vernda ungieika húðarinnar — eingöngu
Yardley. — 1. Djúpt hreinsandi krem; 2. Frískandi andlitsvatn,
sem gefur húðinni unglegan blæ; 3. Næringarkrem, sem gerir
húðina heilbrigða og silkimjúka; Síðan — lítið í spegil og sjáið
hinn undraverða árangur.
Fyrir vcnjulega og þurra húS: Dry Skin Cleansing Cream.
Skin Freshner. Vitamin Skin Food.
Fyrir feita húð: Liquefying Cleansing Cream. Astringent Lotion.
Vitamín Skin Food.
YARDLEY
TIL AUKINS YNDISÞOKKA
VI Ki
H
* _
4
'bUPnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
ðHrútsmerkið (21. marz—20. apríl):
Markmið sem þú hefur verið að starfa að að und-
anförnu, nýtur nú hagstæðs stuðnings atburðarás-
arinnar. Þú ert að verða of seinn með að koma í
framkvæmd verki sem er mjög áríðandi og talsvert
bundið við að þú sleppir því ekki. Þú átt annríkt um helgina.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí):
Hugur þinn er ekki nógu bundinn við störf þín og
þú hefur venju fremur áhyggjur út af smáatriðum,
sem leysast af sjálfu sér. Ættingjar þínir krefjast
fjárútláta af þinni hálfu, en ef skynsemi þín býður
þér, þá láttu engan seilast ofan í pyngju þína, hvernig sem
á stendur.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Haltu dyrunum opnum fyrir tilboðum annarra sem
gætu haft mikilvæga þýðingu fyrir þig. Láttu ekki
hugfallast þó allt gangi ekki að óskum þínum, því
það bendir flest til þess að málin stefni í rétta
átt hjá þér. Helgin verður óvanaleg.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Þú ert sjálfum þér ónógur, og getur það hæglega
stafað af þreytu notaðu því hverja stund sem
gefst til þess að hvíla þig og gleyma skarkalanum
í kringum þig. Gerðu viðeigandi ráðstafanir ef þú
byggur á ferðalag, það gæti sparað þér tíma og peninga.
Ljónsmerkið 24. júlí—23. ágúst):
Þú gætir þurft að leggja meira í sölurnar fyrir
væntanlegan ágóða, en þér þykir gott. En þar sem
það virðist blása byrlega í öllu sem snertir við-
skipti, ættirðu ekki að vera með neitt hik. Þér er
óhætt að treysta á hagstæð málalok deilu er þú átt í.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september):
Þú ættir að láta óskir þínar og framtíðardrauma
í ljós við þær persónur sem geta orðið þér að liði.
Málefni sem þú hefur lengi unnið að er nú að
leysast á giftusamlegan hátt. Þú ert óvenjulega
peningalaus, en það stafar einfaldlega af eyðslusemi.
Vogarmerkið 24. september—23. október):
Þú ættir að geta verið afkastamikill í vikunni og
mátt að nokkru leyti treysta á heppni þína í því
tilviki. Möguleikar eru á að þú Öðlist það sem hug-
ur þinn girnist ef þú ert nógu kænn og grípur tæki-
tækifærin greitt. Hagstæð eru viðskipti manna milli.
Drekamerkið (24. október—22. nóvember):
Þú munt þurfa á talsverðu hugviti að halda til þess
að koma í framkvæmd hugmyndum þínum, það
væri þér til góðs ef þú leitaðiy þér aðstoðar. Þú
getur vænst smá hagnaðar fyrir tilstuðlan leyndra
málamiðlara. Tefldu á tvær hættur, ef þú ert í vafa.
Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember):
Reyndu að hagnýta þér ýtarlegar góðan árangur
gerða þinna. Notaðu hvert tækifæri sem gefst til
Þess að koma ár þinni betur fyrir borð. Þú munt
eiga mjög annríkt og þurfa að koma mörgu 1 verk
á skömmum tíma. Aðstæður þínar munu vera á einhvern
hátt öðruvísi en nokkru sinni áður.
Geitarmerkið (22. desember—20. janúar):
Þú nýtur þess að hafa undirbúið verkefni sem tæki
meira af tíma þínum nú, en þú annars hefðir ráð
r Hagstætt er að taka til umræðu myndun félags-
skapar, eða einhverjar samkomu til eflingar góðum
málefnum. Sökum þess hve þú ert vandfýsinn gætirðu kom-
izt í bobba.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar):
Hagstæðar sveiflur eru virkar á fjármála- og at-
vinnusviði þínu. Ef þú leggur dálítið harðar að
þér, gæti uppskeran orðið ríkuleg. Ef þú átt þér
mótpart, er mjög hagstætt að tjá honum aðdáun
þína og ást og láta hann finna hve mjög þú metur hann.
©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz);
Þú leggur töluvert hart að þér til þess að uppfylla
óskir ástvina þinna, þú skalt endurskoða gerðir þín-
ar og athuga, hvort þú getur ekki komizt auðveldar
út úr þessu án þess þó að það missi gildi sitt. Þú
færð í hendurnar verkefni, sem þú verður að leysa með leynd.
m
GLÓBUS h.f. Vatnsstís: 3. - sími 11555