Vikan


Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 9

Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 9
SKARLATSSÖTT Skarlatssótt var áður og fyrr einn af hvimleiðustu sjúkdómum og um leið sá sem fólk óttaðist mikið, enda ekki að ástaeðulausu, því fylgikvillar eru mjög slæmir. En eftir að peni- sillinið kom til sögunnar, hefur skarlatssótt verið til- tölulega skaðlaus sjúkdóm- ur, og nú dettur engum í hug að leggja skarlatssótt- arsjúkling á farsóttardeild til einangrunar um langan tíma. En aftur á móti er ekki rétt að vera kærulaus ef grunur er um að skar- latssótt sé á ferðinni. Það eru venjulega börn milli 5 og 15 ára sem fá sjúkdóm- inn, vöggubörn mjög sjald- an. Sum börn fá ekki útbrot, aðeins táknræna hálsbólgu. Önnur geta verið smitber- ar, þótt þau aldrei fái ein- kennin sjálf. Orsakir og smitun. Skar- latssótt orsakast af strep- tokokkabakterium. Þær framleiða eitur (toxin) sem orsaka útbrotin. Sjúkdóm- urinn breiðist út við beina og óbeina snertingu, þ. e. getur borizt með leikföng- um og öðrum hlutum. Ef um faraldur er að ræða, þá berst sjúkdómurinn með mjólk og öðrum næringar- efnum. Meðgöngutími. Venju- lega iíða 2—5 dagar frá bví siúklineur smitast þar til einkenni koma í ljós. Einkenni. Þau eru mjög mismunandi. Venjulega bvrjar sjúkdómurinn með sárindum í hálsi, mjög rauðu og bólgnu koki. með óeloði og uppköstum og 38 —40 stiga hita. Eftir nokkra daga koma útbrot- in. litlir, þéttir, rauðir blettir, sem smám saman verða að stórum flekkjum. Blettirnir koma fyrst á nárann og undir höndun- um, svo breiðast þeir yfir brjóst og maga og að lok- um um allan líkamann. Andlitið verður eiginlega allt rautt en hvítfölvi kringum munninn. Tungan verður líka rauð og hrjúf. Eftir viku eða svo hverfa þessi einkenni, og eftir aðra viku hreistrar húðin, mest á höndum og fótum. Meðferð'. Sjúklingur á að halda sig í rúminu meðan hitinn er og þangað til út- brotin dvína; — og það er vísara að vera heldur lengur en skemur í rúm- iun. Penisillingjafir, sem nú eru alltaf viðhafðar, draga mikið úr óþægindum og stytta sjúkdómstímann. Áður var oft bólusett við skarlatssótt, en nú er alveg horfið frá því, eða minnsta kosti er ekki bólusett, nema um alvarlega farsótt sé að ræða og læknir álíti það nauðsynlegt. Smittímabil. Smitberi er sjúklingurinn frá því hann sjálfur tekur veikina, þang- að til hreistrun er lokið. Stundum kemur það fyrir að sjúklingar eru lengur smitberar. En þar sem penisillin styttir veikinda- tímabilið, styttist smithætt- an um leið. Ef grunur er um smitun, eða sjúkdómseinkenni eru ljós, þá er sjálfsagt að ein- angra siúklinginn, annað- hvort í heimahúsum eða á sjúkrahúsi, bar til læknir hefur ákveðið hvað gera skuli. Læknirinn segir líka til um varúðarráðstafanir og nauðsynlegar hreinlæt- isreglur. Sömuleiðis hvort systkin eigi að sækja skóla og þvíumlíkt. En sem betur fer er sjaldan nauðsynlegt að grípa til róttækra ráð- stafana nú orðið. Fylgikvillar. Áður en fúkalyfin komu til sögunn- ar voru fylgikvillar algeng- j ir og oft alvarlegir. Það i voru aðallega eyrna-, •. nýrna- og lungnabólga og ,tiliðaeikt. Nú kemur penis- .illinið venjulega í veg fyr- Sir þetta, þess vegna er f|,nauðsynlegt að vitja strax læknis og hefja lyfjagjafir fljótt. Ónæmi. Það getur komið >. fyrir að barnið fái sjúk- i jdóminn aftur, en þó er það '„,?ekki algengt. ,''a ☆ GpSÁSVEGl Z2-Z4 »30280-32262 Gólfdúkur — plast, vinyl og linóleum. Postulíns-veggflísar — stærðir 71/2x15, 11x11 og 15x15 cm. Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile. Þýzkar gólfflísar — DLW. Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur. Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfól. Rvikur. Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi. Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex. Silicone — úti — inni. Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung. Vinyl veggfóður — br. 55 cm. Veggfóður — br. 50 cm. 2°. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.