Vikan


Vikan - 03.05.1967, Qupperneq 32

Vikan - 03.05.1967, Qupperneq 32
SCHICK framleiddi fyrstu rafmagnsrakvélina - fremst ávalt síðan. Jí I /./. ■ J ■ T< {<,>>«»■ Ittí,*U >M saaiÉai Wwmmmm HI 4'í uo COMFORT CONTROl Fyrir 110—220 v. rafstraum. Draumur ferðamannsins. Bezta tækifærisgjöfin handa vininum unnustanum eiginmanninum HeildsölubirgSir: I. Guðmundsson & GO h.f. Sími 11999. Hverfisgötu 89. m m STJO RNUSPA*^ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Næstu dagar verða erilsamir og þreytandi. Gamall skólafélagi, sem þú hittir af tilviljun, verður til að lýsa upp tilveruna, þið farið í smá ferðalag. Líkur benda til þess að þú þurfir að sitja fundi. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Menn sem eru yfir þig settir fylgjast mjög vel með afköstum þínum og hæfni. Þess vegna skaltu nú ein- mitt kappkosta við að leysa störf þín vel af hendi. Þér er nauðsynlegt að gæta tungu þinnar betur. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú hefur 1 hyggju breytingar á högum þínum, sern eru orðnar tímabærar fyrir löngu. en þig hefur skort dug til að koma í framkvæmd. Nú bendir allt til þess að bú fáir uppörvandi hjálp til gerðanna. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Eldri kona leitar aðstoðar þinnar í sambandi við áhugamál sitt, á sviði sem þú hefur lagt nokkra stund á. Þú ert nokkuð vel á vegi staddur, en slepptu samt engu tækifæri til að styrkja aðstöðu þína. §ir Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Þú verður að taka á þig skyldur félaga þíns sem hefur reynzt um of útsláttarsamur. Eitthvert kvöld vikunnar færðu ómótstæðilega löngun til að reyna hluti, sem þú hefur aldrei haft af að segja áður. Me4 Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): í sambandi víð undirbúning verks, sem þú vinnur að, hleypur vel á snærið fyrir þér. Maður, sem þú glöggvar þig ekki vel á, hefur horn í síðu þinni, að- gættu vel að missa ekki jafnvægið, þá er voðinn vís. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Forðastu að vera eins tilætlunarsamur og þú hefur verið undanfarið. Persóna sem er undir þinni stjórn nýtur sín ekki af þessum sökum. Það verður mun minna að gera hjá þér en síðastliðna viku. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú dvelur um tíma í ókunnu umhverfi, sem veitir þér mikla ánægju. Eign, sem tilheyrir þér, verður nokkuð kostnaðarsöm. Stúlka, sem þú hefur haft samband við undanfarið, keraur þér mjög á óvart. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þrátt fyrir fremur rólegt líf hefurðu ekki haft nemii á grðsmunum þínum sem skyldi. Kunningjar þínir sem orðið hafa fyrir móðgunum frá þinni hendi, leita ekki til þín að fyrrr bragði. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú endurnýjar kunningsskap þinn við fólk sem þú hefur ekki umgengizt nokkuð lengi. Líkur eru á að þú fáir tilboð frá nokkrum mönnum um að taka þátt í arðvænlegu fyrirtæki. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Þú munt þurfa að umgangast sjúkling um tíma, lík- lega þér nátengdan. Þú verður vitni að orðasennu sem kemur þér í nokkurt uppnám og verður ef til vill til þess að þú breytir um skoðun á hlutunum. 4% Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Kunningjar þínir og félagsbræður hafa skemmtileg- ar fyrirætlanir á prjónunum sem koma til með að skipta þig nokkru máli. Vertu varkár í peningamál- um og taktu engar stórar ákvarðanir þar að lútandi. 32 VIKAN 18- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.