Vikan


Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 2

Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 2
-\ Varalitir, 12 fallegir tízkulitir. MAKE-UP, 3 fallegir litir. Pressað púður, 4 fallegir beige litir. Cleansing Lotion, hreinsar betur en sápa og er mildara en krem. Astrigent Tonic. Andlitsvatn fyrir þurra og feita húð. COVER GIRL snyrtivörur eru viðurkenndar af hin- um vandlátu. COVER GIRL fæst í öllum snyrtivöruverzlunum. Heildsölubirgðir: FRIÐRIK BERTELSEN Laufásvegi 12 - Sími 36620. 30 NOXZEMA DEODORANT, 24 HOUR PROTECTI0N DRIES ON CONTACT HOXZEMA-DEODORAHT SVITAEYÐIR. REYNIÐ OG ÞÉR MUNUÐ SANN- FÆRAST UM AÐ BETRI SVITAEYÐI FÁIÐ ÞÉR EKKI. VerkíöJl — út af gömlum samningi Þegar þessar línur koma út á prenti, verður væntanlega lokið öllum verkföllum og verkbönnum, að minnsta kosti um sinn. Skaði allra aðila af þvílíkum ráðstöfunum er þeg- ar orðinn nægilegur, þegar þetta er skriíað, ogekkiábæt- andi. Raunar var ákaflega skrýt- ið, að til verkfalla skyldi þurfa að koma núna. Því ekki var verið að reyna að semja um eitthvað nýtt, heldur aðeins að framfylgja þeim launasamn- ingi, sem síðast var gerður. Það var samið um vísitölu á laun, en þegar vísitalan hækk- aði 1. marz, sagði annar samn- ingsaðilinn einhliða stopp. Þar var örugglega ekki rétt að far- ið. Vel má vera, að þjóðin hafi ekki efni á að greiða þau laun, sem vísitalan fól í sér eftir gengisfellinguna í haust og þær ótrúlegu verðhækkanir, sem eftir hana hafa komið fram. En spurningin er, hvort mögulegt er að gera kaup- lækkun með því móti að fella gengi og neita svo eftir á að standa við gerða samninga um vísitölubindingu launa. Og þá fer ekki hjá því, aðsúhugleið- ing geri vart við sig, hvort mögulegt sé fyrir ríkisstjórn að láta launamál landsins lönd og leið og varast afskipti af þeim. Stjórnin er kjörin til þess af meirihluta landsmanna, að STJÓRNA landi og lýð. Þar inni í hlýtur að felast jafn mikilvægt mál og það, hver laun hinar ýmsu stéttir geti haft og hve mikil laun hinir ýmsu atvinnuvegir geti greitt. Og líklega hefur aldrei ver- ið jafn eindreginn vilji fyrir því hjá mestum hluta lands- manna og nú, að ríkisstjórnin léti þessi alvarlegu mál til sín taka, áðnr en allt væri komið í rembihnút. S.H.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.