Vikan - 12.12.1968, Qupperneq 15
HÉR SEGIR FRÁ SKILNAÐI ÞEIRRA ONASSIS OG TINU LIVANOS,
AFDRIFARÍKU SAMBANDI HANS VIÐ SÖNGKONUNA MARIU CALLAS,
ÖVINÁTTU VIÐ RAINIER FURSTA, SEM KAUS ÞAÐ AÐ GREIÐA
GEYSIHÁA UPPHÆÐ TIL AÐ LOSNA VIÐ ONASSIS FRÁ MONACO,
- SAMBAND HANS VIÐ BÖRNIN ALEXANDER OG CHRISTINA....
4k- Þessi mynd hefur örugglega verið tekin án þess að
þau hjúin vissu af.
4 Nýleg mynd af Onassis.
Þegar Ari Onassis var svo bland-
að í þetta mál, sagði Callas að
hann hefði aðeins verið sér hollur
vinur. Blaðamennirnir voru ekki á
því að taka þetta sem góða og gilda
vöru, og beindu nú athygli sinni að
Tinu og Ari. Hún hélt áfram með
skipinu til Feneyja, með börnum
sínum, en Onassis var á stöðugu
flugi með sjóflugvél sinni, var alls-
staðar og hvergi. Hann sótti Callas
til Suður-Frakklands og fylgdi henni
til Milano, þar sem hann kyssti hana
á flugvellinum, að öllum ásjáandi.
Svo hittust þau daglega. Tina fór
til New York með börnin, eftir að
hún var búin að tala við lögfræðing
sinn.
Heimspressan stóð á öndinni, sér-
staklega þegar Onassis lagði upp í
skemmtiferð með Callas, systur sinni
og mági, og þau voru einu gestirnir
í þessari ferð.
Tina hraðaði skilnaðarmálinu í
New York og gaf þá ástæðu fyrir
skilnaðinum að Aristoteles Onassis
hefði verið sér ótrúr, með konu, sem
hún nefndi aðeins „frú J. R.", og
hún sagði:
— Það eru næstum þrettán ár
Onassis og Maria Callas frekar létt klædd um borð í
Christina. -áp-
síðan við Onassis giftum okkur í
New York. Síðan hefir hann orðið
einn af ríkustu mönnum heimsins,
en þessi auðæfi hafa ekki fært hon-
um hamingju, og eins og allir vita
hefi ég ekki heldur orðið honum til
hamingju ....
Nokkrum árum síðar sagði Rainier
fursti að Onassis hefði verið niður-
brotinn maður, sem rölti um götur
Lundúnaborgar á nóttunni. (En það
er gamall vani Onassis). Hann sagði
að hjónaskilnaðurinn hefði breytt
lífsskoðun hans og persónuleika, og
þetta gerði Onassis ennþá reiðari
við furstann, heldur en fjármálaerj-
ur þeirra. Onassis hafði verið inni-
lega bundinn konu sinni og skiln-
aðurinn var honum mikið hrygðar-
efni.
„Frú J. R." var hin fagra frú Je-
anne Rhinelander, 34 ára gömul,
dóttir Ameríkana í utanrlkisþjónust-
unni, fráskilin og bjó í Suður-Frakk-
landi. Hún var skelfingu lostin, þeg-
ar hún heyrði að Tina hafði nefnt
hana sem skilnaðarorsök, sagðist
vera vinkona bæði Tinu og Onassis.
Því var haldið fram að frú Rhine-
lander og Onassis hefðu farið sam-
an I skemmtisiglingu, ekki með
„Christinu", heldur á snekkju vinar
þeirra. Tina hélt því fram að Onass-
is hefði oft verið sér ótrúr. Þegar
Onassis heyrði þessi ummæli sagði
hann: — Það er ekki satt, en ég ætla
ekki að þrefa við móður barnanna
minna.
Skilnaðurinn komst í lag, og það
var ríkulega séð fyrir börnunum, og
Tina sagði í viðtali við blaðamann:
— Herra Onassis veit vel að ég kæri
mig ekki um auðæfi hans.
Ari var ekki allskostar ánægður
með þessa athugasemd, sem lét að
því liggja að tengdafaðir hans væri
svo auðugur. Það var sagt að Livan-
os gæti keypt fyrirtæki beggja
tengdasona sinna. — Það er hreint
kjaftæði, sagði Onassis ofsareiður,
— hann gæti ekki einu sinni keypt
listasafn Niarchosar né fyrirtækin
sem ég hef mér til skemmtunar. Með
því átti hann við fjárfestinguna í
Monte Carlo og gríska flugfélagið.
Tina var sjálf stórauðug. Skart-
gripir hennar einir saman voru
metnir á fjórar milljónir dollara. Til
að losna við að blanda framhjáhaldi
inn í skilnaðarmálið, var það leyst
í Alabama, þar þurfti ekki að til-
greina ástæður. Þetta var í júní
1960. Fréttin um skilnað þeirra Tinu
og Aris kom þeim orðrómi á stað,
að búast mætti við hjúskap með
Framhald á bls. 34.
49. tbi. VIKAN 15